blaðið - 09.09.2006, Qupperneq 16
16 LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 2006
blaAiA
fólk
foik@bladid.nei
HVAÐ FINNST ÞER?
Hrundu tár í kaffið
yfir ákvörðuninni?
,Ja, en voru gieðitár.*
Arni M. Mathiei.cn, fjármáJaráðhcrra
Arni tilkynnti stuðningsmonnum sinum í Suðvesturkjordæmi á fundi i
g*r að hann hyggðist soðla um og bjóöa sig fram i Suðurkjórdæmi.
Fundurinn fdr fram á veitingahúsinu Kaffitár i Reykjanesbæ.
Hvað bar hæst?
BARNABÍLSTÓLAR
HIÁ OKKUR FÁiÐ ÞIÐ MIKIÐ ÚRVALÁF BARNABÍLSTÓLUM
Skeifunni 8 - s. 568 2200 - Smáralind - s. 534 2200
______www.bobysom.is
Selma Bjömsdóttir, söngkona
Það sló mig að ellefu ára
drengur hafði verið gripinn
með fíkniefni og var að reyna
að selja þau. Svo er mér einnig
ofarlega í minni viðtalið við aust-
urrísku stelpuna sem var í haldi
mannræningja í átta ár og ég er
búin að vera svolitið upptekin
af þvi, eins og heimurinn allur, í
tvær vikur. Siðan er athyglisvert
að fylgjast með dvinandi fylgi
Tony Blairs og að hann sé búinn
að lýsa þvi yfir að hann ætli að
hætta innan árs. Svo var náttúr-
lega skemmtilegt að sjá Davíð
Oddsson í Kastljósinu og sjá að
hann er ekki orðinn skoðanalaus
maður. Annars erum við að fara
að sýna Hafið bláa í Austurbæ nú
um helgina og það er nóg að gera
í kringum það.
Árni Sigfússon, bæjarstjóri
Lok Ljósanæturhátiðar Reykja-
nesbæjar bar hæst i vikunni.
Helgin hafði gengið einstaklega
vel, allt frá fimmtudegi. Um 40
þúsund sóttu hátíðina og við
vorum nánast að fjórfalda ibúa-
fjöldann. Veðrið lék við okkur og
gott skipulag hátíðarinnar kom
í ljós þar sem margir lögðu hönd
á plóg. Á sunnudeginum lukum
við þessu verkefni svo með sam-
kirkjulegri stund og menn gengu
á listsýningar. Það var mjög eftir-
minnilegt og ánægjulegt.
Reynir Traustason, ritstjóri
Ætli það séu ekki þessar
pólitisku hræringar. Ég er
ánægður að sjá að Árni Mathie-
sen fjármálaráðherra ætli að fara
fram í Suðurkjördæmi. Að baki
þessu framboði er væntanlega
einhver dýpri flétta, sem segir
manni það að það eru hræringar
f Sjálfstæðisflokknum út af
uppreist æru Árna Johnsen. Það
er greinilegt að þeir ætla ekki að
hleypa honum þegjandi og hljóða-
laust að aftur. Egbíð spenntur
eftir því að sjá hvað Árni Johnsen
gerir í kjölfarið. Annars er ég á
kafi í þvf að undirbúa útgáfu og
það hefur f raun blokkerað mig
frá flestu öðru.
„Þetta eru myndir af erlendum
verkamönnum á Kárahnjúkum,
teknar fyrir tveimur árum,” segir
Spessi ljósmyndari sem opnaði í gær
ljósmyndasýningu á 101 Galleríi á
101 Hóteli. Myndirnar sem sýningin
er byggð upp á eru afrakstur hug-
dettu sem hann fékk þegar hann
var á Kárahnjúkum að vinna að
öðru verkefni.
„Ég var uppi á Kárahnjúkum að
taka myndir fyrir bók sem ég er að
gera og heitir Location,” segir Spessi.
„Ég var að mynda íverustaði á Kára-
hnjúkum, þetta þorp sem þarna er.”
Spessi var í þorpi verkamannanna
í sólarhring, þar svaf hann og borð-
aði auk þess sem hann mundaði
myndavél sína í gríð og erg.
