blaðið - 31.08.2006, Side 31
blaðið FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2006
31
Petrov á leið til Villa
Harry Redknapp, stjóri Portsmouth, segist hafa tapað kapphlaupinu um Stilian Petrov, leik
mann Celtic. „Það er nokkuð Ijóst að Petrov er á leiðinni til Aston Villa. Við óskum honum
því bara alls hins besta,“ sagði Redknapp i gær. Búlgarinn er verðlagður á sjö milljónir
punda en talið er að Celtic ætli að kaupa Thomas Gravesen frá Real Madrid i hans stað.
Blaðið lítur yfir feril Roy Keane sem hefur tekið við stjórn Sunderland
■ Traðkaði á mótherjunum ■ Varð uppsiga við landsliðsþjálfara Ira
Roy Keane, fyrrum fyrir-
liði Manchester United
og írska landsliðsins, er
orðinn knattspyrnustjóri
í. deildarliðsins Sunderland. Keane
skrifaði undir samning við félagið
á mánudag og var samningurinn
kynntur á blaðamannafundi á heima-
velli liðsins á þriðjudag.
Ljóst er að írans knáa bíður verð-
ugt verkefni en Sunderland, sem féll
úr úrvalsdeildinni í vor, tapaði fyrstu
fjórum leikjum sínum í í. deildinni
og er á meðal neðstu liða. Keane
tekur við af Niall Quinn, fyrrum sam-
herja sínum hjá írska landsliðinu,
sem hefur stýrt liðinu samhliða þvi
að vera framkvæmdastjóri.
Sigursæll fyrirliði
Sem táningur lék Keane með áhuga-
mannaliðinu Rockmount frá heima-
bænum Cork og skrifaði svo undir
samning við írska áhugamannaliðið
Cobh Ramblers árið 1989. Ári síðar,
þegar Keane var 19 ára gamall, komu
útsendarar frá Nottingham Forest,
sem þá var undir stjórn Brians Clo-
ugh, auga á Keane og keyptu hann
á tuttugu þúsund pund. Hann var
fljótur að láta til sín taka hjá Forest
og þrátt fyrir ungan aldur varð hann
fastamaður í byrjunarliðinu, sem
þýddi að enski landsliðsmaðurinn
Steve Hodge þurfti oftar en ekki að
verma tréverkið.
Eftir þrjú tímabil í Nottingham var
Keane keyptur til Manchester United
á 3,75 milljónir punda, sem þá var
metfé. Hann fór beint í byrjunarliðið
og lék þar við hlið enska landsliðs-
mannsins Paul Ince. Þegar Eric Can-
tona lagði skóna á hilluna árið 1997
varð Keane fyrirliði liðsins. Hann var
hins vegar frá mestallt tímabilið 1997-
1998 vegna meiðsla sem hann hlaut
eftir viðskipti sín við Alf Inge Haa-
land, leikmann Leeds. Á þeim tíma
var United í efsta sæti deildarinnar
en heldur tók að halla undan fæti og
liðið vann engan bikar þetta tímabil.
Fullt nafn:
Roy Maurice Keane.
Fæðingarstaöur:
Cork á frlandi.
Hæð:
180 cm.
Ferill:
1989- 1990
Cobh Ramblers.
1990- 1993
Nottingham Forest (114).
1993-2005
Manchester United (481).
2005-2006
Celtic (10).
1991- 2005
Irska landsllðið (66).
Helstu titlar með Manchester United:
Enskur meistari:
1994, 1996, 1997, 1999, 2000, 2001
2003.
Enskur bikarmeistari:
1994,1996,1999,2004.
Evrópumeistari:
1999.
IHN0TSKURN
Næsti vetur var öllu betri fyrir
Rauðu djöflana en þá lönduðu þeir
þrennunni margfrægu; Evrópumeist-
aratitlinum, Englandsmeistaratitl-
inum og bikarmeistaratitlinum. Ke-
ane var reyndar í banni í úrslitaleik
Meistaradeildarinnar vegna gulra
spjalda sem hann hafði hlotið og
seinna sagðist hann aldrei geta litið
á sjálfan sig sem Evrópumeistara þar
sem hann hefði ekki leikið úrslita-
leikinn. Engum dylst þó að hann var
einn af lykilmönnum liðsins í leið-
inni að titlinum. Keane átti svo eftir
að leiða United til níu stórra titla í við-
bót sem gerir hann að sigursælasta
fyrirliða liðsins frá upphafi.
Skaphundur
Þrátt fyrir að hafa ávallt látið lítið
fyrir sér fara utan vallar var Keane iðu-
lega að lenda í umdeildum atvikum á
knattspyrnuvellinum. Á ferli sínum
hjá Manchester United var honum
vikið af velli ellefu sinnum.
Árið 1995 var hann rekinn af
velli fyrir að traðka á Gareth
Southgate oghlauthannfyrir
vikið þriggja leikja bann og
fimm þúsund punda sekt.
Margir kölluðu Keane hrotta
eftir atvikið og þeim hefur
vafalaust mislíkað enn
meir atvikið sem átti
sér stað 2001.
Þá mættust Keane
og áðurnefndur Haa-
land aftur, í fyrsta
sinn frá því að þeim
lenti saman 1998.
