blaðið - 02.08.2006, Blaðsíða 6

blaðið - 02.08.2006, Blaðsíða 6
6IFRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2006 blaöið Hjólhýsi tilbúin til afhendingar stravi ^200.0®B bu aisKemmtiiegasta! Algjör skvísubók! Fæst um allt land. Draumaveröld kaupafkans er s | ótrulega fyncftn bójpem hittir beint í niark hjá öllum kaup- i% glöðum konum! Besta bókin í útileguna og sumarbústaðinn. „Draumaveröld kaupalkans er sú alskemmtilegasta bók sem ég hef lesið í langan tíma.... gjörsamlega ómissandi bók ... Fátt er hollara fyrir sálina en hressi- legt hláturskast." Anna Kristine - Hér og nú. Salka Ármúla 20-108 Reykjavík - sími 552 1122 www.salkaforlag.is Eigum ýmsar gerðir af TABBERT i hjólhýsum tilbúin til afhendingar strax. Komdu og kynntu þér úrvaliö! SEGLAGERÐIN ÆGIR símlSII 2200 iMORELIATO Stólhólsmen með perlu kr. 5.500 Herrahálsmen meö demanti kr. 10.900 UR&GULL Plröi • MiðbH Hafn«rf|«rðar • 8fmi; 4666 Stálanmband meö perlum kr. 8.600 Perlueymalokkar kr. 7.200 Stálarmband meö kristöllum kr. 8.500 rauöagullsgyllingu 9.700 Flutningabill með tengivagn Bann yki kostnað og fjölgaði bilum Formaður samgöngunefndar vill banna tengivagna flutningabíla: Hugmynd formannsins myndi kosta milljarða ■ Flutningabílum þyrfti að fjölga ■ Margir vegir óhæfir fyrir flutningabíla Eftir Gunnar Reyni Valþórsson gunnar@bladid.net Hugmyndir Guðmundar Hallvarðs- sonar, alþingismanns og fromanns samgöngunefdar Alþingis, um bann við tengivögnum falla í grýttan jarðveg hjá forsvarsmönnum flutn- ingafyrirtækja. Guðmundur hefur sagt rétt að banna tengivagna flutn- ingabíla þangað til lokið verði við vegabætur á þjóðvegunum. Fram- kvæmdastjóri innanlandssviðs Eim- skips segir, að verði bannið að veru- leika þýddi það gríðarlega hækkun á flutningskostnaði, auk þess sem flutningabílum á vegunum myndi fjölga mikið. Framkvæmdastjóri 01- íudreifingar tekur í svipaðan streng. Tengivagnar með 30 ára sögu „Mér finnst hugmyndin nú ekki vel ígrunduð," segir Guðmundur Nikulásson, framkvæmdastjóri innanlandssviðs hjá Eimskip. „Ef þetta yrði raunin, þá horfum við fram á gríðarlega hækkun á flutn- ingskostnaði til og frá landsbyggð- inni, sem næmi tugum prósenta." Guðmundur segir að tengivagnar eigi sér um 30 ára sögu á íslandi jafnt í olíu-, fóður- og almennum vöruflutningum. Samkvæmt upp- lýsingum frá Umferðarstofu voru skráðir tengivagnar um síðustu ára- mót 509. „Það liggur í augum uppi hvers vegna notast er við tengivagna, en það er til að auka hagkvæmnina í flutningunum," segir Guðmundur. Ef hugmynd þingmannsins yrði að veruleika hefði það víðtækar afleið- ingar í för með sér að sögn hans. „Þetta myndi þýða fjölgun bíla sem notaðir eru til flutninga og verulega hækkun á flutningskostnaði.