blaðið - 31.08.2006, Side 22

blaðið - 31.08.2006, Side 22
22 i FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2006 blaðiö Hótel Reynihlíð Hótel Reynihlíð hefur löngum tekið á móti gestum og gang- andi og boðið upp á góðan kost og gistingu. Sagan segir að Sölvi Magnússon hafi þurft að yfirgefa bú sitt árið 1895 vegna mikils gesta- gangs og lítils friðar til að gegna búskap sínum en fyrsta steinhús í Þingeyjarsýslu var byggt á svæðinu árið 1911 gagngert til þess að taka á móti gestum. Saga Reynihlíðar hefst árið 1942 þegar Pétur Jónsson bóndi í Reykja- hlíð og kona hans Þuríður Gísla- dóttir reistu nýjan bæ að Reynihlíð með fimm svefnherbergjum sem voru leigð gestum á sumrin. Síðan þá hefur hótelið verið stækkað, betr- umbætt og þróað í takt við vaxandi áhuga og straum ferðamanna til þessa vinsæla ferðamannasvæðis. Hótel Reynihlíð er elsta hótelið í Mývatnssveit en það er staðsett í Reykjahlíðarþorpi. Á hótelinu sem er fjögurra stjörnu eru 41 þægilegt og fallega búið herbergi. Þar er einnig veitingahúsið Myllan en þar má velja rétti dagsins eða sérrétti af matseðli. Einnig er boðið upp á hóp- matseðil á hagstæðu verði. Á Hótel Reynihlíð er einnig veislusalur og góð ráðstefnu- og fundaraðstaða. Á hótelinu eru herbergin mjög rúmgóð. Fallegt útsýni er til allra átta úr herbergjunum ýmist út á vatnið eða til fjalla. Hótelið býður upp á bílaleigu og leigir reiðhjól. Einnig er á hótelinu miðstöð skoðun- arferða með leiðsögn. Á sumrin eru farnar frá Reykja- hlíð daglegar áætlunarferðir til Ak- ureyrar, Húsavíkur og Egilsstaða. Hægt er að bóka sig á hótelinu í margvíslegar skoðunarferðir eins og t.d. að Öskju, Kverkfjöllum, Kröflu, Dettifossi og til Húsavíkur. Nánari upplýsingar á www.hotelreynihlid.is Hótel ísafjörður FVeðursæld er oft mikil á Vest- fjörðum og lognið á ísafirði er ótrúlegt þar sem Eyrin skýlir fyrir vindum af hafi. 1 bænum sjálfum er margt að sjá og skoða eins og Sjóminjasafnið í Neðstaka- upstað og Safnahúsið á Eyrartúni. Um gömlu göturnar er hægt að fara í skemmtilegar gönguferðir þar sem búið er að gera upp fjölda húsa og sagan er allt um kring. Höfnin hefur alltaf aðdráttarafl og margar skemmtilegar gönguleiðir eru í nágrenni bæjarins. I ísafjarðarbæ eru fjórar sundlaugar og níu holu golfvöllur í Tungudal. Skemmti- legt er að leigja sér hjól, hjóla um nágrennið, skoða sig um og njóta náttúrunnar. Hótel Isafjörður er þriggja stjörnu, þægi- legt heilsárshótel í þessum höfuð- stað Vestfjarða. Hótelið er við Silfur- torg í hjarta bæjarins í næsta húsi við Stjórnsýsluhúsið, steinsnar frá allri þjónustu og höfninni. I næsta ná- grenni eru einnig sundlaug, upplýs- ingamiðstöð, söfn og strætisvagnar. Hötelið hefur verið endurnýjað á undanförnum misserum og er nú mjög vel í stakk búið til að þjóna fjölbreyttum hópi viðskiptamanna. A hótelinu er öll aðstaða eins og best verður á kosið fyrir ferðamenn, fjölskyldur og fólk i viðskiptaer- indum. Starfsfólk hótelsins leggur sitt af mörkum til að gera dvölina bæði ánægjulega og þægilega og hefur faglegan metnað til að takast á við viðfangsefni af ýmsu tagi. Per- sónuleg þjónusta og heimilislegt andrúmsloft hótelsins og nálægð við einstæða náttúru skapar öðru- vísi umgjörð. Á Hótel ísafirði er góð aðstaða til að taka á móti bæði smærri eða stærri hópum, allan ársins hring. Starfsfólk Hótels Isa- fjarðar hefur áralanga reynslu af skipulagningu ýmiss konar funda og ráðstefna. Faglært og þaulvant starfsfólk skipar hverja stöðu svo dvölin verði sem ánægjulegust. Á Hótel ísafirði eru fyrsta flokks herbergi, góð fundaraðstaða með nýjustu tækni og í veitingasal er frábær matur, þar sem lögð er áhersla á að nýta sem mest úr vest- firskri náttúru. Margir skemmti- legir möguleikar eru á alls konar dægradvöl og uppákomum fyrir gesti sem vilja slaka á eftir amstur dagsins. Fundarsalur rúmar vel 40-50 manna fundi og í göngufæri frá Hótel ísafirði eru fundarsalir sem rúma mun fleiri fundargesti. Matsalurinn á Hótel ísafirði hentar vel fyrir veislur fyrir allt að 100 manns. I samstarfi við ferðaskrifstofuna Vesturferðir er þeim sem vilja halda fund eða ráðstefnu á Isafirði boðið upp á aðstoð við alla pappírsvinnu, farmiðapantanir, skipulagningu dagskrár, bókun gistingar, veitinga, hópferðabifreiða sem og aðstoð við skipulagningu skoðunarferða og annarrar dægradvalar, auk þess að annast akstur gesta til og frá flugvelli. Nánari upplýsingar á www.hotelisaQordur.is % . Heinekcnás ENGAR MÁLAMIÐLANIR, 4JÓTUM LÍFSINS TIL FULLS! H

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.