blaðið - 31.08.2006, Síða 38
38
FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2006 blaöiö
HEYRST HEFUR...
Starfið mitt
Heimspekingur á ritstjórastól
SU DOKU talnaþraut
Katn'n Júlíusdóttir, alpingismaðnr
Rætt var um inálefni Kárahnjúkavirkjunar á fundi
iðnaðarnefndar í gær. Valgerður Sverrisdóttir,
fyrrverandi iðnaðarráðherra, kaus að mæta ekki
á fundinn þrátt fyrir að stjórnarandstaðan hefði
óskað sérstaklega eftir því
Eru þetta nýju skórnir sem þú
keyptir á þrjúhundruðkall
andres. magnusson@bladid. net
Tímarnir breytast og menn-
irnir með. Athafnamaður-
inn Sigfús Sigfússon hefur
þannig ávallt
verið kenndur
við sitt gamla
fjölskyldufyrir-
tæki og jafnan
nefndur Sigfús í
Heklu. Nokkuð er
þó um liðið síðan fjölskyldan
séldi sinn hlut í fyrirtækinu
og berast nú þær stórfréttir í
bílabransanum, að Sigfús sé
kominn á Toyota Landcruiser.
0 tempora, o mores...
Samruni Dagsbrúnar og
Senu (sem áður nefndist
Skífan) hefur verið heimilaður
af áfrýjunarnefnd samkeppn-
ismála vegna formgalla, þó
samkeppnisyfir-
völd telji að hann
muni hindra
virka samkeppni.
jflh: H>ns vegar er alls
1 óvíst hvort það
nái að líma samrunann sam-
an, því Árni Pétur Jónsson,
hinn nýi forstjóri Dagsbrúnar,
leitar allra leiða til þess að
laga fjárhagsstöðu fyrirtæk-
isins hratt og örugglega eftir
stórfenglegt og fullkomlega
ófyrirséð 1.500 milljóna króna
tap á síðasta misseri. Meðal
annars er verið að reyna að
koma ýmsum einingum fyrir-
tækisins í verð og þar kemur
Sena sterklega til álita...
*
Arni Johnsen þykir hafa
tekið öflugan snúning á
félögum sínum í Sjálfstæðis-
flokknum með því að fá upp-
reist æru, en fyrir
vikið er honum
ekkert að vanbún-
aði við að taka þátt
í prófkjörshapp-
drætti flokksins í
Suðurkjördæmi. Ef afverður.
Sjálfstæðismenn óttast umræð-
una um fortíð Árna mjög og
vilja sumir grípa til uppstill-
ingar. En verði Árna útskúfað
þar segja stuðningsmenn
hans að sérframboð sé nánast
sjálfgefið. Ekki er gefið að það
skili Árna á þing, en það gæti
laskað Sjálfstæðisflokkinn í
kjördæminu engu síður en
að hafa hann með. Andstæð-
ingar hans segja ekkert af
þessu koma á óvart og minna
á hvernig hann blekkti sína
bestu vini á Morgunblaðinu
þegar stóra þéttidúksmálið
stóð sem hæst...
~\T æntanlega munu sam-
V fylkingarmenn græða
mest á slíkum vandræðum
íhaldsins í Suðurkjördæmi,
en senn líður að
því að þeir ákveði
hvernig skipa skal
listann. Margrét
Frímannsdóttir
mun eftir sem
áður sækjast eftir að leiða list-
ann af alkunnri baráttugleði,
en hins vegar telja margir að
Björgvin G. Sigurðsson, sem
nú er í þriðja sæti, muni sækja
upp listann og geti hann vel
náð 2. sætinu af Lúðvíki Berg-
vinssyni, sem missti nokkurn
styrk við ósigur Vestmanna-
eyjalistans í sveitarstjórnar-
kosningunum í vor...
