blaðið - 26.07.2006, Blaðsíða 6

blaðið - 26.07.2006, Blaðsíða 6
6 I FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 2006 biaðið ^^Halldór Baldursson Blaðið: Halldór áfram Hægt á framkvæmd Ráðstefnu- og tónlistarhúss: Lélegt skemmtiatriði á árshátíð hagfræðinema ■ Gamaldags smáskammtalækningar ■ Ætti fremur að hraða framkvæmdinni Tónlistar- og ráðstefnuhús Tónlistaráhugamenn verða að biða aðeins iengur eftir tónlistarhúsi hagsstjórninni. Það sýnir hve langt menn eru komnir út af kortinu í sambandi við nútíma hagstjórn ef að þeir fara að æsa sig upp í að breyttur hraði á þessum fram- kvæmdum skipti einhverju máli.“ Dagur segir að fyrst og fremst sé ákvörðunin táknræn í sínum huga. „Það á allt að víkja fyrir stóriðjunni, hagsmunir ferðaþjónustu, menn- ingar og framtíðaratvinnulífs, og táknið verður þessi risastóra hola, þetta sár á hjarta miðborgarinnar sem að við þurfum að lifa með að- eins lengur." Dagur segir, að ef ríkið og Reykja- víkurborg séu í einhverjum alvöru viðræðum um aðgerðir sem dregið gætu úr þenslunni „þá hljóta þeir að líta til áforma um að hraða uppbygg- ingu í Úlfarsárdal og skella upp tíu þúsund manna hverfi á Geldinga- nesi. Þær framkvæmdir gætu valdið harðri lendingu á fasteignamarkaði og haft miklu meiri áhrif á þróun efnahagsmála heldur en frestun um nokkra mánuði á opnun tónlistar- hússins,“ segir Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi. Hreinn dónaskapur Stefán Jón Hafstein, flokksbróðir Dags, tekur í svipaðan streng. Hann segir að ákvörðunin um að hægja á framkvæmdinni sé röng og að hagsmunir borgarinnar séu að framkvæmdunum verði frekar hraðað sem mest má. Stefán gagn- rýnir einnig að ákvörðunin hafi verið kynnt í ríkisstjórninni þar sem borgin taki fullan þátt í fram- kvæmdinni. „Það er í raun hreinn dónaskapur að koma svona fram og tilkynnaætlun ríkisvaldsins ánþess að málið hafi verið tekið upp með formlegum hætti í borgarkerfinu. Ég vænti þess sem borgarfulltrúi að Reykjavíkurborg fari yfir sam- skiptareglur við ríkisstjórnina um þetta mikilvæga og stóra samvinnu- verkefni,“ segir í yfirlýsingu frá Stef- áni Jóni. gunnar@bladid.net Blaðið endurnýjaði í gær samning sinn við Halldór Baldursson, teikn- ara. Myndir Halldórs hafa birst á leiðarasíðu Blaðsins í tæpt ár en á þeim tíma hefur hann náð að festa sig í sessi sem einn snjallasti og vin- sælasti skopteiknari landsins. Lesendur Blaðsins geta því haldið áfram að njóta teikninga Halldórs og samfélagsrýni á næstu misserum. Umferðabrot: Ölvaður á bifhjóli Sjö ökumenn voru kærðir fyrir ölvunarakstur aðfaranótt mánu- dags. Þar af var einn tekinn á bif- hjóli. Einnig voru níu ökumenn sekt- aðir fyrir að vera ekki með bílbeltin og níu manns voru sektaðir fyrir að vera með útrunnin ökuskírteini. Einnig voru tveir teknir fyrir að aka og t símann. Eftir Gunnar Reyni Valþórsson Ríkisstjórnin samþykkti á ríkis- stjórnarfundi í gær að hægja á fram- kvæmdum tónlistar- og ráðstefnu- hússins við Reykjavíkurhöfn til þess að slá á þensluna í efnahagslíf- inu. Gert er ráð fyrir að