blaðið - 31.08.2006, Page 28
28
FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2006 blaðiö
Te í staðinn fyrir kaffi
Te hefur lengi þótt öllu heilsusamiegri drykkur en kaffi. Mikið
úrval tegunda er til af þessum góða drykk í dag, en það er af sem
áður var er Melrose var eina teið sem íslendingar þekktu.
Til að hafa góð áhrif á heilsuna er hollráð að minnka kaffi-
drykkju eða skipta henni alfarið út með því
að fá sér tebolla í staðinn. Fjórir til
sex bollar á dag af góðu tei, geta
fljótlega haft jákvæð áhrif á kropp-
inn. Til marks um þetta nýleg
rannsókn vísindamanna sem
könnuðu hversu heilnæmur
drykkur te er. Eitt af því sem
vakti ahygli var sú niðurstaða
vísindamannanna að teið
væri ekki aðeins betra fyrir
skrokkinn en kaffi heldur væri
það líka betra
en vatn!
Sérstak-
lega hefur
grænt te góð
áhrif, en það bætir
súrefnisflæði í
líkamanum og gefur
aukinn kraft. Því er
ekki hægt annað en
að mæla með því að fólk
dragi úr kaffidrykkju og
drekki te þess f stað.
Hringdu og pantaðu
prufutíma og líkamsmælingu
Curves, Bœjarlind 12- Sími 566 6161 - curves@simnet.is
Ný líkamsrœkt
30 mínútur
CurVe$
Thc power to amazc yoursclf."
Jón Einarsson, grasalæknir iníunda ættlið, segir
íslenskt jurtaseyði gott við meltingartruflunum.
,
Jón Einarsson er grasalæknir i niunda ættlið "
Jurtaseyði gegn
meltingartruflunum
M
argir kannast við að
fá meltingartruflan-
ir eða annarskonar
kvilla í kjölfar notk-
unar pensilíns. Al-
gengt er að lítil börn fái niðurgang
með tilheyrandi brunasárum í kjöl-
far pensilínkúra og oft getur verið
erfitt að vinna bug á þessu. Foreldr-
ar hafa reynt margar aðferðir og
prófað sig áfram með mataræði til
að stöðva meltingartruflanir barna
sinna en þetta vill oft verða flókið
og erfitt ferli. Tvennt virðist þó duga
vel í baráttunni við meltingartrufl-
anir. Annars vegar mjólkursýrugerl-
ar og hins vegar íslensk jurtaseyði.
„Við pensilínnotkun deyja oft vin-
veittar bakteríur í meltingarveginum
um leið og pensilínið vinnur bug á
sýklum,“ segir Jón Einarsson, grasa-
læknir í níunda ættlið og sonur Ástu
Erhngsdóttur grasalæknis.
„Flestir sem taka pensilín passa sig
því oftast að taka acidolphilus-gerla
með, en þeir eru þekktir fyrir það að
hjálpa meltingarveginum að ná sér
á strik og vega upp á móti þessum
áhrifum. Acidolphilus eru mjólkur-
sýrugerlar sem til dæmis er hægt að
fá í töfluformi, í AB mjólk eða duft-
formi,“ segir Jón.
Hefur hjálpað mörgum
„Hjá börnum er því miður algengt
að niðurgangur fylgi í kjölfar pensi-
línnotkunar. Vandamálið getur orðið
langvarandi og hvimleitt því fólk á
stundum erfitt með að stöðva niður-
ganginn. Við niðurgangi og öðrum
meltingartruflunum, eru þó til mjög
góðar íslenskar jurtir sem laga þetta
yfirleitt á fáeinum dögum. Ég hef
reyndar hjálpað ótrúlega mörgum
að sigrast á vandanum,“ segir Jón fag-
mannlega.
Bleiuskiptingum fækkar
„Áður en fólk hafði tök eða skilning
á því að nota mjólkursýrugerla til að
vinna á móti aukaverkunum pensi-
líns voru ráðin ekki mörg. Sumir
áttu við allskonar magaverki og melt-
ingartruflanir að stríða lengi á eftir,”
segir Jón og bætir við að hjá börnum
geti komið upp brunasár á hörund-
inu undan hægðunum og þurfi þá að
bera græðandi á sárin. „Sem betur fer
eru börn samt oftast mjög fljót að ná
sér um leið þau fá eitthvað við þessu.
Það er til gott íslenskt jurtaseyði sem
dugar vel gegn niðurgangi. Yfirleitt
tekur ekki nema eina eða tvær vikur
að kippa þessu í liðinn. Þegar barn
hefur haft niðurgang vikum eða mán-
uðum saman, þá eru tvær vikur ekki
Endalaus orka!
Yfir 200 bráðholiir ávaxta- og grænmetissafar
sem bæta,
grenna
og kæta
. V ' '
Endalaus
orka!
Víir 200 brádhollir ávaxta- og Kwnmctissafar
Loksins má finna I einni bók Ijúffenga drykki þar sem
hver og einn hefur sin sérstöku áhrif.
* fyrirbyggjandi og stuðia að baottri heilsu
* eiturefna- og vatnsiosandi
* kjðmlr fyrir smáfólkiö
’ frábær vlðbót I veisiuna
Endalaus orka er bók um holla Irfnaðarhætti,
fagurfræöi og Iffsgleði.
Hi
Salka
Armúla 20 • s. 552 1122
vrww.saikaforlag.i5
Jóhann Ingi Stefánsson, þjálfari
Látið letina ekki aftra ykkur
Nú fer veturinn senn að leggjast
yfir landsmenn með öllum sínum
þunga, kulda og myrkri. Margir
kvíða eflaust þessum tíma eftir
hið stutta sumar og langar helst að
hjúfra sig fyrir framan sjónvarpið
nartandi í kökur uns sólin rís á ný.
Jóhann Ingi Stefánsson, þjálfari
í Iceland Spa & Fitness, segir haust-
ið prýðilegan tíma til þess að hefja
líkamsrækt. „Eitt helsta vandamál
fólks er að setjast niður fyrir fram-
an sjónvarpið að loknum vinnudegi
og sitja þar alltof lengi. Ég ráðlegg
fólki oftast að fara fyrr að sofa og
vakna snemma. Morgnarnir eru
góður tími til þess að hreyfa sig og
mæta svo ferskur til vinnu.“ Sjálfur
vaknar Jóhann Ingi fyrir allar aldir
enda þarf hann að mæta snemma
til vinnu sinnar. Hann segir það
lélega afsökun að þykja líkamsrækt
leiðinleg.
„Með þeirri fullyrðingu er bara
verið að hylma yfir letina. Það er
svo margt skemmtilegt hægt að
gera í félagsskap við annað fólk.
Mannslíkaminn er einfaldlega
þannig hannaður að hann þarf
mikla hreyfingu á hverjum degi.
Við megum ekki vanrækja það,“
segir Jóhann Ingi að lokum.
Ssfelr
OGA
■mám