blaðið - 31.08.2006, Síða 4
FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2006 blaöið
Kjartan Guðjónsson
síðasta sýningarhelgi
Opi& laugardaga kl. 11-16
Opið sunnudaga kl. 14-16
Sjáumst í Galleríi Fold
Rau&arárstíg 14-16, sími 551 0400
Kringlunni, sími 568 0400 • www.myndlist.is
Hugsaðu um heilsuna
og hafðu línurnar í lagi!
Alvöru Qallahjól
% *#
^mjólk
Frábær 21 gíra 24" drengjahjól, létt og
meðfærileg með álstelli og framdempara!
Verðaðeins 23.120!
4IFRÉTTIR
Arm Johnsen
Kemur til Héraðsdóms Reykjavíkur
sumarið 2002, en þegar mál hans
kom til kasta Hæstaréttar varÁrni
sakfelldur og dæmdur til tveggja
ára refsivistar fyrir fjárdrátt, rangar
skýrslur til yfirvalda, mútuþægni
og umboðssvik í opinberu starfi.
Hann hefur nú fengið uþpreist æru,
sem gerir honum kleift að bjóða
sig fram til Alþingis.
Mynd/flrnoldur
Ámi Johnsen fær uppreist æru:
Ráðuneytið gai
ekki hafnað Árna
■ Afar fáar umsóknir ■ Ekkert sem hindrar Árna frá framboði
Eftir Andrés Magnússon
andres.magnusson@bladid.net
Árni Johnsen, fyrrverandiþingmaður
Sjálfstæðisflokksins, hefur hlotið upp-
reist æru, en hann var hinn 6. febrúar
2003 dæmdur í tveggja ára óskilorðs-
bundna refsivist af Hæstarétti fyrir
fjárdrátt, rangar skýrslur til yfir-
valda, mútuþægni og umboðssvik í
opinberu starfi. Handhafar forseta-
valds undirrituðu yfirlýsingu þess
efnis að tillögu dómsmálaráðherra.
Að undanförnu hafa fregnir borist
af því að Árni hyggist sækjast eftir
þingsæti á vegum Sjálfstæðisflokks-
ins í Suðurkjördæmi, en kjördæma-
ráð sjálfstæðismanna þar hugðist
gera hreint mannorð að skilyrði fyrir
þátttöku í prófkjöri. Nú er því ekkert
því til fyrirstöðu að Árni gefi kost á
sér í prófkjöri, en vera kann að stillt
verði upp á listann án prófkjörs.
Samkvæmt heimildum Blaðsins
úr stjórnkerfinu er afar fátítt að fólk
sækist eftir uppreist æru. Samkvæmt
upplýsingum frá dómsmálaráðuneyt-
inu hafa þannig einungis borist átta
umsóknir frá aldamótum, en ekki er
getið um aðrar málalyktir en að einni
þeirri hafi verið synjað, þar sem til-
skilinn tími hafi ekki verið liðinn frá
fullnustu refsingar.
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum Blaðsins féllu flestir hinna frá
umsókn sinni eftir að þeim var gerð
grein fyrir því að með yfirlýsingu um
uppreist æru fælist hvorki náðun, sak-
aruppgjöfné hreinsun sakarvottorðs.
Einhverjar umsóknir munu og hafa
verið á misskilningi byggðar. I raun
má segja að einu áhrif þess að saka-
maður fái uppreist æru sé að hann
geti farið í framboð og hefur slík yf-
irlýsing því sáralitla þýðingu fyrir
allan almenning.
Allnokkur ár munu vera síðan
sakamaður fékk uppreist æru að lok-
inni afplánun og leitaði ráðuneytið
til gamalla starfsmanna til þess að
ganga úr skugga um réttan farveg
málsins. Árni óskaði eftir uppreist
æru í júní, en vegna sumarleyfa og
óvissu, um hvernig meðhöndla bæri
umsókn hans, var málið ekki afgreitt
fyrr en nú.
