blaðið - 02.08.2006, Page 8
8IFRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2006 blaðift
Ovissuástand í kjölfar fregna af veikindum hins þaulsetna leiðtoga:
Castro tímabundið frá völdum
Raul Castro tekur við af bróður sínum Útlagar í Miami i Flórída fögnuðu á götum úti
Fidel Castro, einræðisherra Kúbu,
hefur í fyrsta sinn frá því að hann
komst til valda árið 1959 látið tíma-
bundið af völdum. Kúbumönnum
var tilkynnt á mánudag að forseti
þeirra væri veikur og myndi gang-
ast undir skurðaðgerð vegna inn-
vortis blæðinga. Á meðan forsetinn
jafnar sig mun yngsti bróðir hans,
Raul, fara með völdin í landinu.
Raul gegnir meðal annars embætti
varnarmálaráðherra á Kúbu og er
næstæðsti yfirmaður heraflans á
eftir bróður sínum.
f bréfi sem Fidel Castro skrifaði og
var lesið upp í sjónvarpi á mánudag
kemur fram að hann hafi ákveðið
að bróðir sinni tæki við völdum
tímabundið vegna vaxandi ógnar
frá Bandaríkjunum. Erlendar frétta-
stofur sögðu í gær að Fidel Castro
hafi nú þegar gengist undir aðgerð-
ina en ekki hefur verið tilkynnt um
hvar og hvenær hún fór fram.
Bréf Fidel Castro til þjóðarinnar
var lesið upp í sjónvarpi á mánudag
og í því kemur meðal annars fram
að sökum mikilla anna undanfarið
og tíðra ferðalaga hafi hann verið
undir miklu líkamnlegu álagi. Enn-
fremur kemur fram í bréfinu að for-
setinn yrði frá störfum í nokkrar
vikur meðan hann jafnar sig eftir
skurðaðgerðina. Fidel Castro verður
áttræður í þessum mánuði og áttu
mikil hátíðarhöld að fara fram í
landinu í tilefni þess. Þeim hátíðar-
höldum hefur verið frestað að beiðni
forsetans fram í desember. Erlendar
fréttastofur sögðu í gær að Fidel Ca-
stro hafi nú þegar gengist undir að-
gerðina en ekki hefur verið tilkynnt
um hvar og hvenær hún fór fram.
Fréttirnar benda til að breyt-
ingar eru í loftinu á Kúbu.
Stjórnmálaskýrendur deila um
hversu alvarlegt ástand Castro
kunni að vera. Stephen Gibbs,
fréttamaður breska ríkisútvarpsins
(BBC) í Havana segir þá staðreynd
að Castro hafi ekki komið fram
sjálfur og gert grein fyrir ástandi
sínu á mánudag hafi orðið til þess
að Kúbumenn óttist að ástand for-
setans muni vera alvarlegra en yfir-
völd vilja meina. Einnig er bent á
að Raul Castro hefur ekki komið
fram opinberlega eftir að tilkynnt
var um veikindi forsetans.
Raul Castro er fimm árum yngri
en Fidel. Þrátt fyrir að skorta per-
sónutöfra og málfimi eldri bróð-
urins er hann sagður hafa trausta
stjórn á hernum. Hann hefur verið
meira áberandi við stjórn landsins
að undanförnu og lét þau orð falla
á dögunum að líklegast mun hópur
helstu samverkamanna forsetans
taka við stjórn landsins falli hann
frá. Bandarískir sérfæðingar í mál-
efnum Kúbu segja Raul líklegan
til þess að beita hernum óspart til
þess að viðahalda stjórn kommún-
istaflokksins falli forsetinn frá en
muni hins vegar líta til reynslu Kín-
verja síðustu áratuga af samblandi
að flokkseinræði og innleiðingu
markaðsbúskapar.
Fagnað í Miami
Fréttunum var fagnað á götum
Miami-borgar í Flórída í Bandaríkj-
unum og flugeldum skotið á loft.