blaðið - 02.08.2006, Page 24
24 I FERÐALÖ6
MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2006 blaöi6
Flugferðin fljótari að líða
Þrátt fyrir að langar flugferðir stöðvi ekki ferðaþyrsta fslendinga þegar leggja á land
undir fót getur verið gott að hafa hugmyndir á takteinum sem gera flugferðina skemmti-
legri. Það getur verið ansi leiðingjarnt að húka í flugvéi og bíða í ofvæni eftir lendingu á
áfangastað, sérstaklega ef um langt flug er að ræða, og því er ekki úr vegi að verða sér
úti um hluti sem hægt er að dunda sér við meðan á fluginu stendur. Það er um að gera
að leggja höfuðið í bleyti og sanka að sér skemmtilegum hugmyndum með fyrirvara svo
að allt sé tilbúið þegar lagt er af stað. Meðfylgjandi eru fáeinar hugmyndir að hlutum
sem geta létt mönnum lífið í vélinni. ___________________________________
halldora@bladid.net
l-pod
l-podinn getur stytt mönnum stundir hvar sem er; í líkams-
ræktarstöðinni, í göngunni eða bara hvar sem er. Fyrir flug-
ferðina er þessi skemmtilega græja alveg tilvalin,
enda getur ferðalangurinn verið í eigin heimi með
þá tónlist sem hann kýs og þannig notið sfn mei-
ra en ella. Passið bara að raula ekki óvart upphátt
- það yrði fremur skammarlegt að syngja úr sér
lifur og lungu frammi fyrir öðrum farþegum!
Spil, spil og aftur spil
Þegar tveir eða fleiri ferðast saman má að sjálfsögðu styt-
ta flugtímann til muna með þvíað taka ínokkurspil. Back-
gammon, Yatsi eða minni útgáfa af tafli henta vel, auk
þess sem gömlu góðu fimmtíu og tvö eiga alltaf vel við.
Góð og meðfærileg bók
Það er endalaust til af skemmtilegum bókum sem
taka ekki mikið pláss. Slfkar bækur má fá í næstu
bókabúð eða á flugvellinum og kosta yfirleitt
ekki marga skildingana. Það er fátt betra en að
gleyma sérígóðri sögu meðan á flugferðinni stend-
ur - sérstaklega ef um skemmtilega og spennandi bók er
að ræða. Verið því búin að kynna ykkur þær bækur sem
gætu hentað.
Krossgaturit
Að leysa krossgátu getur tekið dágóðan
tíma og auðvelt er að gleyma sér við slí-
ka iðju. Krossgátur eru einnig hin besta
skemmtun og ekki skemmir fyrir að hug-
urinn fer á flug og þjálfast sem aldrei fyrr.
Það er um að gera að fjárfesta í nokkrum
krossgátublöðum fyrir
lagið sem verða svo
leyst í fluginu, á strönd-
inni eða þegar lagst er
í rúmið á kvöldin.
ferða-
Fartölva
Þeirsem eiga fartölvu og treysta sér til
þess að taka hana með á áfangastað
ættu svo sannarlega að hafa hana með
ífluginu. I tölvunni eru yfirleitt leikir og
fleiri skemmtilegheit, auk þess sem
hægt erað undirbúa sig fyrir vinnu eða
hvaðeina annað sem tölvan nýtist í. Þá
má auðvitað taka með sér góðar mynd-
ir sem skella má í tölvunna og gleyma
sér þannig um stund.
Tískutímarit
Að sjálfsögðu eiga menn að lesa fréttir og fleira ídagblöðunum, en þar
sem blöðin eru yfirleitt fáanleg í vélinni er kannski óþarft að taka þau
með sérstaklega. Tískutfmarit eru hins vegar ekki íboði
inni, en þau er einmitt skemmtilegt að rýna íþegar bú-
ið er að fara yfir mál líðandi stundar i dagblöðunum.
Sniðugt er að kaupa sér nokkur tískutímaritin fyrir
ferðina, en flestöll þeirra eru seld í vélinni. Það er
aldrei betri tími til þess að kynna sér komandi
tiskustrauma en í langri flugferð. Þannig má
leggja línurnar fyrir næsta búðarráp!
íflugvél-
Eyrnatappar
Þó svo að eyrnatapparnir einir og sér stytti mönn-
um ekki stundir geta þeir gert það að verkum að
fólksofni, sem styttirað sjálfsögðu tímann. Marg-
ir hafa í gegnum tíðina tamið sér að drekka einn
kaldan fyrir flug með það fyrir augum að sofna, en
allar slikar aðgerðir má sniðganga ef eyrnatappar eru
fyrir hendi.
Nammi namm
Það er kannski aldrei við hæfi að mæla með sæl-
gæti, en þegar kemur að ferðalögum verður að
segjast sem er að nammi má vera við hönd. Ef
sælgæti leynist í pokahorninu má næla sér í nokkra
mola og gera svolftiö vel við sig þegar flugið er orðið þreyt-
andi og menn vilja hressingu. Getur verið alveg nauðsynlegt.
ED Electrolux
Slátturvélamarkaðurinn
Ný verslun á Vagnhöfða 8
Isama gata og Bílabúð Benna)
S: 517 2010 %
ivww.slattuuel.is v
Flymo
loftpúðavélarnar
\ komnar
\»tí Verð Irá 19.900,-
Bectrolu*
Bestu verðin í bænum
PARTNER Rafmagns vélsög
meðbðkka
verðkr. 9.900.-
PARTNER Bensín vélsög
Verðkr. 14.900.-
Tilboðsverð
Slátturvélatraktor
Bríggs & Stratton orf
agengis (þarfekki að
blanda olíuvið bensín
minni hávaði)
Verð kr. 26.900,-
Verð áðurkr. 37.900,-
4Hö m/drifi
og 751. safnara
v Verð kr. 38.900,-
19 HöWkvaskiptur
107 cm slátturbreidd
Verð kr. 199.000,-
Verð áðurkr. 299.000,