húsið verði tilbúið vorið 2010 en fyrstu áætlanir gerðu ráð fyrir að húsið yrði tilbúið haustið 2009. Borgarfulltrúar Sam- fylkingarinnar segja að frestunin hafi lítið að segja þegar á heildina sé litið og harma ákvörðunina. Ekki í takt við nútíma hagstjórn „Mér brá nú þegar ég heyrði þetta fyrst, en síðan þegar ég heyrði að aðeins stæði til að fresta opnun hússins um nokkra mánuði, þá veit maður eiginlega ekki hvað skal segja,“ segir Dagur B. Eggerts- son, borgarfulltrúi Samfylking- arinnar. „Sem efnahagsaðgerð er þetta eins og lélegt skemmtiatriði á árshátíð hagfræðinema," segir hann og líkir aðgerðinni við gamal- dags smáskammtalækningar sem hafi ekkert að segja. „Þenslan og verðbólgan í landinu verður ekki rakin til þessarar byggingar en ég skil vel að framkvæmdaaðilarnir vilji ekki að spjótin beinist að þessu húsi á meðan ríkisstjórnin heldur áfram að hafa þessi lausatök á efna- Hágæða Italskur sængurfatnaður og rúmteppí frá Bassetti. med renmlás DUXIANA* ADVANCED TECHNOLOGY IN SLEEPINC, Ármúla 10 • Sími: 5689950 íslenskir neytendur: Svartsýnni en áður Enn minnkar bjartsýni íslenskra neytenda samkvæmt niðurstöðum nýrrar mælingar á væntingavísi- tölu Gallups. Vísitalan lækkar um þrettán stig milli mánaða og mæl- ist rúm 88 stig, en vísitölugildi undir hundrað merkir að fleiri eru svartsýnir en bjartsýnir á ástand og horfur í efnahags- og atvinnu- málum. Mat neytenda á núverandi ástandi lækkar þó minna en vænt- ingar þeirra til sex mánaða. Sú vísitala sem mælir væntingar til næstu sex mánaða stendur í 67,2 og hefur ekki staðið svo lágt frá haust- dögum 2001. „Þá eins og nú, blasti við að skeið þenslu og kaupmátt- araukningar væri á enda í kjölfar snarprar gengislækkunar krónu,“ Neytendur svartsýnni Hinireldri eru svartsýnni en þeiryngri. segir í Morgunkorni Glitnis. Konur eru almennt svartsýnni en karlar, hinir eldri eru neikvæðari en þeir yngri, og bjartsýni eykst einnig með auknum tekjum svarenda. Suðaustur-Asía: Idol í þágu milliríkjasamstarfs Utanríkisráðherra Malasíu, Syed Hamid Albar, útlistaði í blaðaviðtali í gær hvernig mætti auka menningar- tengsl og skilning á milli ungs fólks i ríkjum Suðaustur-Asíu. Ráðherrann vill að Samband Suðaustur-Asíu- ríkja (ASEAN), sem eru pólitísk og efnahagssamtök tíu ríkja á svæðinu, standi fyrir söngvakeppni í anda Idol- þáttanna vinsælu. Að mati Hamid Albar mun slík keppni verða til þess að ungt fólk horfi jákvæðum augum á Samband Suðaustur-Asíuríkja og læri á unga aldri að vinna saman á vettvangi sambandsins. Syed Hamid Albar, sem semur ljóð í frístundum, hefur verið ötull talsmaður milliríkjasamstarfs á vett- vangi Sambands Suðaustur-Asíu. Náið samstarf Utanríkisráðherrar aðiidarríkja Sambands Suðaustur-As- íuríkja. Hamid Albar er fyrir miðju, Hann fékk tónlistarmenn á síðasta ári til þess að semja lag við eitt ljóða sinna til þess að magna upp stemn- ingu fyrir leiðtogafund aðildarríkj- anna sem fór fram í desember á síð- asta ári. Lagið heitir: ASEAN, á okkar hátt.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.