blaðið - 12.09.2006, Page 32

blaðið - 12.09.2006, Page 32
40 ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2006 blaðið Chelsea verður auðveld bráð Ronaldinho hefur látiö hafa eftir sér að Chelsea veröi auöveld bráð fyrir Barceiona, en liðin eru saman í riðli i meistaradeildinni. „Flestir segja að Cheisea verði okkur erfiðastir en þeir veröa auðveld bráð,” sagði besti knattspyrnumaður heims. „Ballack, Shevchenko og Ashley Cole þurfa mei- ri tima til að aðlagast liðinu. Ég hef mestar áhyggjur af Werder Bremen.” Ruud Van Nistelrooy opnaði marka- reikning sinn hjá Real Madrid um helgina þegar hann skoraði þrennu í 4-1 sigri Real á Levante. Nistelrooy brenndi einnig af víti í leiknum. Ashley Cole sagði við breska fjölmiðla um helgina að aðalástæðan fyrir því að hann yfirgaf Arsenal hafi verið að honum hafi liðið eins og ósýnilegum manni við hlið Thierrys Henry sem hafi verið með- höndlaður eins og dýrlingur. „Félagið bauð Henry út að borða og gaf út yfirlýsingar um hversu ómissandi hann væri fyrir félagið á meðan ég fékk ekki einu sinni símtal. Arsenal gerði ekkert til að halda í mig,” sagði Cole. Fyrsta umferð meistaradeildar Evrópu hefst í kvöld með átta leikjum sem allir hefjast klukkan 18:45 að íslenskum tíma. Hæst ber leiki Chelsea og Werder Bremen í A-riðli og leik PSV og Liverpool i C-riðli. Barcelona hefur titilvörnina á Camp Nou gegn Levski Sofia. Leikurinn ætti að vera auðveldur fyrir Spánar- meistarana sem hafa unnið jfe f báða leiki sina í spænsku deildinni. Ronaldinho, Eto’o og Larsson fagna marki í meistaradeildinni í fyrra Barcelorta hefur titilvörnina i kvöld með leik gegn Levski Sofia á Camp Nou Fyrsta umferö meistaradeildarinnar hefst í kvöld Eiður félaaa Levski Sofia í heims afael Benitez fær tæki- færi í kvöld til að hefna ■ sín á Ronald Koeman I Barcelona hefur titilvörnina PSV og Liverpool mætast í tvísýnum íetk en Koe- man stýrði Benfica til 2-0 sigurs á Liverpool á Anfield Road í fyrra og sló þá út úr meistara- deildinni. Koeman stendur núna í brúnni hjá PSV en liðin mætast í kvöld í Eindhoven í fyrstu umferð riðlakeppninnar. Michael Ballack sagðist eftir leik Chelsea og Charlton um helgina vera tilbúinn að taka við af Frank Lamp- ard sem víta- skytta liðsins. Lampard hefur mis- notað þrjú af síðustu fjórum vítum fyrir Chelsea og þykir í ofanálag ekki hafa byrjað leiktíðina vel. José Mour- inho sagði eftir leikinn að hann liti aldrei á það sem valkost að láta Frank Lampard sitja á bekknum þegar hann er heill. A-riðill Barcelona- Levski Sofia Barcelona hefur titilvörnina á heimaleik gegn Levski Sofia frá Búlgaríu. Liðin hafa einu sinni mæst áður en það var árið 1976 í Evrópukeppni meistaraliða þar sem Barcelona vann 4-0 á heimavelli en tapaði 5-4 í Sofia. Barcelona hefur unnið fyrsta leik sinn í riðlakeþþni meistaradeildarinnar síðustu fimm árin og skorað í þeim 12 mörk. Levski hefur aldrei áður komist í riðlakeppni meistaradeildarinnar og Ijóst að liðið mun eiga á brattann að sækja á Camp Nou. Fylgstu með... ...hjá Barcelona: Eiði Smára og Samuel Eto’o ...hjá Levski: Georgi Petkov (markmaður) LEIKIR KVÖLDSINS: A-riðill C-riðill Chelsea - Werder Bremen Galatasaray - Bordeaux Barcelona - Levski PSV - Liverpool 0-riðlll D-riðill Sporting - Inter Milan Olympiakos-Valencia Bayern - Spartak Moskva Roma - Shaktar A-riðill U Chelsea-Werder Bremen Hinn leikurinn í A-riðli er á milli Chelsea og Werder Bremen og fer leikurinn fram á Stamford Bridge. Chelsea hefur fallið úr keppni í undanúrslitum síðustu tvö árin og hefur enn fengið liðsstyrk en Chelsea fékk þá Ballack, Shevchenko og Ashley Cole til liðs við sig fyrir tímabilið sem á pappírunum ætti að gera iiðið enn liklegra til að vinna meistaradeildina. Werder Bremen