blaðið - 31.08.2006, Page 16
blaöid
Útgáfufélag: Ár og dagur ehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson
Ritstjóri: Sigurjón M. Egilsson
Fréttastjórar: Brynjólfur Þór Guðmundsson og
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Ritstjórnarfulltrúi: Janus Sigurjónsson
Hreint borð
Aðgerðaleysi er duglegu fólki hættulegt. Eins ef það finnur sér ekki verk-
efni þó nóg sé að gera. Þannig virðist komið fyrir Birni Bjarnasyni dóms-
málaráðherra. Hann lætur einsog hann hafi ekkert þarft að gera og talar
fyrir her og leyniþjónustu.
Ekki er það svo að af því sem heyrir undir Björn sé allt með þeim
ágætum að ráðherrann hafi tíma til dekurverkefna. Flokkur Björns hefur
fært honum völd sem eru vandmeðfarin. Meðal þess sem honum er ætlað
er ábyrgð á lögreglu og fangelsum. Þar virðist margt í kalda koli. Olíusvika-
málið hreyfist á hraða snigilsins, annað hvort vantar getu eða áhuga til að
koma málinu á þann hraða sem þarf. Ekki vantar peninga til rannsókna,
það hefur sannast í öðrum málum. Sama er að segja um nánast allt sem
snýr að fangelsum, þar er vægast sagt allt í kalda koli. Þau er of fá, of þröng,
of gömul og fangarnir hafa aðgang að fikniefnum einsog hvern listir. I
stað þess að taka á því sem brýnast er virðist ráðherrann sitja og móta í
huga sér framtíðarmyndir af leyniþjónustum og herjum.
Eflaust hefur ráðherrann þungar áhyggjur af Baugsmálinu. Hið opin-
bera hefur sennilega eytt meira af peningum í það mál en nokkurt annað
meint sakamál. Hið opinbera hefur reynt aftur og aftur og engar sakir
fengið viðurkenndar, allavega ekki enn. f stað eirðarleysis og aðgerðaleysis
getur Björn látið til sín taka þar sem þörf er á að hann leggi málum lið.
Fangelsismálastjóri hefur fengið nóg og hótar að hætta störfum sökum
þess hversu illa er staðið að málum. Hann segist hreinlega ekki geta verið
ábyrgur fyrir því sleifarlagi sem er á öllu í þeim málaflokki, hefur fengið
nóg. Þarna eru ærin verkefni fyrir Björn.
Það þarf að styrkja rannsóknina á olíusvikamálinu. Þó ekki væri nema
vegna sakborninganna. Þeir eru menn og þeir eiga líka rétt. Það er ekki
hægt að gera nokkrum manni það að ganga ár eftir ár meðal fólks og vera
sífelit dæmdur af samfélaginu. Til að dæma þá sem breyta rangt eru dóm-
stólar og til að þeir geti dæmt þarf að rannsaka mál, ákæra og dæma. Sak-
borningar eiga rétt á því að reglur samfélagsins séu virtar og að dómar
verði felldir yfir þeim sem hafa brotið af sér. Svo eiga þeir sem eru ítrekað
sýknaðir af ákærum hins opinbera líka rétt. Kannski felst sá réttur í því að
ráðherrann axli ábyrgð og sjái til þess að þeir valdsmenn sem undir hann
heyra virði fólk og fari vel með vald sitt. Allt eru þetta brýn verkefni sem
dómsmálaráðherra þarf að taka á og koma áfram.
Það er nóg að gera fyrir dómsmálaráðherra og kannski fer best á því að
hugmyndir um leyniþjónustu og her bíði þar til ekkert annað er á borði
ráðherra.
Sigurjón M. Egilsson
Auglýsingastjórl: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsíngar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Dreifing: íslandspóstur
Fyrsta flokks
íslenskur harðfiskur
GULLFISKUR
OfíKn
l0% móríH
16 I ÁLIT
FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2006 blaöið
VíMLirIVíí)
SJfiiiM pmm uw /H)
ÆTVJK-M
FK RllT
Lykilorðið er frelsi
Mér hefur verið tíðrætt um
það á þessum vettvangi að í
kjölfar hryðjverkaárásanna n.
september hafi einhverskonar ör-
yggisæði gripið um sig í sumum
vestrænum ríkjum, - sérstaklega
þó í Bandaríkjunum. Að mínu
viti eru það kolröng viðbrögð
við ógnarverkum að Vesturlönd
fari að reisa miklar víggirðingar
utan um sig og haida úti stór-
auknum njósnum um fólk. Hvað
svo sem einhverjir vitstola víga-
menn vilja þá megum við ein-
faldlega ekki láta óvini Vestur-
landa sprengja okkur til hlýðni
með slíkum hætti.
Frelsi - lýðræði - mannréttindi
í grunninn tekið eru þjóðfélög
Vesturlanda á okkar dögum byggð
á þremur megingildum; frelsi, lýð-
ræði og mannréttindum. Þessi þrjú
gildi eru samofin og ekkert þeirra
getur staðið án hinna. Frelsi er ekki
til staðar nema lýðræði og mannrétt-
indi séu virt, lýðræði er ekki virkt
nema menn búi við mannréttindi
og frelsi. Og mannréttindi eru fyrir
borð borin ef ekki er til staðar bæði
frelsi og lýðræði. Vesturlandabúar
voru lengi að berjast fyrir þessum
réttindum sem flestir telja nú sjálf-
sögð. Fyrir örfáum öldum töldu kon-
ungar og misvitrir furstar sig hafa
guðlegan rétt til að ráðskast með
fólk en með Upplýsingunni fór sú
skoðun að festast í sessi að valdið
væri ekki frá guði komið heldur frá
fólkinu sjálfu, sem aftur framseldi
það til fulltrúa sinna. Þetta var til
að mynda hugmyndfræðin á bak
við frönsku byltinguna á síðari
hluta átjándu aldar. Þessum megin-
gildum Vesturlanda; frelsi, lýðræði
og mannréttindum, hefur síðan
margoft verið ógnað, ekki síst í Evr-
ópu. Skemmst er að minnast ógnar-
stjórnar Mussolini á Ítalíu og Þriðja
ríkis nasista í Þýskalandi. Spánn,
Portúgal og Grikkland bjuggu líka
öll við einskonar alræði vel fram
á áttunda áratug liðinnar aldar og
Austur-Evrópa losnaði ekki undan
kommúnismanum fyrr en undir
lok níunda áratugarins. Síðan hafa
vindar frelsis, lýðræðis og mann-
réttinda leikið um Vesturlönd.
