blaðið - 31.08.2006, Síða 26
26
FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2006 blaðið
menntun
menntun@bladid.net
Sameiginlegt verkefni
Menntun og velferð nemenda er sameiginlegt verkefni heimila og
skóla og samstarfið þarf að byggjast á gagnkvæmri virðingu, gagn-
kvæmu trausti, samábyrgð og gagnkvæmri upplýsingamiðiun.
(Úr aöalnámskrá grunnskóla)
Lag og texti: Magnús Eiríksson
Gamli skólinn
Mynd/Ásdis Ásgeirsdóttir
Þar stóð enska, landafræði og íslenska,
danska, franska, leikfimi og latína.
Stóðum öll í röð á bak við rimlana,
skólasöngur glumdi um alla gangana.
Misupplagðir, lúnir lærimeistarar
okkur leiddu gegnum kennslustundirnar.
Flest við þekktum skammarkrókinn og skulfum lítið eitt,
ef við illa lesin kunnum ekki neitt,
ef við illa lesin kunnum ekki neitt.
Svo var tekið próf á miðju vorinu,
vinna mikil til að halda sporinu.
Danska, franska, leikfimi og latína,
lærdómurinn tók þá oft á taugina.
Gamli skólinn genginn er til náða um sinn.
1 gamla skólann leitar stundum hugur minn.
Ef ég gamlar skólaskræður í hirslum mínum finn
djúpt í huga mínum hringir bjallan inn.
Djúpt í huga mínum hringir bjallan inn.
Djúpt í huga mínum hringir bjallan inn.
Djúpt í huga mínum hringir bjallan inn.
Góðan daginn, gamla gráa skólahús.
Menntaveginn gekk ég reyndar aldrei fús.
Eina glætan daga langa í tilverunni var
þegar skólabjallan hringdi í frímínúturnar.
Lýsi og söngur á göngum
Lagið Gamli skólinn eftir
Magnús Eiríksson tónlist-
armann vekur upp góð-
ar minningar í hugum
margra enda fjallar lagið
um skólaárin, tímabil sem flestir
tengja sakleysi og gleði bernskunn-
ar. Magnús segir að texti lagsins
sé að einhverju leyti byggður á eig-
in reynslu eins og allir textar sem
hann geri.
Sjálfur sleit Magnús barnskónum
í Laugarnesskóla og segir að hann
geti því verið gamla gráa skólahúsið
sem sungið er um í laginu. „Það má
segja að þetta hafi verið svolítið gam-
aldags skóli þar sem lýsi var hellt of-
an í mannskapinn og sungið frammi
á göngunum,“ segir Magnús og tek-
ur undir að þetta hafi verið svolítið
öðruvísi en skólar nú til dags.
Tónlistarkennslan á háu plani
Þær námsgreinar sem heilluðu
Magnús mest á þessum árum voru
saga og íslenska en hann lætur einn-
ig sérstaldega vel af tónlistarkennsl-
unni. „Ég held að tónlistarkennsla
í Laugarnesskóla hafi verið á mjög
háu plani og við höfðum góða tónlist-
arkennara. Ingólfur Guðbrandsson
kom þar fyrst við sögu og síðar Krist-
ján Edelstein sem var tónlistarkenn-
ari þegar ég var að byrja þarna. Við
fengum að spila á slagverk í tímum,
okkur var kenndur nótnalestur og
ég held að þeir hafi verið langt á und-
an sinni samtíð, þessir karlar,“ segir
Magnús sem er ekki frá því að þess-
ir menn hafi ýtt undir áhuga hans
á tónlist. „Þeir hafa ábyggilega átt
einhvern þátt í því eins og svo margt
annað. Ég byrjaði samt mjög seint
að spila á hljóðfæri og hef líklega ver-
ið orðinn 14 til 15 ára þegar ég fór að
sinna því af einhverri alvöru.“
Á undan jafnöldrunum
Magnús segir að hann hafi lært
ungur að lesa og því verið á undan
jafnöldrum sínum þegar hann hóf
skólagöngu. „Ég fór í tímakennslu
og var byrjaður að lesa sex ára gam-
all og lét mér bara leiðast fyrstu tvö
árin í skólanum vegna þess að ég
kunni það sem var verið að kenna.
Maður var þá bara að teikna á með-
an hinir voru að læra. Mikið af þess-
ari kennslu var líka bara ítroðsla sem
var hundleiðinleg," segir Magnús en
bætir við að kennararnir hafi reynd-
ar verið mjög misjafnir og mörgum
hafi tekist að gæða kennsluna lífi og
gera viðfangsefnið áhugavert.