Fyrri hefð var fylgt við afgreiðslu
málsins, en hún er sú að undantekn-
ingarlaust hefur verið gerð tillaga
til forseta íslands um uppreist æru,
ef umsækjandi fullnægir lögform-
legum skilyrðum um að hún sé veitt.
Gildir þá einu hvert eðli brotsins er
eða sakaferill viðkomandi og hefur
einvörðungu verið litið til þess, hvort
skilyrði séu uppfyllt.
Samkvæmt hegningarlögum má
veita sakamönnum uppreist æru
þegar tvö ár eru liðin frá afplánun
dóms þeirra. Hefur þá verið litið svo
á að refsing teljist að fullu úttekin á
þeim tíma er reynslulausn er veitt,
svo framarlega sem hlutaðeigandi
stenst skilorð. Nú séu liðin liðlega
tvö ár frá því að Árni Johnsen gekk
sem frjáls maður út af Kvíabryggju,
hann uppfylli því lögformleg skil-
yrði til að hljóta uppreist æru og
engin efni til þess hjá ráðuneytinu
að breyta út af viðtekinni venju um
þessi mál.
Athygli sumra hefur vakið að það
voru handhafar forsetavalds sem
undirrituðu yfirlýsinguna, en tveir
þeirra, þau Geir H. Haarde, forsæt-
isráðherra, og Sólveig Pétursdóttir,
forseti Alþingis, sátu um árabil í
þingflokki Sjálfstæðisflokksins
ásamt Árna. Forseti íslands hélt
utan hinn 22. ágúst og dvelst nú
ytra í einkaerindum, en von er á
honum heim í næstu viku. Náinn
ráðgjafi forsetans tók því fjarri
í samtali við Blaðið að eitthvað
mætti lesa í þá staðreynd, að hand-
hafar forsetavalds en ekki forset-
inn hefðu undirritað yfirlýsinguna.
Hér væri um hefðbundinn embætt-
isgerning að ræða.
Mannekla hjá stórmörkuðum:
Fá bara börn og
unglinga í vinnu
Sífellt fleiri unglingar undir sex-
tán ára aldri sækjast eftir starfi hjá
stórmörkuðum og hefur meðalaldur
starfsfólks þar lækkað um fimm ár
síðan árið 2000. Dæmi eru um að
börn á aldrinum þrettán til fjórtán
ára hafi unnið lengur en reglugerðir
leyfa og þá jafnvel á nóttunni. Lág
laun og mikil eftirspurn á vinnu-
markaði er talin vera líkleg skýring
á þessari þróun.
„Þeir virðast ekki fá mikið af
eldra fólki til þess að vinna á þessu
kjörum,“ segir Elías Magnússon, for-
stöðumaður kjarasviðs VR. „Þeir
þyrftu væntanlega að hækka launin
til þess að hækka meðalaldurinn.“
Samkvæmt upplýsingum frá VR
hefur meðalaldur starfsmanna í mat-
vöruverslunum lækkað úr 31,5 í 24,4
ár á síðastliðnum sex árum.
Elías segir að sem betur fer séu
ekki mörg dæmi um að unglingar
séu látnir vinna of lengi. „En við
vitum að þetta gerist og okkur finnst
þetta ekki góð þróun.“
Að sögn Elíasar er ekkert sem
bannar vinnuveitendum að ráða
börn undir fimmtán ára aldri og í
flestum tilvikum virðast fyrirtæki
fara eftir lögum og reglum. Hann
segir gott atvinnuástand og mikla
eftirspurn á vinnumarkaði gera
það að verkum að eldra fólk sækist
Afgreitt á kassa Dæmi eru um að
fjórtán ára hafi unnið á nóttinni.
síður eftir starfi hjá stórmörkuðum.
,Það er erfitt fyrir þessi fyrirtæki að
fá starfsfólk um þessar mundir og
menn eru bara að reyna að bjarga
sér. Margir krakkar vilja vinna og
eru kannski að gera þetta í samráði
við foreldra. Það er í besta lagi en
menn þurfa að vera meðvitaðir um
reglugerðir.“