fólk
folk@bladid.net
Smáborgarinn
ÞJÓÐHYGGJAN
í BEINNI
Smáborgarinn er uppruna
sínum trúr og heillast af hvers
konar dægursveiflum mannlegs
samfélags, ekki síst ef þær eru
blandnar þjóðhyggju þeirri, sem
hann er nýbúinn að uppgötva
að er inntak lífs hans. Hann
heldur alltaf með landsliðinu,
nema þegar það tapar. í enska
boltanum heldur hann líka með
því (slendingaliði sem er að
keppa þann daginn. Hann hefur
meira að segja lagt sig eftir
þýskum handbolta vegna þess
að þar þrífast (slendingalið.
Lengst náði þetta þó þegar
Smáþorgarinn hélt því fram
á spænskri knæpu að hann
vissi ekkert tónverk fremra
en Vespertine með Björk. Að
vísu spillti það eilítið fyrir að
sakir drykkju eða fávísi minnti
mig að þessi magnþrungna
skífa héti Aspartam og það var
óneitanlega mjög óþægilegt að
uppgötva að maður hefði rangt
fyrir sér eftir að hafa rifist um
þetta hástöfum við gersamlega
freðinn spanjóla drykklanga
stund. En ég held nú samt upp
á Vespertine. Get meira að
segja haldið upp á Sigur Rós
hasslaust ef því er að skipta.
Við eigum nefnilega að standa
með okkarfólki.
Þess vegna hefur Smáborg-
arinn látið sig hafa það að
vaka eftir Magna undanfarnar
miðvikudagsnætur. Og svo aftur
fimmtudagsnætur. Af sömu
ástæðum lét hann (ég) sig hafa
það að senda sama SMSið 46
sinnum til stuðnings Magna. Og
til þess að vera alveg viss fór
ég líka á vefinn og kaus Magna
eins oft og ég entist til þess
að skrifa Y688PT93 og ámóta
þvaðurtil þess að kosninga-
kerfið héldi ekki að ég væri vél.
Til þess eins að fylgjast með
móðurtölvu Rockstar Sup-
ernova bráðna í beinni.
Skyldu mín atkvæði ekki teljast
með? Það er nefnilega stærsta
áhyggja þessa þjóðhyggna
smáborgara: að í hinu stóra
samhengi, á alþjóðavettvangi,
í samfélagi þjóðanna, skipti
rödd hans og Islands engu
máli. En Smáborgarinn mun
samt standa með Magna, rödd
(siands, hvað sem á dynur..
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Myndaðist sprunga milli Valgerðar
og iðnaðarnefndar?
„Þaðsem útaf stendureftir þennan fund er aðfásvörfrá Valgerði hvernig þetta mál
fór allt saman fram á sínum tíma. Hún hefur verið tvísaga í málinu í fjölmiðlum þannig
að segja má að það hafi myndast sprunga milli hennar og nefndarinnar.
ngB
eftir Jim Unger
11-3
Sveinn Birkir Björnsson tók nýver-
ið við ritstjórn The Reykjavík Grape-
vine af Bart Cameron sem heldur
til annarra starfa í heimalandi sínu
Bandaríkjunum. Sveinn Birkir segir
að starfið leggist vel í sig og að hann
hafi ekki í hyggju að gera neinar
stórkostlegar breytingar á blaðinu.
„Það verða náttúrlega alltaf einhverj-
ar smábreytingar með nýju fólki en
það hefur ekki verið plönuð nein
bylting."
Nokkrar breytingar hafa orðið á
starfsfólki tímaritsins á undanförn-
um misserum og nú síðast bættist
blaðakonan Virginia Zech í hópinn
en hún hefur meðal annars skrifað
fyrir hinn merka miðil The Oni-
on. „Hún kom hingað í sumarleyfi
í sumar og sá blaðið og fannst það
svo gott og skemmtilegt að hún
hringdi í okkur og sótti um vinnu,"
segir Sveinn Birkir.