Auglýst eftir frelsinu
En það eru blikur á lofti. I hinu
svokallaða stríði gegn hryðju-
verkum hafa sum ríki á Vestur-
löndum nefnilega farið að kroppa í
þessi megingildi. Fangar eru í haldi
árum saman án dóms og laga, menn
eru pyntaðir í nafni þess að upp-
ræta yfirvofandi hryðjuverkaógn
og forseti Bandaríkjanna hefur jafn-
vel gengið svo langt að hunsa dóm
hæstaréttar um stöðu stríðsfanga
alríkisstjórnarinnar og ógnar þar
með lýðræðinu þar í landi. Föður-
landslögin svokölluðu, sem heimila
stóraukið eftirlit löggæsluyfirvalda
með þegnum sínum, þrengja enn-
fremur verulega að lýðréttindum
manna. Að undanförnu höfum við
svo séð auknar takmarkanir á ferða-
frelsi fólks. Margt fleira mætti tína
til. Þessi þróun hlýtur að vekja
okkur til umhugsunar. Erum við
kannski að gefa óvinum okkar eftir
þau gildi sem við sjálf teljum heilög-
ust? Sigur hverra er það þá?
I þessu máli er sérstaklega eftir-
tektarvert að það hafa frekar verið
menn sem teljast til hægri í stjórn-
málum sem hafa talað fyrir stór-
auknu öryggiseftirliti, sem aftur
þrengir að frelsi manna, mannrétt-
indum og sjálfu lýðræðinu. Lengst
af var frelsi einstaklingsins megin-
stef í stefnu frjálshyggjumanna, en
á undanförnum misserum hefur
áherslan á frelsið orðið undir i mál-
flutningi margra hægri manna. Ég
auglýsi því hér með eftir frelsinu
í málflutningi íslenskra hægri
manna þegar kemur að umræðu
um öryggissveitir, leyniþjónustur
og aðra eftirlitsstarfsemi ríkisins.
Höfundur er
stjórnmálafrœðingur.
Klippt & skorið
Afslenskri fjölmiðlastétt er að bætast
góður liðsstyrkur, en til mánaðarrits-
ins Grapevine, sem út kemur á ensku,
hefurverið ráðin blaðakonan
Valerie Zechs. Hún kom |
til íslands (sumarleyfi ekki
alls fyrir löngu og heillaðist I
svo af landi og þjóð, að hún
ákvað að setjast hér að næsta I
kastið. Það út af fyrir sig er1
varla (frásögur færandi ef ekki væri fyrir það,
að áðurvann hún hjá hinu merka háðblaði The
Onion (theonion.com), sem sérhæfir sig í kald-
hæðni og hefur aldrei flutt sanna frétt.
Margir (slendingar urðu fyrir sárum
vonbrigðum þegar þeir reyndu
að styðja okkar mann, Magna Ás-
geirsson, í Rockstar Supernova kosningunni
(fyrrinótt. Þrátt fyrir að vefurinn (rockstar.
msn.com) sé rekinn af tölvurisanum Microsoft
stóðust vefmiðlarar þeirra ekki álagið og fjöldi
aðdáenda Magna fékk ekkert nema aumkunar-
verð villuboð úr hugbúnaðariðrum Microsoft.
En það kom kannski sárþjáðum notendum
Windows ekki fullkomlega á óvart.
Stefán Jón Hafstein skrifaði mikla
grein um stjórnmálaflokka og fjármál
þeirra á miðopnu Morgunblaðsins í
gær og líta margir á það sem
upphaf prófkjörsbaráttu hans
innan Samfylkingarinnar fyrir
þingkosningarnar á næsta vori.
En mesta athygli vekja sjálfsagt
illa dulbúin og föst skot hans
á Ingibjörgu Sólrúnu Gísla-
dóttur, formann flokksins. Stefán Jón getur
þess að í aðdraganda formannskosninga í
fyrra hafi komið fram „dylgjur um óhófleg
framlög sem settu skugga á lýðræðislegt val".
I Ijósi þess að stuðningsmenn Össurar birtu
reikningana jafnóðum getur Stefán Jón aðeins
verið að beina spjótum sinum í eina átt.
Skúbb Fréttablaðsins um uppreist æru
Árna Johnsen kom meira að segja Árna
á óvart, ef marka
má viðtal við hann í morg-
unfréttum Ríkisútvarpsins
í gær. Kemur þar vel í Ijós
að Þorsteinn Pálsson,
ritstjóri, fyrrverandi dóms-
málaráðherra, fyrrverandi formaðurSjálfstæð-
isflokksins, fyrrverandi i. þingmaður Suður-
lands og fyrrverandi handhafi forsetavalds,
fyrir nú utan að vera fyrrum sendiherra, hefur
eyrunígóðulagi.
andres.magnusson@bladid.net