blaðið - 31.08.2006, Qupperneq 25
blaðið FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2006
25
Þegar Rock Hudson var eitt sinn
spurður um viðhorf sitt til ástar-
innar sagði hann: „Ást? Hún er of-
metin. Það eru vitaskuld til mörg
form ástar, eins og ást á barni eða
foreldri, ást á hundum eða plöntum
eða grilluðum kjúklingi. Ég hef
unun af að elska en það að vera
ástfanginn af einhverjum hefur
verið rómantíserað of mikið. Það
er hræðileg tilfinning, eins og veik-
indi sem maður hefur ekki stjórn á.
Mér er illa við hluti sem ég get ekki
haft stjórn á.“
Eyðni kemst í sviðsljósið
Á sjöunda áratugnum var Rock
Hudson fallandi kvikmyndastjarna
en á næstu árum sást hann oft í
sjónvarpsþáttum og naut nokkurrar
hylli. Árið 1981 gekkst hann undir
hjartaaðgerð og þremur vikum
seinna greindist hann með eyðni.
Rock þagði yfir fréttunum í viku
og að sögn þeirra sem til þekktu
grét hann stöðugt áður en hann
sagði ritara sínum frá veikindinum.
Hann sagði ekki nýjasta elskhuga
sínum fréttirnar og hélt áfram að
sofa hjá honum. Elskhuginn, Mark
Christian, var tæpum tuttugu árum
yngri en Rock og það var samdóma
álit manna að Mark stæði í ástarsam-
bandi við Rock til að geta hagnast af
honum fjárhagslega.
Á næstu mánuðum lét Rock Hud-
son stórlega á sjá. Eftir löng fundar-
höld umboðsmanns hans og lækna
var loks ákveðið að skýra frá því
að leikarinn væri með eyðni. Þegar
blaðafulltrúi Rocks las fyrir hann
hina opinberu tilkynningu kinkaði
Rock kolli og sagði: „Gott og vel,
farðu og mataðu úlfana á þessu.“
Leikarinn bjóst ekki við samúð
umheimsins og viðbrögðin komu
honum á óvart. Samúðarkveðjur
bárust alls staðar frá. Fram að þessu
hafði verið ákveðin hneigð í Banda-
ríkjunum til að horfa framhjá sjúk-
dómnum. Nú var það ekki lengur
mögulegt. Árangurslaus barátta
Rocks til að öðlast lækningu vakti
heimsathygli.
„Það er erfitt að trúa því að mað-
urinn sé á lífi. Hann lítur út fyrir
að vera hundrað ára,“ sagði hjúkr-
unarkona Rocks skömmu áður en
hann lést í októbermánuði 1985, sex-
tugur að aldri, og var þá einungis
44 kíló. Sagt er að dauði hans hafi
orðið til þess að vinur hans, Ron-
Myndin sem gerði hann að stjömu
Með Jane Wyman í Magnifícent Obsession.
Rock Hudson og Doris Day Voru gríð-
ariega vinsæit par á hvíta tjaldinu.
ald Reagan Bandaríkjaforseti, hafi
tekið sinnaskiptum og viðurkennt
að ástæða væri til að viðurkenna
vandann og berjast fyrir lækningu á
sjúkdómnum.
kolbrun@bladid.net
Hafcht ,, f
Fullelduðu kjúklingabitarnir frá Matfugli á grillið, (ofninn eða á pönnuna.
Með hverjum bakka fylgir Léttsósa frá Salathúsinu.
Nánari upplýsingar og pantanir í síma 480 2500 og inio@hotelselfoss.is
'Vve/Lfric&&
Glæsilegur veitingastaður
á bökkum Ölfusár