varð i öðru sæti þýsku Bundesligunnar í fyrra og komust í átta liða úrslit meistaradeildarinnar þar sem þeir féllu út fyrir Juventus á markamun. Werder Bremen er mikið sþurningarmerki og erfitt að spáfyrir um úrslit þegar þeir eru annars vegar. Þeir geta tapað stórt fyrir lægra skrifuðu liði og burstað stærra lið í næsta leik, en yfirleitt má búast við mar- kaleik þegar Werder Bremen sþilar. Félagið verður að teljast líklegra til að blanda sér í baráttu við Chelsea og Barcelona um sæti upþ úr riðlinum heldur an Levski. Fylgstu með... ...hjá Chelsea: Andriy Shevchenko og Michael Ballack ...hjá Werder Bremen: Torsten Frings og Tim Borowski. C-riðill PSV-Liverpool PSV og Liverpool hafa aldrei mæst áður en Ronald Koeman, stjóri PSV, ætti að vita hvað þarf til að vinna Liverpool en hann stýrði Benfica-liðinu til sigurs á Liverpool í sextán liða úrslitum meistaradeildarinnar i fyrra. Eftir að Koeman tók við liði PSV í sumar hefur liðið orðið fyrir nokkurri blóðtöku og misst lykilmenn eins og André Ooijer og Jan Vennegoor af Hesselink. Liðið verður einnig án hins 36 ára reynslubolta Philips Cocu á miðjunni sem er I banni. Hægri bakvörðurinn og vængmaðurinn Jan Kromkamp er þó snúinn aftur heim til Hollands en hann fórtil PSV frá Liverpool í sumar eftir aðeins hálfs árs dvöl í Englandi. Rafel Benitez, stjóri Liverpool, hefur styrkt lið sitt töluvert með ráðningum í sumar. Til liðsins eru komnir þeir Craig Bel- lamy frá Blackburn Rovers, vængmennirnir Jermaine Pennant frá Birmingham og markamaskínan Dirk Kuyt frá hollenska liðinu Feyenoord sem var valinn besti leikmaður hollensku deildarinnar í fyrra. Einhverjir hnökrar hafa þó verið á leik liðs- insundanfariðenþaðeraðeinskomiðmeð _ fjögur stig úr þrem fyrstu leikjum timabils- ^ N ins og tapaði illa fyrir Everton um helgina, 3-0. Fylgstu með... ...hjá PSV: Jan Kromkamp ...hjá Liverpool: Dirk Kuyt Framarar tryggðu sér titilinn í íyrstu deildþrátt fyrir tap á Akureyri gegn Þór um helgina. HK, sem er í öðru sæti, tapaði á heimavelli gegn Víkingi Ólafsvík og því var titill- inn Framara. HK stendur þrátt fyrir tapið best að vígi í baráttunni um annað sætið og hefur þriggja stiga forystu á Fjölni sem er í þriðja sæti. Botnbaráttan í deildinni er enn í algleymingi því enn geta fimm félög fallið í aðra deild þegar ein umferð er eftir. Curtis Woodhouse, fyrrum leikmaður Grimsby Town, snýr sér að hnefaleikum: Vann fyrstu viðureign sína í veltivigt Curtis Woodhouse, fyrrum leik- maður Grimsby, hætti knattspyrnu- iðkun í apríl á þessu ári, aðeins 26 ára. Hann ákvað þess í stað að gerast at- vinnuhnefaleikari og háði sinn fyrsta bardaga síðasta föstudag í veltivigt þar sem hann vann andstæðing sinn á stigum eftir að hafa barið hann í gólfið tvisvar í síðustu lotunni. Woodhouse ólst upp hjá Sheffield United og spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið 17 ára. Hann var orðinn fyrir- liði liðsins eftir tvö ár, þá aðeins 19 ára gamall, og fastamaður í U-21 árs landsliði Englendinga. í viðtali eftir fyrstu viðureign sína sem atvinnu- hnefaleikari sagði Woodhouse að þungu fargi væri af sér létt. „Ég missti mjög ungur áhugann á því að spila fótbolta. Eg veit ég hefði getað haldið áfram að spila þar til ég yrði 35 ára og tryggt fjárhagslega framtíð mína og fjölskyldu minnar en ég hafði ekki nokkra löngun til þess,” sagði Wood- house eftir viðureignina. „Margir líta á atvinnumennsku í knattspyrnu sem 'eitthvað eftirsóknarvert, en fyrir mér var fótbolti leiðinleg vinna,” sagði Woodhouse. „Á knattspyrnuferlinum var ég alltaf að koma mér í vandræði utan vallar fyrir slagsmál og hugsaði oft með mér að það gæti verið gaman að fá borgað fyrir að slást.”

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.