blaðið - 02.08.2006, Qupperneq 37
I
blaöiö MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2006
kolbrun@bladid.net
Afmælisborn dagsms
JAMES BALDWIN RITHÖFUNDUR, 1924
JACK WARNER KVIKMYNDAFRAMLEIÐANDI, 1892
PETER O'TOOLE KVIKMYNDALEIKARI, 1932
nnan Bókasafns Hafnarfjarðar
er að finna stærstu tónlistar-
deild landsins á almennu bóka-
safni. Þar er að finna um það
bil 35.000 safngögn; vínylplöt-
ur, geisladiska, myndbönd, DVD,
bækur og nótur; nánast allt til út-
láns. Aðeins Ríkisútvarpið á stærra
vínylplötusafn. í árslok verða 40 ár
liðin frá því að tónlistardeildin hóf
að lána út hljómplötur og var hún
lengi vel eina tónlistardeildin sem
gerði slíkt í íslensku almennings-
bókasafni.
Breiður tónlistarheimur
Valdemar Pálsson hefur verið for-
stöðumaður tónlistardeildar safns-
ins frá árinu 2000. Hann segir að
sögu safnsins megi rekja aftur til
ársins 1958. „Þá lagði organistinn
í bænum Páll Kr. Pálsson fram
þá hugmynd að stofna deild eins
og þessa. Árið 1959 veitti bærinn
10.000 krónur til stofnun hennar
og ári síðar arfleiddu sæmdarhjón-
in Friðrik Bjarnason, tónskáld og
fyrrverandi organisti, og Guðlaug
Pétursdóttir, Hafnarfjarðarbæ að
stórum hluta verka sinna og mæltu
svo fyrir í erfðaskrá, að bækur og
munir skyldu varðveittir í bókasafn-
inu. Er safnið hið merkasta, um
2000 gögn, mest bækur um tónlist,
nótur og músíkblöð, sumt ófáanlegt
annars staðar og í rauninni ómetan-
legt. Segja má að upp frá þessu hafi
tónlistardeildin alltaf verið að vaxa.
Tónlistardeildin var nefnd Friðriks-
deild eftir að gjöf þeirra hjóna var
afhent safninu. Árið 1966 hófust
útlán úr tónlistardeildinni. Þetta
var í fyrsta sinn á íslandi sem slíkt
var gert og nánast einsdæmi í heim-
inum.
Gæðin ráða
Valdemar segir safnið hafa vaxið
í tónlistardeildinni eru um það bil
35.000 safngögn,
jafnt og þétt: „Samkvæmt talningu
eru 21.347 hljóðrit á safninu, sem
þykir mjög myndarlegt erlendis
en þá er ég ekki að miða við tónlist-
arsafnið í Rotterdam sem á 4000
hljóðrit. Ég kaupi inn eins breitt
og hægt er: klassíska tónlist, djass-
tónlist, þjóðlög, heimstónlist, popp,
rokk, kvikmyndatónlist, og tón-
verk sem samin eru eftir árið 2000
kaupi ég markvisst. Ég reyni að láta
gæðin ráða, kaupi það besta. f út-
lánatölum er mest lánað af poppi og
menningarmolinn
Hitler verður Der Fúhrer
Með láti þýska forsetans Paul
von Hindenburg varð kanslarinn
Adol Hitler einvaldur Þýskalands
á þessum degi árið 1934 og tók sér
titilinn „Fuhrer“. Hitler sagði þjóð
sinni að þriðja ríkið myndi standa
í þúsund ár en ellefu árum síðar
var Þýskalands nasismans fallið.
Hitler framdi sjálfsmorð 30. apr-
íl 1945 ásamt Evu Braun, ástkonu
sinni sem hann hafði kvænst kvöld-
ið áður.
Á valdatíma Hitlers var um sex
milljónum gyðinga og 250.000 sí-
gaunum útrýmt. Sömuleiðis voru
póltitískir andstæðingar stjórnar-
innar, fatlaðir einstaklingar, sam-
kynhneigðir og aðrir sem taldir
voru óæskilegir líflátnir kerfis-
bundið.
