blaðið - 31.08.2006, Qupperneq 10
10 IFRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2006 blaAÍð
Austurland:
Kynlífsbíllinn
til Austfjarða
Nú er Jón Kristinn Guðmunds-
son kynlífstækjasölumaður
kominn á Austurland. Hann
hefur innréttað sendibíl sem
sérstakan kynlífsbíl og selur
hann þar allt frá þýskum
klámmyndum upp i eggið fyrir
konurnar.
Ekki hafa allir tekið honum
með opnum örmum en Aldís
Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í
Hveragerði, bað hann vinsam-
legast að hafa sig á brott úr
bænum fyrr í sumar. Honum
hefur hins vegar verið vel tekið
á Austurlandi.
Auðgun úrans:
Tími írana
runninn út
Ekkert bendir til þess að f ranir
hafi hætt að auðga úran þrátt
fyrir að frestur öryggisráðs Sam-
einuðu þjóðanna þess efnis renni
út í dag. Eftirlitsmenn Alþjóða-
kjarnorkumálastofnunarinnar
(IAEA) munu upplýsa fulltrúa
þeirra ríkja sem sitja í öryggisráð-
inu um stöðu kjarnorkuáætlunar
klerkastjórnarinnar í Teheran í
dag en samkvæmt heimildum
AP-fréttastofunar stóð auðgun
úrans yfir í einni af kjarnorku-
vinnslustöðvum frana allt fram á
þriðjudag.
Reykjavík Grapevine:
Sveinn Birkir
nýr ritstjóri
Bart Cameron hefur látið af
störfum sem ritstjóri Reykjavík
Grapevine. Hann hefur ritstýrt
blaðinu undanfarið eitt og hálft
ár. Sveinn Birkir Björnsson
tekur við starfi hans, en hann
hefur starfað sem aðstoðarrit-
stjóri blaðsins síðastliðna þrjá
mánuði.
Deilurnar um áhættumat Kárahnjúkavirkjunar:
Rofnar stíflan eða ekki?
Samkvæmt endurskoðuðu áhættumati fyrir Kárahnjúkavirkjun er áhættan engu meiri en áður var talið. Ekki eru
þó allir á þeirri skoðun og greinir stjórnarmenn í Landsvirkjun á um hversu áreiðanlegt nýja áhættumatið er.
Álfheiður Ingadóttir, stjórnarmaður i Landsvirkjun:
Ekki trúverðugt áhættumat
Mér finnst ekki trúverðugt að láta vinna áhættumat á sama stað
og af sama fólki og er að annast hönnun og eftirlit með þessum
framkvæmdum,“ segir Álfheiður Ingadóttir, stjórnarmaður
í Landsvirkjun, sem flutti tillögu á stjórnarfundi um að óháður hópur
jarðvísindamanna og verkfræðinga kynni sér hvað fór úrskeiðis í systur-
stíflum Kárahnjúkastíflu í Leshoto og Brasilíu. Tillaga Álfheiðar hlaut
ekki stuðning stjórnarinnar.
Álfheiður segist ekki vera að setja út á vinnu fólksins sem vann áhættu-
matið. „Þeim er hins vegar enginn greiði gerður með því að þurfa að yfir-
fara eigin verk með þessum hætti. Ég varð fyrir miklum vonbrigðum með
vinnslu áhættumatsins því þetta stenst ekki reglur um hæfi auk þess að
matið byggir ekki á upplýsingum sem hafa komið fram á þessu ári.“
Að sögn Álfheiðar er fullyrt að upp hafa komið sprungur og of mikill
leki í þremur af tíu þeim stíflum sem sambærilegar eru Kárahnjúkastíflu.
