blaðið - 12.09.2006, Page 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2006
ÞAUSÖGÐU
LENNON f VIÐEY
Ég veit að John [Lennon] verður með okkur í anda í Reykjavík 9.
tt október og ég hlakka til að hitta [fslendinga] til að halda upp á
spennandi dag. Stríð eru á enda, ef við viljum. Ég elska ykkur.“
ÁVARP YOKO ONO TIL ÍSLENDINGA, EN HÚN HYGGST HALDA UPP A AFMÆLI HINS FALLNA EIGINMANNS SÍNS i VIÐEY.
ER EKKI KROSSFERÐ UPPLÖGÐ?
Við þurfum sigra hugmyndafræði hatursins
fjfmeð hugmyndafræði vonarínnar."
GEORGE BUSH BANDARlKJAFORSETI SEGIR VONLEYSI EINA HELSTU ÁSTÆÐU
ÞESS, AÐ OSAMA BIN LADEN FINNI GNÆGÐ SJALFSMORÐSArASARMANNA.
Lið-a-mót
FRÁ
mzw
www.nowfoods.com
I
GÓÐ HEILSA g
GULLI BETRI 1
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
Eltak sérhæfír sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum mesta úrval
á íslandi af smáum
og stórum vogum
Hufdu samhund
Siðumúlu 13, $imi 588 2122
www.eltak.is
Flugvöllur er málið Samstarfs-
verkefni sveitarfélaga á Suður-
nesjum, utanrikisráðuneytis og
iðnaðarráðuneytis gerir ráð fyrir
alþjóðlegum flugvelli á svæði
varnarliðsins og að stór hluti fast-
eigna verði rifinn niður. Mynd/Kim„
TÉ/mt. Varnarsvaedi nato
eOcxpr/ ' ÖVIOKOMANDI
2//j\bannadur adgangur
Xf. NATO BASE
OCOOt RESTRICTED ACCESS
Ljóst hvað verður um fasteignir varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli:
Alþjóðaflugvöllur
er lausnin
■ Við munum stýra verkinu, segir bæjarstjóri Reykjanesbæjar
■ Stór hluti eignanna rifinn ■ Stefnan augljós
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
„Við höfum farið í vinnu með er-
lendum ráðgjöfum sem gera ráð
fyrir alþjóðaflugvelli á svæði varnar-
liðsins og þjónustu í kringum hann.
Á þessari vinnu viljum við byggja
og því má segja að stefna okkar sé
augljós,” segir Árni Sigfússon, bæj-
arstjóri Reykjanesbæjar, um hverjar
áherslur bæjaryfirvalda eru um
starfsemi á svæði varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli.
Nú er stutt í að starfsemi varnar-
liðsins á Keflavíkurflugvelli verði
endanlega lögð niður. Árni segir
ljóst að Reykjanesbær muni stýra
því hvað gert verði á svæðinu eftir
brottför hersins.
„Stór hluti eignanna verður líklega
rifinn því þær standast ekki kröfur
og hafa sumar hverjar ekki neinn til-
gang lengur. Ég geri ráð fyrir því að
um leið og samningaviðræðum ljúki
verði farið í að rífa eignir og hreinsa
menguð svæði. 1 kjölfarið þarf að
Reykjanesbær
mun stýra því
hvað veröur
gert á svæðinu.
Árni Sigíúason
bæjaratjóri
Reykjanesbæjar
finna þeim eignum sem ekki verða
rifnar hlutverk,” segir Árni. „Ótal
mörg fordæmi eru fyrir því þar sem
herstöðvum hefur verið lokað að við-
komandi sveitarfélag beri ábyrgð á
því hvað gert verði og stýri því.”
Ekki á almennan markað
Árni leggur á það áherslu að sveit-
arfélagið beri ábyrgð og stýri því
hvað gert verði á svæðinu. Slíkt sé al-
gengt og fyrir því ótal fordæmi þar
sem herstöðvum hefur verið lokað.
„Sveitarfélagið mun sjá um hvernig
þessu verður stýrt inn á markað og
þau svör höfum við fengið bæði
hjá utanríkisráðuneytinu og fjár-
málaráðuneytinu. Það verður ekk-
ert gert í andstöðu við okkur hvað
þetta varðar,” segir Árni. „Alls ekki
kemur til greina að íbúðarhúsnæði
fari á almennan markað því slíkt
myndi án efa skaða fasteignamark-
aðinn og verktaka hér. SHkt kemur
bara ekki til greina.”