Keane braut þá svo
illa á Norðmann-
inum að hann
hlaut alvarleg
meiðsli og var
frá í langan tíma.
Keane fékk fimm 1 e i k j a
bann og 150 þúsund punda sekt
fyrir athæfið. Haaland lagði
skóna á hilluna skömmu síðar
en sagði ástæðuna vera þrálát
meiðsli, en ekki þeir áverkar sem
hann hefði hlotið eftir tæklingu
Keane.
í upphafi leiktíðarinnar 2002 var
hann aftur sektaður um 150 þúsund
pund og hlaut þriggja leikja bann,
þá fyrir að gefa landa sínum Jason
McAteer olnbogaskot. Keane hafði
hins vegar bókað sig í aðgerð vegna
meiðsla á mjöðm sem hrjáðu hann
og tók því út bannið á meðan hann
jafnaði sig eftir aðgerðina. Gagn-
rýndu fjölmiðlar Enska knattspyrnu-
sambandið mjög fyrir að setja hann í
bann i leikjum sem hann hefði hvort
sem var ekki getað leikið.
Keane lék 66 leiki fyrir írska lands-
liðið og var löngum lykilmaður þess.
í undankeppni HM 2002 átti hann,
að öðrum ólöstuðum, stærstan þátt
í þvi að írar tryggðu sér sæti í loka-
keppninni á kostnað liða á borð við
Hollendinga. Nokkrum vikum fyrir
mótið kastaðist hins vegar í kekki
rnilli Keane og landsliðsþjálfarans
Mick McCarthy eftir að sá fyrrnefndi
gagnrýndi undirbúning liðsins
fyrir mótið. Eftir að McCarthy
sagði á liðsfundi að Keane væri að
gera sér upp méiðsli reiddist hann
landsliðsþjálfaranum gríðarlega
og sagði hann óhæfan knatt-
spyrnustjóra. McCarthy
ákvað í kjölfarið að
senda Keane heim og
tók hann engan þátt
í lokakeppninni.
Keane sagðist
aldrei myndu
leika aftur
fyrir Irlands
hönd á meðan
M c C a r t h y
væri við
stjórnvölinn.
Árið 2003
var Brian
Kerr ráð-
inn lands-
liðsþjálfari
og sneri Keane aftur í
IvJP Kveðjuleikurinn Roy
Keane gengur inn á Old :
Trafford í hinsta sinn.
"r 1 W.<«*•x wK '
.e
landsliðið í kjölfarið. Eftir að írum
mistókst að komast i lokakeppni HM
2006 ákvað hann svo að hætta að
leika með landsliðinu.
Brottför frá Manchester
Keane vann sjö Englandsmeistara-
titla, fjóra bikarmeistaratitla og Evr-
ópumeistaratitil á tólf ára ferli sínum
hjá Manchester United. Á þessum
tíma hlaut hann fjölda viðurkenn-
inga fyrir afrek sín og má nefna að
árið 2000 var hann valinn besti leik-
maður ensku úrvalsdeildarinnar og
knattspyrnugoðið Pele valdi hann á
lista sinn yfir 100 bestu lifandi knatt-
spyrnumenn sögunnar.
Keane var samningsbundinn
Rauðu djöflunum til vorsins 2006.
Síðasta leiktíð fór hins vegar ekki
eins vel af stað hjá liðinu og menn
höfðu vonast til og eftir 4-1 tap gegn
Middlesbrough gagnrýndi Keane
samherja sína harðlega í samtali við
sjónvarpsstöð Manchester United og
sagði þá duglausa. Fór hann ófögrum
orðum um einhverja þeirra og fékk
Darren Fletcher hvað versta útreið
hjá fyrirliðanum. Alex Ferguson,
sem hafði áður lýst því yfir að hann
vildi að Keane yrði eftirmaður sinn
í starfi stjóra liðsins, var ekki sáttur
við þessa hegðun hans. Þá höfðu um-
mæli Keane, um að illa hefði verið
staðið að æfingaferð United til Portú-
gals um sumarið og hún verið ófag-
mannleg, vakið litlu meiri ánægju.
Þann 18. nóvember 2005 var til-
kynnt, öllum að óvörum, að Roy Ke-
ane væri farinn frá Manchester Un-
ited. Síðasti leikur hans fyrir Rauðu
djöflana var gegn erikifjendunum
í Liverpool sem endaði með marka-
lausu jafntefli. Keane fótbrotnaði
í leiknum og var í nokkurn tíma
að jafna sig af meiðslunum. 14. des-
ember var svo greint frá því að Keane
hefði gengið til liðs við skoska félagið
Celtic. Hann varð Skotlandsmeist-
ari og deildarbikarmeistari með lið-
inu en þegar tímabilinu lauk lagði
hann skóna á hilluna vegna mjaðma-
meiðsla eftir að hafa ráðfært sig við
lækna.
Þrátt fyrir að Keane hafi ekki skilið
við United eins og best hefði verið á
kosið ákvað félagið að halda honum
kveðjuleik og var hann háður á Old
Trafford 9. maí. Keane lék fyrri hálf-
leikinn með Celtic og síðari hálfleik í
sinni gömlu stöðu hjá United. Leikur-
inn laðaði að sér fleiri aðdáendur en
höfðu nokkurn tíma mætt á kveðju-
leik leikmanns á Englandi.