Meðal þess sem Spessi myndaði
meðan á veru hans þarna stóð var
matsalurinn. „Þetta er salur fyrir
500 manns eða svo, rosa stór, og ég
vildi hafa hann tóman.” Þannig byrj-
aði myndatakan en síðan þegar leið
að hádegi tóku verkamennirnir að
streyma inn og smám saman fylltist
matsalurinn. Meðal þeirra sem föng-
uðu athygli Spessa voru Kínverjarnir
sem unnu þarna. Hann vissi áður
en hann kom þangað að fjöldi Kín-
verja væri á staðnum og það vakti
forvitni hans. „Mér finnst þetta svo-
lítið merkilegt allt saman og dettur
þá í hug að það væri gaman að portr-
ettera kínverska verkamenn. Eg fer
þá að hugsa hvernig ég eigi að gera
það og stilli upp borði með skilrúmi
fyrir aftan til að skreyta myndina,”
segir hann um hugleiðingar sínar á
Kárahnjúkum fyrir tæpum tveimur
árum. Hann fékk síðan Kínverjana
HERMAN
til að setjast við borðið þegar þeir
komu með diskana sína og mynd-
aði þá áður en þeir fóru til borðanna
sem þeir neyttu matar síns við. „Svo
gekk þetta eins og á færibandi. Kín-
verjarnir héldu að þett'a væri partur
af starfsmannaskránni og fóru allir
í röð,” segir Spessi. Skyndilega hug-
dettan var því allt í einu orðin efni
í heila sýningu. „Nú er ég sem sagt
að sýna þetta. Þetta eru myndir frá
virkjanasvæðum en aðeins öðruvísi
vinkill en venjulega.”
Spessi segir myndirnar sem nú
eru á sýningunni vera bónus við
ferð hans. Tilgangurinn var að taka
myndir fyrir bókina Location sem
nú er verið að vinna og kemur út
fyrir næstu jól.
brynjolfur@bladid. net
eftir Jim Unger
„Hann segirJÁ!"
Hvað bar hæst í
vikunni?
9-6
Opnar Ijósmyndasýningu
Spessi i sýningarsalnum áður en gestimir
byrjuðu að streyma að.
© Jm Unger/dist by United Media, 2001
HEYRST HEFUR...
Gunnar I. Birgisson, bæjar-
stjóri í Kópavogi, var ekki
eini Islendingurinn sem brá
sér á tónleika með
Rolling Stones
í Glasgow á dög-
unum. Dágóður
hópur Islendinga
var á leikvang-
inum og þar á
meðal Olafur Helgi Kjartans-
son, sýslumaður á Selfossi og
aðdáandi hljómsveitarinnar
númer eitt hér á landi. Ólafur
var þar ásamt fríðu föruneyti
og líklega er ekki hægt að
hugsa sér betri leiðsögumann á
Stones-tónleikum.
Rolling Stones-aðdáendur
leynast greinilega víða því
að einnig hafa borist af þvi
fréttir að Björg-
ólfurGuðmunds-
son hafí skellt sér
á tónleika með
sveitinni þegar
hann var á ferð
í Horsens í Danmörku fyrr i
mánuðinum. Ekki fylgir þó
sögunni hvort kalla hafi þurft
á slökkviliðið í Horsens líkt og
gerðist l Glasgow eftir að Keith
Richards kveikti sér í sígarettu
á sviði af gömlum vana.
*
Oánægju gætti meðal sumra
vandamanna þeirra tutt-
ugu og tveggja hjartveiku barna
sem fengu að fylgja landsliðum
Islands og Danmerkur út á völl-
inn fyrir leik þeirra á þriðjudag.
Foreldrunum var gert að mæta
með börnin á bakvið heiðurs-
stúkuna. Þeim var hins vegar
ekki hleypt inn til að fýlgjast
með börnum sínum með
íslensku landsliðsmönnunum
eða til að taka af þeim myndir.
Óánægjan varð því enn meiri
þegar þeir sem vildu sjá litlu
hetjurnar sínar þramma með
þeim stóru litu á sjónvarpsskjá,
þar sem leikurinn var í beinni
hjá Sjónvarpinu, því einungis
sáust andlit landsliðsmannanna
en ekki barnanna.
Starfið mitt
Blaöil/Frikki
Biðu stilltir eftir tökunni