Óttast ekki samkeppnina
Fyrir nokkrum misserum var
tímaritinu Reykjavík Mag hleypt
af stokkunum en það er líkt og
Grapevine skrifað á ensku og höfð-
ar einkum til útlendinga. Sveinn
Birkir segir að hann óttist ekki
samkeppnina og að Grapevine
muni halda sínu striki. „Þetta eru
ólík blöð að mörgu leyti. Reykjavík
Mag er byggt upp á styttri greinum
og styttri umfjöllun en við gerum
yfirleitt og einblínir kannski meira
á miðbæjarlífið, tísku, menningu
og þess háttar á meðan við erum
meira alhliða menningarblað ef
svo má segja. Við höldum áfram
okkar hlutverki og þeir sinna sínu
og ég sé enga ástæðu til að þessi
blöð geti ekki verið áfram á sama
markaði. Það hafa aldrei verið
fleiri ferðamenn en í ár og ég held
að markaðurinn standi alveg undir
þeim.“
Reykjavík Grapevine var i fyrstu
aðeins sumarvinna fáeinna ein-
staklinga en hefur síðan undið upp
á sig. Nú kemur tímaritið út allan
ársins hring og að auki hefur fyr-
irtækið staðið að bókaútgáfu, tón-
leikahaldi og öðrum viðburðum.
„Ég geri fastlega ráð fyrir því að
fyrirtækið stækki og öll þess starf-
semi. Það er eðli fyrirtækis sem
þessa að reyna að þenja sig út án
þess að ég komi beinlínis að stefnu-
mótun þess. Við reynum að bæta í
frekar en hitt,“ segir Sveinn Birkir.
Ekki (jallað um Fouca-
ult eða Nietzsche
Sjálfur hóf hann störf á tímarit-
inu fyrir um ári og segir að það
hafi verið hans fyrsta starf í blaða-
mennsku. „Ég var búinn að vera
fimm ár í háskólanum að læra
heimspeki og fór svo í mastersnám
í blaða- og fréttamennsku síðast-
liðið haust og byrjaði samtímis
að skrifa fyrir Grapevine,“ segir
Sveinn Birkir og bætir við að hann
hafi verið að leita að einhverjum
farvegi sem hann gæti beint heim-
spekimenntun sinni í.
Sveinn Birkir er ekki eini hugs-
uðurinn á ritstjórninni því að tveir
blaðamenn til viðbótar, Haukur
Magnússon og Steinunn Jakobs-
dóttir voru í heimspekinámi á
sama tíma. Hann telur þó ólíklegt
að þess muni sjá stað á síðum blaðs-
ins. „Ég á ekki von á að það muni
gera sig vel meðal lesenda ef við er-
um mikið að fjalla um Foucault eða
Nietzsche en þetta hefur kannski
einhver áhrif á vinnubrögðin,“ seg-
ir Sveinn Birkir Björnsson að lok-
um.
hoskuldur@bladid. net
O Jlm Unger/dlst. by Unlted Medla, 2001
aæuSf;
Nýr ritstjóri Reykjavík Grapevine Sveinn Birkir
Björnsson hefur ekki íhyggju að bylta Grapevine
og óttast ekki samkeppnina við Reykjavík Mag.
Lausn síðustu gátu:
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum
frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig
að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða
lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni innan hvers níu
reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út
frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins:
2 3 4
6 7 5 8 3
6 5
5 2 9 7 4
9 7 8 1
7 6 2
1 9
4 3 5 8
1 4 2
1 8 6 1 2 7 9 5 3
1 3 5 8 4 O 2 6 7
7 9 2 3 5 6 1 4 8
2 1 4 9 6 8 3 7 5
5 6 3 7 1 4 8 9 2
3 7 9 2 3 5 4 1 6
5 2 8 5 7 1 6 3 4
5 5 1 4 8 3 7 2 9
J 4 7 6 9 2 5 8 1