blaðið - 09.09.2006, Page 18

blaðið - 09.09.2006, Page 18
blaðið 18 LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 2006 menning@bladid.net v$j Nákvæm athyglisgáfa er yfir- leitt kölluð kaldhæðni af þeim sem ekki hafa hana George Bernard Shaw Afmælisborn dagsins JUSSI BJÖRLINGTENÓR, 1911 JOHN HOWARD GRIFFIN RITHÖFUNDUR, 1920 Hvað er sagnfræði? Það vekur ætíð mikla athygli þegar Sagnfræðingafélag Islands blæs til hádegisfundaraðar sinnar hvert haust. Þema raðarinnar að þessu sinni er: „Hvað er sagn- fræði? Rannsóknir og miðlun“ og mun Þórarinn Eldjárn rithöfundur ríða á vaðið næsta þriðjudag, 12. september, með erindi sem hann nefnir Ljúgverðugleiki. Þórarinn er að góðu kunnur fyrir skáldsögur sínar og vekja þær upp áhugaverðar spurningar um tengsl skáldskapar og sagnfræði, sannleika og lygi. Áhugafólk um sagnfræði ætti ekki að láta fyrirlestrana fram hjá sér fara en þar munu ýmsir merkir menn og mætar konur stíga á stokk, segja frá nýjustu rannsóknum sínum og kljást við spurninguna: „Hvað er sagnfræði?" Fyrirlestrar Sagnfræð- ingafélags íslands eru haldnir í Þjóðminjasafni Islands við Suður- götu. Þeir hefjast stundvíslega kl. 12:05 og lýkur kl. 12:55. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Minningarkort Minningar- og styrktarsjóðs hjartaskjúklinga HjartaHeill sfmi 552 5744 Gfró- og kreditkortþjónusta Fordæmt ástarsamband Það var svolítið sérstök tilfinn- ing að koma aftur í gamla Austur- bæjarbíó með það fyrir augum að fara horfa á leikrit. Þær voru ófáar stundirnar sem maður sat í þessum sölum í daufri ljósbirtu sýningarvél- arinnar og maulaði popp og sötraði kók. Innviðir hússins hafa tekið litl- um sem engum breytingum á þeim árum sem hafa liðið og lítið í sjálfu sér sem gefur til kynna brey tta starf- semi þar innandyra. Þó er nokkuð langt síðan byrjað var að nota stóra salinn fyrir leik- húsverk og nú hefur efri hæðinni einnig verið breytt til að þjóna nýju hlutverki. Þar frumsýndi Agnar Jón Egilsson nýlega leikritið Afganga en hann er höfundur verksins og jafn- framt leikstjóri. I stuttu máli segir það frá manni og konu sem hittast á næturlífi i Reykjavík og verða ástfangin í skugga framhjáhalds. Maðurinn, sem leikinn er af Stefáni Halli Stef- ánssyni, er djammari og glaumgosi af íslenska skólanum sem hefur gengið í gegnum ófá sambönd við hitt kynið. Konan, sem Elma Lísa Gunnarsdóttir leikur, er aftur á móti gift framakona með barn og virðist við fyrstu sýn lítið eiga skylt við heim mannsins. Söguþráður og tími verksins er brotinn upp þannig að segja má að það gerist á mismunandi stigum sambandsins. I forgrunni er þó allt- af fyrsta nóttin sem leiddi manninn og konuna saman. Þessi sundurklippti tími minnir óneitanlega á aðferðir kvikmynd- anna til að brjóta upp söguþráð og mjatla upplýsingum áleiðis til áhorf- enda. Vissulega léttir þessi aðferð verkið og poppar það upp ef svo má að orði komast en fyrir vikið missir það kannski ákveðinn brodd. Þann- Leikhús Höskuldur Kári Schram hoskuldur@bladid.net Afgangar Eftir: Agnar Jón Egilsson Leikstjóri: Agnar Jón Egilsson Aðalhlutverk: Elma Lísa Gunnarsdóttir og Stefán Hallur Stefánsson Sýnt í Austurbæ ★ ★★ ig fannst mér eilítið vanta á ýmsar ástæður þess að í lok verksins hefur sambandið skyndilega tekið á sig neikvæða mynd. Fannst mér sem svo að verkið taki þá mórölsku af- stöðu að það sem ekki skilgreinist sem heilbrigt upphaf sambands, í borgaralegum skilningi, sé dæmt til að mistakast. Framhjáhaldið og nóttin forðum hvílir sem mara á sambandinu og gerir það dauða- dæmt frá upphafi. Brotakennd persónusköpun Persónusköpun verksins er einn- ig brotakennd og