“ Aðspurður hve stór hluti flutninga fari fram með tengivögnum segir Guðmundur að flutningstæki til vöru- flutninga hér á landi séu tvenns konar. „Það eru annars vegar dráttarbílar sem flytja gámana á gámagrindum og hins vegar kassabílar sem yfirleitt eru þriggja öxla og draga undantekn- ingarlaust tengivagn á öllum lengri leiðum. Þetta gildir um allar teg- undir af flutningum, hvort sem um er að ræða almenna vöruflutninga, olíu-, mjólkur- eða fóðurflutninga." Að sögn Guðmundar er mikilvægara að haldið verði áfram að vinna mark- visst að breikkun helstu vega lands- ins og gera þá öruggari í stað þess að banna tengivagna. „Það hefur verið unnið gott starf í því og það þarf að halda því áfram. Við erum öll sam- mála um það að vegirnir þyrftu að vera betri og breiðari.“ Verið að breikka veginn í Ljósavatnsskarði „Okkur hugnast þessi hugmynd engan veginn“, segir Hörður Gunn- Hugmynd Guömundar yki kostnað við flutninga um tugi prósenta. Guðmundur Hallvarðsson formaöur sangöngunefdar Aalþingis. arsson, framkvæmdastjóri Olíudreif- ingar. „Það er ljóst að menn vilja ekki fjölga bílum á vegunum.“ Hörður segir að stundum sé tengivagninn með jafnmikla flutningsgetu og bíll- inn sem dregur hann. Hörður segir að tengivagnabann hefði í för með sér að fleiri bíla þyrfti til að flytja sama magn, „og ekki minnkar það hætt- una.“ Menn verða fyrst og fremst að vanda sig í þessari umræðu að sögn Harðar og bætir hann því við að vega- umbætur skipta þar miklu. „Margir vegir eru einfaldlega ekki hæfir til að taka við þeim flutningum sem verið er að leggja á þá.“ Bíll frá Olíudreifingu valt í Ljósa- vatnsskarði í síðustu viku. Hörður segist hafa farið á staðinn til þess að skoða vegsumerki og þá þegar hafi Vegargerðin verið byrjuð að breikka veginn. „Mér skilst á heima- mönnum að þetta hafi verið þriðja óhappið á skömmum tíma á þessum vegi,“ segir Hörður Gunnarsson. Bankarnir hagnast um 92 milljarða: Hagnast á verðbólgu og veikri krónu Eftir Brynjólfur Þór Guðmundsson brynjolfur@bladid.net Stóru viðskiptabankarnir þrír og Straumur-Burðarás högnuðust um 92 milljarða króna fyrir skatta fyrstu sex mánuði ársins. Þetta er hátt í tvö- falt meiri hagnaður en varð á rekstri bankanna á fyrri helmingi árs 2005. KB banki skilaði mestum hagnaði allra bankanna, 32 milljörðum króna og er það nær 50 prósent meiri hagn- aður en á sama tímabili í fyrra. Þetta er jafnframt þriðjungur af hagnaði allra bankanna. Straumur-Burðarás eykur hins vegar hagnað sinn mest ailra bankanna, hvort tveggja hlut- fallslega og að krónutölu. Hagnaður Straums er rúmir 19 milljarðar króna, jókst um tæpa tólf milljarða króna og er 150 prósentum hærri en árið áður. jónas G. Friðþjófsson, sérfræðingur hjá Greiningu Glitnis, segir tvo þætti hafa mest áhrif á hversu mikið hagn- aður bankanna hefur aukist. „Það er annars vegar veiking krónunnar og hins vegar verðbólgan." Hann bendir á að þar sem tekjur bankanna og hagnaður sé í vaxandi mæli í er- lendum gjaldeyri mælist hann meiri í krónum þegar krónan veikist. „Bankarnir eru allir með þannig eignastöðu gegn skuldastöðu að verðtryggðar eignir eru hærri en verðtryggðar skuldir,“ segir Jónas. Það er þessi eign sem verður til þess að þegar kemur verðbólguskot, eða hærri verðbólga en ella, færast inn í rekstrarreikning bankanna verðbótatekjur." Jónas segir þetta ekki viðvarandi ástand. „Það kann þá að dempast á næstu fjórðungum eða ganga lítil- lega til baka.“

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.