blaðið - 02.08.2006, Síða 4
4 I FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2006 blaftiö
Israelskrherinn
Sækja lengra
inn í Líbanon
Flugvél lenti á
áttundu braut
■ Blaðið mánudaginn 31. júlí.
Flugmálastjórn:
Ekki bannað að lenda utan vallar
ftast fá flugstjórar þó heimild til
tendingar hjá landeigenda
Mynd/HlynurÞórMagnússon
£sso
-»Verslun
/jjSjalfsali
Hart var barist í suðurhluta Lib-
anon í gær eftir að ísraelskar her-
sveitir fóru enn lengra inn í landið
til að uppræta vígamenn Hizballah
á svæðinu og tryggja svokallað „ör-
yggisbelti“ sem á að koma í veg fyrir
eldflaugaárásir þeirra á skotmörk
í ísrael. fsraelar gerðu loftárásir á
bækistöðvar Hizballah í landinu og
á vegi sem liggja til sýrlensku landa-
mæranna þrátt fyrir að hafa sagst
ætla að virða fjörutiu og átta stunda
hlé á þeim á sunnudag.
ER PABBI
DÍLERINN ÞINN?
Foreldrar og aðrir fullorðnir mega ekkí
kaupa áfengi handa börnum yngri
en 20 ára. Það er lögbrot.
LÝÐH EILSUSTÖÐ
ísraelska ríkisstjórnin ákvað á
mánudag að auka umfang landhern-
aðarins innan Líbanons. Ehud Olm-
ert, forsætisráðherra, hefur sagt að
hernaðaraðgerðirnar standi yfir
þangað til að lokið verði að uppræta
Hizballah i suðurhluta landsins.
Condoleezza Rice, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sem sagðist
bjartsýn á að vopnahlé komist á í
vikunni sagði í gær að mikið verk
væri óunnið áður en að það gæti
komist á.
Flugvelum ma
lenda utan flugvalla
■ Hægt að kaupa utanvallatryggingu ■ Golfvallarlending í rannsókn
Eftir Gunnar Reyni Valþórsson
gunnar@bladid.net
Lendingar flugvéla utan skráðra
flugvalla eru heimilar hér á landi en
flugmönnum er uppálagt að gæta
öryggis þegar það er gert. Undan-
farið hefur nokkuð borið á fréttum
þess efnis að flugmenn lendi vélum
sínum á ólíklegustu stöðum. Fyrir
rúmri viku síðan lenti flugvél á golf-
vellinum á Stykkishólmi þar sem
fjölmennt mót var í gangi. Einnig
fréttist af flugmanni sem teymdi
vélina að bensínstöðinni á Reyk-
„Flugstjórinn er
ábyrgur fyrir
flugtaki og
lendingu og
einnig því hvar
hann lendir."
Pótur Maack,
framkvæmdastjóri
flugöryggissviðs
Flugmálastjórnar
hólum til þess að fylla á tankinn.
Pétur Maack, framkvæmdastjóri
flugöryggissviðs Flugmálastjórnar,
segir að í reglugerð um almannaflug
sé sagt að flugstjóri beri ábyrgð á
starfrækslu og öryggi flugvélarinnar
og öryggi allra manna um borð á
meðan á fartíma stendur. „Flugstjór-
inn er ábyrgur fyrir flugtaki og lend-
ingu og einnig því hvar hann íendir.
Hann verður að gæta öryggis allra
í því samhengi." Pétur segir þó að
venjulega fari flugtök og lendingar
fram á skráðum flugvöllum. Með því
móti sé einfaldast fyrir flugstjórann
að tryggja öryggi.
„Það er ekki bannað að lenda á
óskráðum flugvöllum og það er ekki
óalgengt að lent sé á túnum, í fjöru
eða á auðum svæðum inni í landi,“
segir Pétur og bætir við að í þess
konar tilvikum verði að gæta öryggis
og að oftast séu slikir staðir kannaðir
sérstaklega fýrirfram. Pétur bendir
einnig á að tryggingafélögin bjóði
upp á sérstaka utanvallatryggingu.
„Það er þó rétt að benda á að um lend-
ingar utanvalla geta gilt önnur lög og
reglur eins og umhverfislög og lög um
eignarrétt og oftast fá flugstjórar leyfi
til lendingar hjá viðkomandi landeig-
enda.“ Atvikið á golfvellinum í Stykk-
ishólmi mun enn vera í athugun hjá
Flugmálastjórn og því vildi Pétur ekki
tjá sig um það að svo stöddu.
Björgunarsveit varnarliðsins:
Bretar fagna komu
þyrlusveitarinnar
I frétt í nýjasta tölublaði Stars and
Stripes, blaði bandaríska hersins, er
sagt frá 56. björgunarsveit banda-
ríska flughersins, sem til skamms
tíma var staðsett á Keflavíkurflug-
velli. 1 kjölfar brotthvarfs varnar-
liðsins frá Keflavíkurflugvelli var
sveitin færð til og er nú með bæki-
stöðvar sínar í Lakenheath á Eng-
landi. Þar segir að nokkra mánuði
muni taka að gera sveitina starfhæfa
á ný á nýjum slóðum en að því loknu
Þyrlurnar flytjast til Englands.
muni þyrlurnar koma sér vel í björg-
unarstörfum þar í landi rétt eins og
þær hafa gert um árabil á Islandi.
Fasteignamarkaður:
Minnsta í fimm ár
1 síðustu viku var hundrað og
fjórum fasteignasamningum
þinglýst á höfuðborgarsvæðinu
sem er nokkuð minna en meðaltal
síðustu tólf vikna sem nemur 146
samningum. Að sögn greiningar-
deildar KB banka er útlit fyrir að
vikulegur fjöldi kaupsamninga í
júlí verði um 117 að meðaltali og
er þetta minnsta velta í júlímán-
uði frá upphafi mælinga árið
2001. „Velta á fasteignamarkaði
hefur nokkra fylgni við þróun
íbúðaverðs og var veltan til að
mynda heldur lök árið 2001 þegar
íbúðaverð tók að lækka að raun-
virði. Það að veltan nú sé að kom-
ast á svipaðar slóðir og þá rennir
stoðum undir spár um að heldur
fari að hægjast á eftirspurn á fast-
eignamarkaði,“ segir í Hálffimm
fréttum KB banka.
v ..
- allt fyrir garðinn
Landslagsráðgjöf MEST
Þegar fjárfesta á í garðinum er ómetanlegt að sérfróðir fagaðilar séu með í ráðum.
Við hjá MEST fylgjum viðskiptavínum okkar alla leið og veitum honum alhliða fag-
þjónustu varðandi garðinn. MEST býður upp á gott úrval af hellum & garðeiningum,
skrautsteypu og skrautsteinum.
Hjá MEST getur þú fengið aðstoð landslagshönnuða við að skipuleggja garðinn
þinn. Hafðu samband og fáðu nánari upplýsingar í síma 4 400 400.
- allt til bygginga
111
mesT