áhorfendur fá það hlutverk að raða brotunum saman eftir því sem á líður. Það virkar vel framan af en frekar brattur endir skilur þó eftir ákveðið tómarúm í því pússluspili. Þannig fannst mér vanta töluvert upp á af hverju per- sóna Stefáns umbreytist úr þessum sjálfsörugga karlmanni í upphafi verks, yfir í þennan „gelda“ einstak- ling, í orðsins fyllstu merkingu, í lokin. Persóna Elmu er hins vegar fullmótaðri og einkennist af meira jafnvægi í þróun og sköpun. Það er því vissulega meira á Stef- án lagt að draga fram heildstæða persónu úr þeim brotum sem hann hefur úr að spila. Hann virkar vel sem töffarinn í byrjun verks og nær að koma til skila undirliggjandi óöryggi sem brýst út í lok verksins. Þetta verður þó aldrei fullkomlega sannfærandi og jafnvel eilítið yfir- drifið á köflum. Elmu tekst misvel að túlka sína persónu. Fannst mér þessi kona sem greinilega á að vera framakona ekki skila sér að fullu á sviðið. Maður hafði bara aldrei á tilfinningunni að hér væri sjálfstæð kona á ferðinni heldur hugsaði frek- ar um óreynda stúlkukind. Það er áhugavert að taka tvær ólík- ar persónur af þessu tagi og skella þeim í þetta samhengi sem verkið gerir. Annars vegar er það hinn ein- mana glaumgosi sem hefur stundað næturlífið nokkrum árum of lengi. Hins vegar er það nútímakonan á uppleið í lífinu sem hefur gaman af að slá um sig. Hinum hefðbundnu kynjaímyndum er þannig blandað saman og úr verður á köflum áhuga- verð og skondin samræða. Verkið tekur einnig þá afstöðu að skera niður leiktextann. Gera hann hraðan og þannig færa hann nær hinu almenna talmáli. Það kemur vel út og passar vel við skiptingar verksins. Rýmið sjálft er lítið og leikarar hafa ekki úr miklu plássi að moða. Gamli bíósalurinn er vel einangrað- ur og vill hljóð stundum dempast eilítið. Ennfremur gerir smæð salar- ins það að verkum að ljóskastarar út við veggi skyggja á köflum á leikara þegar þeir athafna sig á hinu litla sviði. Það getur verið óheppilegt fyrir áhorfanda sem fær sæti út við vegg. LOKAÐ í DAG Ingvar Helgason NOTAÐIR BÍLAR Sævarhöfða 2 Slmi 525 8020 Keflavlk Slmi 421 8808 Akureyri Slmi 464 7940 WWW.ih.l8 menningarmolinn Elvis tryllir lýðinn hjá Sullivan 9. september árið 1956 var stór dagur í lífi Elvis Presleys en þá kom hann í fyrsta sinn fram í hin- um geysivinsæla skemmtiþætti Eds Sullivans. Presley hafði áður stigið á stokk í sjónvarpi og hafði Sullivan þá lýst því opinberlega yf- ir að þessi þokkapiltur fengi aldrei að sýna sína mjaðmahnykki í þætt- inum hjá sér þó aðrir þáttastjórn- endur legðust svo lágt. Skemmti- þáttur Eds Sullivans bar á þessum árum höfuð og herðar yfir annað sjónvarpsefni í Bandaríkjunum og flestar fjölskyldur sátu límdar fyrir framan tækið meðan þáttur- inn stóð yfir. Þetta kvöld fyrir 50 árum horfðu 60 milljón áhorfend- ur á Elvis taka lagið hjá Sullivan sem á þeim tíma var algjört met í sjónvarpssögunni. Myndatöku- mennirnir fengu þau fyrirmæli að mynda ekki Elvis fyrir neðan mitti og fóru því margrómaðir mjaðma- hnykkir hans fyrir lítið og líklega hafa bandarískar stúlkur grátið yf- irþessari ákvörðun Sullivans. Elvis átti eftir að taka lagið tvisvar sinn- um til viðbótar í þætti Sullivans, í október sama ár og í janúar 1957. Margir áhugamenn um sjón- varpssögu kjósa að álíta sem svo að þessi þáttur Sullivans hafi brúað bilið milli kynslóða. Að þetta kvöld hafi foreldrar, sem þurftu að horfast í augu við krepp- una miklu og heimsstyrjöldina síðari, og börnin þeirra sameinast fyrir framan sjón- varpsskjáinn og látið sér vel líka töfrandi sviðsfram- komu rokk- kóngsins. V f

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.