blaðið - 31.08.2006, Blaðsíða 23

blaðið - 31.08.2006, Blaðsíða 23
blaðiö FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2006 23 e ;; Tónleikar í Smekkleysu Reykjavík! - Slugs - Bent og félagar munu spila i Smekkleysu/Gallerí Humar eða frægð að Klapparstíg 27 klukkan 17 í dag. Steingrímur J. Sigfússon flytur framsöguerindi íHáskóla- num i Reykjavík í dag. Málþing um stríð og hryðjuverk [ dag klukkan 11.50 boðar Málfundafélag Lögréttu til mál- fundar í stofu 101 í Háskólanum í Reykjavík. Efni fundarins verður Stríð og herferðin gegn hryðjuverkum með hliðsjón af átökunum í Líbanon. Framsögu- menn verða þau Andrés Magn- ússon blaðamaður, Steingrímur J. Sigfússon alþingismaður og Þórdís Ingadóttir, sérfræð- ingur í þjóðarrétti við Háskól- ann í Reykjavík. Búast má við áhugaverðum umræðum um þetta umdeilda efni en Karollna Finnbjörnsdóttir sér um fundar- stjórn og gert verður ráð fyrir fyrirspurnum úr sal. Gleðskapur í Austurstræti Gyllti Jú morgunmunuvegfarend- ursemleggjaleiðsínaum Austurstræti heyra hress- andi tónlist og mikla kát- m mínu berast út úr verslun- inni Gyllta kettinum. Verslunin tók til starfa í nóvember á síðasta ári og styttist því í eins árs afmæli kattar- ins. Bak við afgreiðsluborðið standa vaktina systurnar Ása og Jóna Otte- sen. Ása gegnir hlutverki stílista en Jóna er verslunarstjóri. Hafdís Þor- leifsdóttir móðursystir þeirra er eig- andi búðarinnar ásamt eiginmanni sínum Hauki Inga Jónssyni. „Þetta er svona fjölskyldusamstarf sem hef- ur gengið mjög vel,“ segir Ása. „Við seljum „second-hand“ föt auk þess sem við seljum svolítið af okkar eig- in hönnun og einnig erum við með vinsælt fatamerki sem nefnist POP.“ Notuð föt, falleg föt Ása segir síðastliðið ár hafa verið gott og rekstur verslunarinnar hafa gengið vonum framar. „Við erum bæði með föt fyrir stelpur og stráka og fólk á öllum aldri hefur sýnt okk- ur mikinn áhuga.“ Margir hafa ef- laust furðað sig á því ástfóstri sem ungdómurinn hefur tekið við notuð föt - klæðnað sem kannski var upp ákaflega falleg og við leggjum mikla vinnu í að velja þau inn í búðina. Við sækjum varninginn okkar aðallega til Englands þar sem við höfum okk- ar tengiliði og grömsum út um borg og bý til þess að leita að fallegum fötum til að selja í Gyllta kettinum,' segir Ása. Gleðin við völd I dag klukkan 16 hefst gleðskapur í versluninni, en hún verður þá opn- uð með pomp og prakt eftir andlits- lyftingu. „Tilefnið er að við vorum að koma að utan og keyptum svo mikið af fallegum fötum sem við hlökkum til að sýna viðskiptavinum okkar með viðhöfn. Svo hefur búðin líka gengið í gegnum breytingar sem við munum svipta hulunni af. Hér kemur plötusnúður sem skemmtir gestum og við bjóðum upp á léttar veitingar," segir Ása brosandi að lok- um og biður spennt eftir að opna dyr Gyllta kattarins upp á gátt. Fagnaðurinn stendur til klukkan 22 og eru allir velkomnir til að sam- fagna kettinum og stúlkunum bak við búðarborðið. hilma@bladid.net Vel klæddar Asa Ottesen, Hafdís Þor- leifsdóttir og Jóna Ottesen. á sitt besta á sjöunda eða áttunda áratugnum. Að ganga Laugaveginn er oft eins og að stíga upp í tímavél þar sem stúlkur spranga um líkt og þær hafi stokkið út úr kvikmynd frá 1969. Ása segir þennan áhuga síst fara dvínandi. „fslendingar eru auðvitað mjög fámenn þjóð, hér eru ekki margar verslanir og fólk lendir oft í þvi þegar ný föt eru keypt að næsti maður á samskonar flík. Það getur auðvitað verið mjög leiðinlegt en það er hægt að forðast með því að kaupa notuð, flott föt og blanda þeim saman við það sem er í fata- skápnum fyrir. Svo eru fötin okkar kötturinn malar Allt verður að seljast Ótrúleg tilboð á fallegri föndurvöru, vefnaðarvörum sem og öllum öðrum vörum ® VOLUSTEINN f y ri r fima fingur BÆJARLIND 14-16 / Sími 588 9505 / www.volusteinn.is Lokadagnr rýmingarsöluimar í dag fimmtudaginn 31.ágúst að Bæjarlind 14-16 Verslunin Völusteinn Hættir

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.