Stríðið sem Hitler leiddi Evrópu
út í kostaði gríðarlegt mannfall. í
Sovétríkjunum einum létust um 20
milljónir manna.
Adolf Hitler er talið eitt mesta ill-
menni mannkynssögunnar.
..
Bruno Cocset
Balazs Kakuk
Sjaldheyrð
hljóðfæri í Skál-
holti
Dagskrá síðustu Sumartónleika-
helgi í Skálholti hefst fimmtu-
daginn 3. ág-
úst og stendur
fram á
mánudaginn 7.
ágúst. Meðal
flytjenda ber
að nefna ung-
verska bari-
tóngömbuleik-
arann Balazs
Kakuk sem
kemur fram á
tónleikum á
fimmtudag og laugardag. Mun
þetta vera í fyrsta sinn sem
leikið er á baritóngömbu á
opinberum tónleikum á (slandi.
Annar gestur þessa helgi er
franski sellóleikarinn Bruno
Cocset og landi hans Maude
Gratton semballeikari en þau
munu koma fram á tónleikum á
laugardag, sunnudag og mánu-
dag. Aðrir flytjendur um helgina
eru Bachsveitin í Skálholti og
Camerarctica en síðarnefndi
hópurinn leikur nú í fyrsta sinn
opinberlega á hljóðfæri klass-
íska tímans. Á tónleikum þeirra
á laugardagskvöldið kl. 21 mun
til að mynda heyrast í klassískri
flautu, klassisku klarinetti og
náttúruhorni í verkum eftir W.A.
Mozart og fleiri.
Flauta og org-
el í Hallgríms-
kirkju
Fimmtuaaginn 3. ágúst koma
hjónin Pamela De Sensi flautu-
leikari og Steingrímur Þórhalls-
son, organisti Neskirkju, fram
á hádegistónleikum á vegum
Alþjóðlegs orgelsumars í
Hallgrímskirkju en tónleikarnir
hefjast kl. 12. Þau hjón kynntust
í heimalandi Pamelu, Italíu,
þar sem Steingrímur stundaði
framhaldsnám í orgelleik. Frá
2002 hefur hann verið organisti
í Neskirkju en hún hefur kennt
flautuleik auk þess sem þau
hafa bæði komið fram á tón-
leikum, bæði sem einleikarar og
saman sem dúó.
Á efniskrá þeirra eru tvö verk.
Fyrst leikur Steingrímur Kóral
nr. 3 í a-moll eftir César Frank,
einn þriggja kórala sem hann
skrifaði síðasta æfiár sitt, árið
1890. Síðara verkið er Sept
chorals (Sjö sálmalög) fyrir þver-
flautu og undirleik eftir franska
20. aldar tónskáldið Jean
Fjársjóður tónlistar-
áhugamannsins
aldemar Pálsson. Hann er forstöð,
maður tónlistardeildar Bókasafns Hai
arfjarðar en þar er að finna stærsU
‘tónlistardeild landsins á almennu
bókasafni.
rokki. Þrátt íyrir það sem fólk gæti
haldið þá er meira lánað út í klassík
en djassi og heimstónlist."
Vínylplatan stendur fyrir sínu
Á safninu er mikið magn vínyl-
platna og nokkuð er sótt í útlán á
þeim. „Sem betur fer er til fólk sem
á enn þá plötuspilara og vill fremur
hlusta á plötur en geisladiska. Það
er ekki sami hljómur á plötum og
geisladiskum og mörgum finnst
platan betri því hljóðið er mýkra og
fallegra en það er hins vegar skýr-
ara á geisladisknum. Það eru mikil
mistök að henda plötuspilaranum
sínum en margir halda að það tæki
sé orðið úrelt. Plötuspilarar eru
hins vegar enn framleiddir í stór-
um stíl og eru orðnir mjög vandaðir
gripir. Það er sorglegt að menn sku-
li ekki nýta plötuspilara sína þegar
þeir hafa aðgang að jafnfínu safni
og þessu,“ segir Valdemar.