Maggi hrekkjusvín
Magnús er ekki frá því að það hafi
verið svolítill prakkari í honum á
þessum árum. „Ég held að ég hljóti
að hafa verið svolítið erfiður því að
einhvern tíma sveif á mig hugguleg
kona á Hótel Sögu og sagði: „Maggi
hrekkjusvín'. Eitthvað hafði hún fyr-
ir sér í því þar sem hún hafði verið
með mér í skóla,“ segir Magnús sem
er samt búinn að steingleyma hvert
tilefnið var enda langt um liðið.
„Það hafa bara verið einhver prakk-
arastrik. Ég held að ég hafi ekki ver-
ið neitt erfiðari en aðrirsegir Magn-
ús Eiríksson að lokum.
einar.jonsson@bladid.net
Rannsóknir
og þróun
Helgina 20. til 21. október
stendur Rannsóknarstofnun
Kennaraháskóla (slands
fyrir málþingi um rannsóknir,
nýbreytni og þróun undir yfir-
skriftinni Hvernig skóli? Skil-
virkur þjónn eða skapandi afl.
Þar verður rýnt í stöðu skóla-
stiganna og jafnframt skoðuö
sú gróska sem ríkir í rann-
sóknum, þróunarverkefnum
og nýbreytni í skólastarfi.
Þeir sem vilja kynna verkefni
sín á málþinginu verða að
senda inn umsókn fyrir 5. sept-
ember á netfangið malthing®
khi.is.
Málþingið er öllum opið en
á það kostar. Markhópurinn
er einkum kennarar, kennara-
nemar, foreldrar, stjórnendur
og aðrir sem áhuga hafa á
skólamálum, uppeldi, þjálfun,
frístundastarfi og samstarfi
heimila og skóla.
Braut fyrir þá sem eiga ekki greiða leið í framhaldsskóla
Brú milli skólastiga
Tveggja ára framhaldsskólabraut
hefur verið sett á laggirnar í Lækj-
arskóla í Hafnarfirði í samstarfi við
Flensborgarskólann og Iðnskólann í
Hafnarfirði.
Magnús Baldursson fræðslustjóri
Hafnarfjarðar segir að brautin sé
ætluð þeim sem ekki eigi greiða leið
inn í framhaldsskóla og þurfi önnur
úrræði en hefðbundið nám. „Við
höfum sett af stað það sem við köll-
um fjölgreinanám þar sem við erum
með nemendur sem hentar kannski
bóknámið ekki alveg eins vel og
verknámið. Þeir geta svo sem alveg
lært en þurfa bara að gera það hægar
eða á allt öðrum forsendum en kerf-
ið gerir ráð fyrir," segir Magnús.
Skila sér ekki í framhaldsskóla
Fjölgreinanámið var sett á laggirn-
ar haustið 2004 og er núna fyrir nem-
endur í 9. og 10. bekk. Mikil þörf hef-
ur verið fyrir framhaldsnám fyrir
þá þar sem þeir hafa ekki skilað sér í
framhaldsskólana.
Magnús tekur undir að námið
verði eins konar brú milli grunn-
skólans og framhaldsskólanna. Um
tíu nemendur byrja í náminu sem
Magnús segir að annars væri hætt
við að fyndu sig ekki í skólakerfinu.
„Krakkarnir bíða spenntir eftir að
geta byrjað, sérstaklega þeir sem
hafa verið í fjölgreinanáminu og sjá
kannski ekki annað framhald en
eitthvað þessu líkt.“
Tilraun til fjögurra ára
Að sögn Magnúsar hafa nemendur
Ný framhaldsskólabraut
Þorgeröur Katrín Gunnarsdóttir
menntamátaráðherra og Lúðvík
Geirsson bæjarstjóri Hafnarfjarðar
undirrituðu i fyrradag samning um
framhaldsskólabraut í Lækjarskóla í
Hafnarfirði.
í fjölgreinanáminu forgang í fram-
haldsskólabrautina en síðan sé það
opið öllum sem séu í svipaðri stöðu.
„Við hugsum þetta fyrst og fremst
fyrir nemendur frá okkur í Hafnar-
firði en svo er aldrei að vita nema
það opnist fleirum.“ Um tilraun
til fjögurra ára er að ræða og segir
Magnús að önnur sveitarfélög muni
ábyggilega fylgjast vel með hvernig
til takist. Honum er ekki kunnugt
um að nokkuð þessu líkt hafi verið
reynt áður. „Þetta mun náttúrlega
þróast á næstu vikum, mánuðum
og misserum. Við bindum vonir
við að þetta takist og að með þessu
opnist síðan leiðir fyrir þessa nem-
endur inn í hefðbundið framhalds-
nám og inn í aðra framhaldsskóla,“
segir Magnús Baldursson að lokum.
einar.jonsson@bladid.net