blaðið - 12.09.2006, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2006
blaöiö
INNLENT
LÖGREGLAN
Þrettán klipptir
Lögreglan í Reykjavík klippti
númerin af 13 bílum um helgina
vegna þess að þeir voru ótryggðir.
Auk þess boðaði lögreglan 25
bíla í skoðun um helgina.
LYFJAMARKAÐUR
Barr hækkar tilboð í Pliva
Lyfjafyrirtækið Barr hefur hækkað boð sitt í króatíska
lyfjafyrirtækið Pliva í 820 kúnur á hlut, samkvæmt upplýs-
ingum frá króatíska fjármálaeftirlitinu. Actavis hafði áður
boðið 795 kúnur á hlut í fyrirtækið. Tilboð Barr í fyrirtækið
jafngildir nú 180 milljörðum íslenskra króna.
INNBROT
Þjófur keyrði drukkinn
Maður var handtekinn á vettvangi í iðnað-
arhverfi í Mosfellsbæ aðfaranótt sunnu-
dags grunaður um þjófnað. Maðurinn
fór inn í þrjá bíla og stal útvarpstækjum.
Hann var ölvaður og reyndi að stinga af.
Stjórnendur vinna mikið:
60 tíma vinnuvikur
Yfir helmingur stjórnenda á
Islandi vinnur meira en fimmtíu
klukkustundir á viku. Þetta má
lesa úr könnun VR meðal stjórn-
enda á íslenskum vinnumarkaði.
Meðalvinnuvika launafólks er um
42 klukkustundir.
Samkvæmt könnuninni vinna
um 59 prósent stjórnenda 51
klukkustund eða fleiri á viku og
þriðjungur þeirra vinnur yfir sex-
tíu klukkustundir að meðaltali á
viku. „Þegar þessar tölur eru skoð-
aðar eftir kyni má sjá að það eru
einkum karlarnir sem vinna sex-
Stjórnendur á vinnumarkaði Um
sextíu prósent þeirra vinna meira
en fimmtíu klukkustundir á viku
tíu stundir eða fleiri á viku eða 22
af hundraði á móti sjö prósentum
kvenna,“ segir í frétt VR.
MEÐLAGSGREIÐENDUR
MeSlagsgreiðendur, vinsam-
legast gerið skil hið fyrsta og
forðist vexti og kostnað
f 1 » H - iNNHEIMTUSTOFNUN SVEITARFÉLAGA
T7
Tyjþi Lógmúla 9 • 108 Reykjavík • 530372 0229 • v/ww.medlag.is
Banki: 0111 26 504700 S: 590-7100 • fax: 590-7101
Þingkosningar framundan
Mikil spenna rlkir nú þegar
fimm dagar eru til kosninga
Spennan magnast í Svíþjóð:
Reinfeldt hafði betur
■ Munurinn innan skekkjumarka ■ Borgaraflokkarnir sjónarmun vinsælli
Eftir Atla Isleifsson
atlii@bladid.net
Stjórnmálaskýrendur í Svíþjóð
telja að Fredrik Reinfeldt, formaður
Hægri flokksins, hafi haft betur í
þriðju og síðustu sjónvarpskapp-
ræðum hans og Görans Persson for-
sætisráðherra á sunnudagskvöldið.
Forsætisráðherraefnin tvö
mættu þar í þriðja sinn í sjónvarp-
skappræðum í sænska ríkissjón-
varpinu og ræddu meðal annars
skattamál og umhverfismál. Báðir
voru varkárir 1 orðum til að styggja
ekki stóra hópa kjósenda svo stuttu
fyrir kosningar. Borgaralegu flokk-
arnir fjórir hafa myndað saman
kosningabandalag og ætla sér að
mynda ríkisstjórn saman undir
forsæti Reinfeldts, fái þeir til þess
nægan stuðning.
Samkvæmt könnun Sifo sem
birtist í gær er enn mjög mjótt á
munum milli fylkinganna tveggja.
Borgaralegu flokkarnir fjórir fá
samtals 47,5 prósent í könnuninni,
en jafnaðarmenn, Vinstri flokkur-
inn og Græningjaflokkurinn sam-
tals 46,9 prósent. Munurinn milli
fylkinganna tveggja er ekki mark-
tækur, en kosningarnar fara fram
þann 17. september.
r
MEÐ MAGNAIROCK STAR SUPERNOVA!
VOLLI SNÆR, ÆVINTYRAKOKKUR OG HOFUNDUR
MATREIÐSLU- OG LANDKYNNINGARBÓKARINNAR
DELICIOUS ICELAND
Gangí þér vel, Magni, og verði þér að góðu!
Salka
FORLAG SEM ROKKAR
'Sr&fc.
'n.
jvp,
imj
If
S-:
Konungur Tonga allur:
Tupou IV Hann var eitt sinn
þyngsti þjóðhöfðingi heims
og vó um 200 kíló
Þungavigtarmaður
á konungsstól
Þjóðarsorg ríkir á Tonga í Kyrra-
hafi en konungur eyjarskeggja, Tu-
pou IV, lést áttatíu og átta ára að
aldri síðastliðinn sunnudag. Sonur
Tupou, Tupouto’a krónprins, mun
taka við konungstigninni. Tupou
konungur ríkti í fjörtíu og eitt ár og
var vinsæll meðal þegna sinna. Eftir
að hann komst á valdastól árið 1965
hóf hann að nútímavæða stoð- og
menntakerfi eyjanna en beitti sér
hins vegar ekki fyrir umbótum á
stjórnkerfi landsins en nánast öll
völd eru í höndum konungs.
Þrátt fyrir að kastljós umheims-
ins hafi sjaldan beinst að Tonga
síðustu áratugi vakti Tupou kon-
ungur athygli heimspressunnar á
áttunda áratug síðustu aldar þegar
það spurðist út að hann væri feitasti
þjóðhöfðingi heims, en konung-
urinn var rúmlega 200 kíló þegar
hann var hvað feitastur. Á tiunda
áratugnum tók Tupuou sig hins
vegar á og fór fyrir heilsuátaki í ríki
sínu en offita er algeng meðal eyj-
arskeggja. Konungur sýndi gott for-
dæmi og missti þriðjung af þyngd
sinni í heilsuátakinu.
Þrátt fyrir að konungur hafi
notið almennrar virðingar meðal
þegna sinna hefur borið á vax-
andi óánægju Tongamanna með
stjórnkerfi landsins og kröfur um
umbætur og lýðræði hafa orðið
háværari á síðustu árum. í fyrra
fóru fjöldamótmæli fram þar sem
mótmælendur kröfðust lýðræðis
og þjóðnýtingar á mikilvægum auð-
lindum. Ándlát Tupou er talið verða
vatn á myllu þeirra sem berjast fyrir
auknu lýðræði í Tonga.