blaðið - 31.08.2006, Qupperneq 19
blaðiö FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2006
I 19
Hótel Ólafsvík
Hótel Ólafsvík er þriggja
stjörnu, vel útbúið heils-
árshótel á Snæfellsnesi.
lafsvík er vinalegur staður í fögru
og sérstöku umhverfi sem hefur
upp á margs konar afþreyingu að
bjóða. Flestir náttúruunnendur
ættu að finna eitthvað við sitt
hæfi, hvort sem er til sjós eða
lands. Þegar inn í bæinn er komið
blasa við hin sérstaka og fagra
kirkja bæjarbúa og Bæjarfoss í Ól-
afsvíkurgili, en í honum miðjum
telja sumir að fossgyðjan búi,
nokkurs konar heilladís bæjarbúa.
Ólafsvík, Hellissandur og Rif
tilheyra nú Snæfellsbæ. Ferðaþjón-
usta í Snæfellsbæ er töluverð enda
er náttúrufegurð staðanna og í
nágrenni þeirra sérstök og mikill
fjöldi ferðamanna sækir þá heim
á ári hverju. Fjölbreytt þjónusta
er í boði fyrir ferðamenn, t.d. sjó-
stangaveiði, golf, skoðunarferðir
um þjóðgarðinn, hvalaskoðun o.fl.
Hótel Ólafsvík er staðsett í hjarta
Ólafsvíkur í næsta nágrenni við höfn-
ina, upplýsingamiðstöðina og alla
þjónustu. Hótelið hefur allt verið
endurnýjað og er vel undir það búið
að taka á móti fjölbreyttum hópi
viðskiptavina. Öll aðstaða er eins og
best verður á kosið og leggur starfs-
fólk metnað sinn í að gera dvölina
eins ánægjulega og þægilega og völ
er á. Á hótelinu eru 18 falleg tveggja
manna herbergi með baðherbergi
og n herbergi án baðherbergis. Auk
þess hefur hótelið upp á að bjóða 19
stúdíóíbúðir. I íbúðunum eru tvö
einbreið rúm og svefnsófi. Ibúðirnar
eru allar með baðherbergisaðstöðu,
ísskáp, örbylgjuofni, fjölrásasjón-
varpi og borðbúnaði sem hentar vel
fyrir fjölskyldu eða 4 persónur.
Á hótelinu er glæsilegur veitinga-
salur og tekur hann um 90-100
manns í sæti. Boðið er upp á fjöl-
breyttan matseðill sem hentar vel
bæði einstaklingum og hópum.
Einnig er á hótelinu bar sem tekur
50 manns í sæti. Á barnum er breið-
tjald sem býður upp á sjónvarps-
dagská hvaðanæva úr heiminum,
má þar nefna beinar útsendingar
frá knattspyrnuleikjum og Form-
úlui meðal annars. Frá barnum er
útgengt út á verönd en þaðan er út-
sýni yfir hafnarsvæðið og hægt að
fylgjast með þegar bátarnir koma að
og fara frá landi.
Félagsheimilið Klif er í göngu-
færi frá hótelinu. Á félagsheimilinu
er hægt að halda stærri samkomur,
t.d ættarmót, þorrablót, jólaböll
o.fl. Einnig er á félagsheimilinu vel
útbúin ráðstefnuaðstaða sem hentar
vel fyrir hvers kyns ráðstefnur, litlar
sem og stórar
Nánari upplýsingar á
www.hotelolafsvik.is
Hótel Þórshamar
Hótel Þórshamar er þriggja
stjörnu hótel staðsett í
hjarta Vestmannaeyjabæjar.
I öllum herbergjum er sjónvarp
með 12 rásum ásamt myndbands-
tæki og útvarpi, síma, minibar,
baðherbergi með sturtu og fimm
stjörnu hótelrúm. Morgunverður
er framreiddur á veitingastaðnum
á fyrstu hæð hótelsins. Á hótelinu
er þráðlaus nettenging. Nýlega
voru teknar í notkun þrjár svítur
þar sem tilvalið er að gista ef gestir
vilja láta fara sérstaklega vel um sig
í þægilegu umhverfi.
í kjallara Hótels Þórshamars
er frábær afslöppunaraðstaða
með heitum pottum, gufubaði og
ýmsum lystisemdum fyrir þá sem
vilja slappa af og hlaða batteríin
eftir eril dagsins. Þar er að finna
vinalega setustofu ásamt fullbúnu
snókerherbergi. Það er fátt þægi-
legra en að láta þreytu dagsins líða
úr sér í gufubaðinu og skella sér
síðan í heitan nuddpott af bestu
gerð. Frábært fyrir minni hópa
sem vilja gera sér dagamun
Hóteí Þórshamar rekur að auki
þrjú gistiheimili þar sem boðið
er upp á þægilega gistingu á hag-
stæðu verði.
Gistihúsið Hamar er þægilega
staðsett í hjarta bæjarins. í öllum
herbergjum er sjónvarp með 12
rásum og útvarpi. Öll herbergi
hafa baðherbergi með sturtu.
Möguleiki er á morgunverði á
Hótel Þórshamri. Á staðnum er
aðstaða til fundarhalda ásamt þráð-
lausri nettengingu. Sími er í anddyri.
Fjöldi herbergja er 14.
Gistihúsið Hótel Mamma er
þægilega staðsett gegnt Hótel
Þórshamri. I öllum herbergjum
er útvarp og sjónvarp með 12
rásum ásamt myndbandstæki.
Sameiginlegt eldhús og baðherbergi
er á hvorri hæð. Fjölskylduvæn
gisting sem líkist íbúðahóteli
með fullkomnum hótelrúmum.
Möguleiki er á morgunverði á Hótel
Þórshamri. Sími er í anddyri. Fjöldi
herbergja er 7.1 kjallara er boðið upp
á afnot af þvottavél og þurrkara.
Gistihúsið Sunnuhóll er þægilega
staðsett bakvið Hótel Þórshamar.
I öllum herbergjum er sjónvarp.
Sameiginlegt eldhús er á fyrstu hæð
og baðherbergi með sturtu á hvorri
hæð. Möguleiki er á morgunverði á
Hótel Þórshamri. Sími er í anddyri.
Fjöldi herbergja er 8.
Nánari upplýsingar á
http://hotelvestmannaeyjar.is
511 3350
Laugavt^ur 53b • 101 Reykjavík
5 11 3350 • www.hcrcfoitl.is
Fimmtudaga til sunnudaga
Glæsilegur 3ja rétfa matseðiil á aðeins
Boröapantanir
Happy hour alla claga l / :00 -19:30 - tveir f\ rir einn af fordrykkjum