„Því lagði ég til að áður en byrjað væri að fylla lónið verði sendir óháðir
jarðvísindamenn og verkfræðingar til að kanna hvað
fór úrskeiðis í þessum stíflum. Síðan yrði metið
hvað þyrfti að gera hér heima svo sömu at-
burðir endurtaki sig ekki hér á landi.“
Álfheiður tekur ekki undir orð Jóhann-
esar um að ekki sé hægt að finna innlenda
sérfræðinga sem eru algerlega óháðir til að
vinna áhættumat. „Það er náttúrlega bara
kjaftæði. Þó að við búum í smáu samfélagi
þá eru til nóg af þeim sem ekki hafa komið
nálægt hönnun og framkvæmd stíflunnar. Ég
nefndi fjölda virtra og íslenskra sérfræðinga á
heimsmælikvarða á stjórnarfundinum á
mánudaginn sem hægt væri að fá í slíkt
verkefni.“ . ' Á -
Jóhannes Geir Sigurgeirsson, stjórnarformaður Landsvirkjunar:
Engin hætta á stíflurofi
Inýju áhættumati vegna mannvirkja Kárahnjúkastíflu kemur fram
að ekki sé talið að áhættan hafi breyst miðað við þær nýju upplýs-
ingar sem hafa komið fram á meðan á framkvæmdunum hefur
staðið,“ segir Jóhannes Geir Sigurgeirsson, stjórnarformaður Lands-1
virkjunar. „Þannig er það mat stjórnar að ekki sé nein hætta á stíflurofi
eða hremmingum sem slíku myndi fylgja. Stefna fyrirtækisins hefur
verið að gæta fyllsta öryggis og sjá til þess að öll mannvirki séu vöktuð
þannig að hægt væri að grípa inn í áður en eitthvað alvarlegt gerist.“
Jóhannes segir hið nýja áhættumat hafa verið unnið upp á nýtt út
frá nýjum jarðfræðilegum upplýsingum á meðan framkvæmdum hefur
staðið og út frá því hvernig hönnuðir stíflunnar hafa brugðist við varð-1
andi stíflugerðina.
„Ég held að menn verði að fara mjög varlega með slíkar yfirlýsingar
að halda því fram að áhættumatið sé ekki trúverðugt. Okkar samfélag
er agnarsmátt, þannig að í svona þröngum geirum er erfitt að finna
aðila sem eru algerlega óháðir,“ segir Jóhannes
og bendir á að Dóra Hjálmarsdóttir hafi verið
ábyrgðarmaður matsins og ekki komið ná-
lægt hönnun stíflunnar auk þess að vera
einn helsti sérfræðingurinn á þessu sviði.
Að sögn Jóhannesar hafi þessu til viðbótar
verið starfandi óháð sérfræðinganefnd
með erlendum sérfræðingum. „Nefndin
hefur komið hingað til lands tvisvar á ári
og komið með ábendingar sem farið hefur
verið eftir. Alveg ljóst er að þetta verk hefur
verið yfirfarið af hlutlausum, utanað-
komandi aðilum,“ segir Jóhannes og
bætir við að alls ekki sé verið að flýta
sér um of í þessum efnum.
f
*.
SKIPTflR SKOÐANIR ERU UM HVORT HÆTTfl SÉ Á AÐ KÁRAHNJÚKASTÍFLA ROFNI EFTIR AÐ HÚN VERÐUR TEKIN í NOTKUN. MÁLIÐ VARÐ í BRENNIDEPLI ÞEGAR
DEILT VAR UM HVORT FYRRVERANDIIÐNAÐARRÁÐHERRA HEFÐI LEYNT ALÞINGI UPPLÝSINGUM SEM ÞAÐ ÞYRFTI Á AÐ HALDA.
’igHU v-eridun
Eltltl VEii’JL UlV
AIEIJiiA (JIIVAL
George Bush:
Búinn með Camus og
kominn í sagnfræðina
George Bush, forseti Bandaríkj-
anna, er ekki lengur að lesa Útlend-
inginn eftir franska rithöfundinn
og heimspekinginn Albert Camus
heldur les hann nú sagnfræðilegt
verk um orrustuna um New Orle-
ans sem fór fram í stríði Bandaríkja-
manna og Breta árið 1812. Þetta kom
fram í viðtali NBC sjónvarpsstöðvar-
innar við forsetann en hann sagðist
fyrr í sumar ætla að kynna sér verk
Alberts Camus í sumarfríinu.
Bush segist lesa mikið og hafa
auk Útlendingsins lesið þrjú verk
eftir Shakespeare í sumarfríinu.
Forsetinn segist sækjast eftir fjöl-
breytni þegar kemur að því að
velja sér bækur og hann reyni að
lesa það helsta úr öllum greinum
bókmenntanna. Bush var spurður
í viðtalinu út í þá víðteknu skoðun
að hann teljist seint til þungavigtar-
manna þegar kemur að áhuga á æðri
menningu svaraði forsetinn því til
að hann reyndi meðvitað að halda
væntingum fólks um gáfur sínar í
lágmarki.
Maður með fjölbreyttan bók-
menntasmekk George Bush,
forseti Bandaríkjanna, með tónlistar-
manninum Fats Domino.