blaðið - 02.08.2006, Blaðsíða 25

blaðið - 02.08.2006, Blaðsíða 25
blaðið MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2006 25 veiði veidi@bladid.net Losnið við karlinn „Gefiö karlmanni fisk og hann á mat út daginn. Kennið honum aö fiska og þú losnar þú viö hann alla helgina.“ Zenna Schaffer Friður og fegurð i náttúru íslands: Bara bónus að fá fisk Unnur Helga Óttarsdóttir er áhugamanneskja um laxveiði og hún er dugleg að festa á filmu dýrmæt augnablik úr sinum veiðitúrum. „Ég er nýkominn með veiðidelluna og reyni sem oftast að komast út úr bænum í lax. Ég fékk minn fyrsta lax í fyrra í Eystri-Rangá í fyrra, það var 6 punda fallegur fiskur og eftir það varð ekki aftur snúið. Maðurinn minn hefur stundað stangveiði í mörg ár og það má segja að hann hafi smitað mig af þessu. Það er mjög gaman að deila þessu áhugamáli og við reynum að fara sem mest saman í veiðiferðir. Hann er þó meðlimur í hinum ýmsu karlaklúbbum sem stunda veiði og þar eru konur ekki æskilegar. Ég þarf því líklega að fara að koma mér í einhvern kvennaklúbb sem fer endrum og eins í laxveiði," segir Unnur Helga og hlær. Unnur hefur enn sem komið er ekki veitt mikið á flugu og segist ekki vera sérlega lagin við það. En hún ætlar svo sannarlega að bæta kunnáttuna því hún stefnir bráðlega að því að sækja námskeið þar sem tökin á flugunni eru kennd. „I september er ég nefnilega að fara í Norðurá með manninum minum þar sem einungis er leyfilegt að veiða á flugu og því verð ég að vera búin að læra þetta áður en ég held þangað." Unnur Helga þarf ekki að hugsa Fegurðin í náttúrunni Þessa mynd tók Unnur Helga við Eystri Rangá sig mikið um þegar hún er spurð um eftirlætis veiðistaðinn. „Eystri Rangá er í miklu uppáhaldi hjá mér, þar fékk ég minn fyrsta lax og áin er mér þess vegna mjög kær. Þar er líka fín aðstaða og gott að vera. I síðustu viku var ég einmitt þar og átti þar yndislega daga við veiði." Laxveiði er ekki gefins frekar en annað i þessum heimi en Unnur Helga telur að kostnaðurinn ætti ekki að þurfa að stíga fólki til höfuðs. „Þetta er vissulega ekki ódýrt sport en kannski ekki mikið dýrara en önnur áhugamál sem fólks stundar. Þetta er svo sannarlega þess virði og ég sé ekki eftir krónu sem ég ver i veiðina. Það er ómetanlegt að vera út í í íslenskri náttúru og njóta kyrrðarinnar. Svo er það bara bónus ef maður fær fisk.“ Veiðisagan Krækti í þann stóra Örn Árnason leikari er mikill veiðimaður og kann því nokkrar góðar veiðisögur. Minnisstæðust er sagan þegar hann krækti í þann stærsta á ævinni. „Ég, Jóhann Sigurðarson leikari, Sigurður Sigurjónsson og fleiri vorum við veiðar. Það var frekar hvasst og við vorum að veiða á flugu. Það gustar ansi hressilega á móti okkur á svæðinu og ég er að kasta flugunni. Svo lendi ég í því að Ifnan böðlast einhvern veginn fyrir framan mig og kuðlast í andlitið á mér. Um leið fann ég smá sting í nefið og uppgötva svo hvers kyns er, að ég er búinn að fá fluguna í nefið. Það var ekki mjög þægilegt. Ég ætlaði að losa hana en þá var agnúið því miður farið inn fyrir. Samt sem áður klippi ég fluguna úr nefinu. Síðan labba ég upp á land til Jóa og segi að ég hafi nú krækt í þann stærsta á ævinni, um 200 pund. Hann hváir en sér síðan hvers kyns er og fær óstöðvandi hláturskast. Hann skoðar þetta í bak og fyrir og skildi ekkert í því hve vel gert þetta var hjá mér. Við fórum svo upp f Reykjahlíð og þar var hjúkrunarkona sem tók á móti okkur. Hún fjarlægði þetta með smá skurðaðgerð, það blæddi pínu en það hætti. Þetta var mikil fluga sem ég fékk f nefið. Það voru nokkur vitni að þessu og þetta vakti heilmikla lukku,“ segir Örn og hlær. „Fólk flækir flugurnar oft f rassinn á sér en kannski ekki í nefið. Til allrar lukku var ég með gleraugu þannig að þetta fór ekki þangað. Ég get prísað mig sælan að þetta hafi farið í nefið en ekki augun.“ Við reykjum fiskinn REYKOFNINMhyj Skemmuvegur 14 • 200 Kópavoc Fax 587 2134 • Sími 557 2122 Drcifiiij;: Vciðihtisið • Hólmaslóð 4*101 Reykjavík • Siini: 562 0095 - 898 4047 Veiðiportið Ertu orðin leiður á að borga 500-700 fyrir einn spún? Spúnar á aðeins 295 kr! Veiðiportið, fyrir hagkvæma veiðimenn! Grandagarði 3. Sími: 552-9940 www.bilamarkadurinn.is s: 567-1800 (HTR(^Y7I\ PEUGEOT 206 CC 2,0 árg.03 Ek.l5.þV.l,800,-Lán.1,395,- TOYOTA YARIS 1,0 '99 Ek.87.þ V.550,- VW BJALLA 2.0 '03Ek.61þ. V.1,890,-Lán.1,550,- AORIA CLASSICA 613PK HJÓLHÝSI 03/06 V.2,700,-Lán.2,200,- NISSAN PATR0L SE+ 35" 03/99

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.