Stefnan er augljós
Aðspurður segir Árni það ekki
vera vandamál hvað gera skuli á
svæðinu heldur er þetta tækifæri
sem nýta þurfi skynsamlega.
„Þarna má ekki kasta til hendinni
heldur verður að vinna þetta skipu-
lega og því er i gangi samstarfsverk-
efni sveitarfélaganna, utanríkisráðu-
neytisins og fjárfestingastofu undir
heitinu Tækifæri alþjóðaflugvallar.
Síðan eru margir áhugasamir aðilar
sem vilja koma með þjónustu inn
varðandi flugvöllinn,” segir Árni.
„Þetta er augljóslega stefnan hjá
okkur og það sem koma skal.”
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
fengust engin svör frá varnarmála-
skrifstofu utanríkisráðuneytisins
eða Flugmálastjórn vegna málsins.
Feneyjar:
Vilja fækka
dúfunum
mbl.is Þótt mörgum þyki
dúfurnar á Markúsartorgi i
Feneyjum ómissandi kennileiti
hafa borgaryfirvöld áhyggjur af
smithættu og sóðaskap. Milljónir
ferðamanna koma til borgar-
innar á ári hverju og fá fuglarnir
nóg að éta og fjölgar því stöðugt.
Talið er að dúfurnar séu að
minnsta kosti 40.000.
Ýmislegt hefur verið reynt til
að fækka fuglunum án árangurs
en ekkert gagnast og segja dýra-
verndunarsinnar að eina leiðin sé
að hætta að gefa fuglunum mat.
Slíkar hugmyndir vekja hins
vegar litla kátínu hjá kornsölum
sem hafa lifibrauð sitt af að selja
ferðamönnum fuglakorn við
Markúsartorg.
Ólögleg lyf:
Innflutningur
eykst
Innflutningur á ólöglegum
lyfjum ogýmsum náttúruvörum
hefur farið vaxandi á undan-
förnum árum og er netverslun
talin vera helsta orsök þess.
Samkvæmt tilkynningu sem
Lyfjastofnun rikisins gaf út í gær
er varað sérstaklega við neyslu
þessara lyfja þar sem þau geta
haft skaðleg áhrif á heilsu manna.
Að sögn Mímis Arnórssonar,
deildarstjóra upplýsingadeildar
hjá Lyfjastofnun, hafa tollayfir-
völd lagt hald á gríðarlega mikið
magn af ólöglegum lyfjum að
undanförnu. „Það er mikið
stoppað i tollinum en við vitum
ekki hversu stór hluti það er af
heildarinnflutningi hingað til
lands.“
Mímir segir netverslun með lyf
hafa farið vaxandi og þar sé verið
að selja allt milli himins og jarðar.
„Allt sem er á þessum svartamark-
aði getur verið hættulegt."
skotbómu-
lyRararálager
Romatsu
Komatsu
WH609 með
göfflum,skóflu
og hllöarfærslu.
KomatsuWH714
meðgöfflum,
skófluog
hllðarfærslu.
KomatsuWH716
moð göffium,
skófluog
mannkörfu.
fijí
söfumönnum
Kraftvélaehf
535-3500
Fundur iðnaðarnefndar:
Allri leynd verði aflétt
Eftir Atla íslefisson
atlii@bladid.net
„Ég tek ekki þátt í því að hylma yfir
gagnvart þjóðinni," segir Ögmundur
Jónasson, þingflokksformaður
Vinstri-grænna, sem gekk út af
fundi iðnaðarnefndar í gær þar sem
vísindamenn og fulltrúar Landsvirkj-
unar komu til að kynna nýtt arðsem-
ismat vegna Kárahnjúkavirkjunar.
„Þegar okkur var gerð grein fýrir
því að við fengjum aðeins aðgang að
upplýsingunum gegn því að þegja
um þær, benti ég á að verið væri að
múlbinda okkur og koma í veg fyrir formaður iðnaðarnefndar, segir að inn hvert það er. Að raforkuverðið
að við gætum tekið þátt í opinni og fundurinn hafi verið ánægjulegur væri trúnaðarmál var eitt af skil-
lýðræðislegri umræðu. Eftir það og góður. „Landsvirkjun vill ekki yrðum Landsvirkjunar. Ögmundur
gekk ég af fundi,“ segir Ögmundur. setja fram opinberlega hvert raforku- vildi ekki samþykkja þann trúnað og
Einar Oddur Kristjánsson, vara- verðiðer.þóaðallirvitinokkurnveg- labbaði því út affundi.“