blaðið - 14.10.2006, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 2006
blaöiö
Nær tíu milljarða gróði
Sparisjóðirnir högnuðust samanlagt um
níu og hálfan milljarð króna eftir skatta á
síðasta ári. Alls eru starfræktir 24 spari-
sjóðir á landinu með 60 afgreiðslur hér og
hvar um land
UMFERÐAROHAPP
Keyrði á vegg
Ökumaður meiddist i andliti þegar hann keyrði
bifreið sinni á húsvegg á (safirði upp úr hádegi
í gær. Manninum varð það á að stíga á bensín-
gjöfina þegar hann ætlaði að bremsa þar sem
hann lagði í stæði.
Próflaus keyrði á mann
Tvítugur, prófiaus piltur keyrði á starfsmann bílaleigu á Akureyri
með þeim afleiðingum að hann klemmdist á milli húsveggs
og bílsins. Samkvæmt lögreglu kipptist bíllinn af stað þegar
maðurinn stóð fyrir framan hann og hugsanlega má rekja það til
reynsluleysis piltsins. Talið er að maðurinn sé fótbrotinn.
Grunnskólar:
Erlendum börnum
fjölgar hratt
Fjöldi grunnskólabarna hér á
landi sem eru af erlendu bergi
brotin hefur tæplega tvöfaldast
á undanförnum sjö árum sam-
kvæmt tölum frá Hagstofunni.
Árið 1999 voru 920 börn hér á
landi sem höfðu annað mál en
íslensku að móðurmáli en í fyrra
voru þau tæplega 1.600 talsins.
Fram kom í Blaðinu í gær að
af 38 nemendum í Grunnskóla
Önundarfjarðar eru 25 af erlendu
bergi brotnir og þar af sjö sem tala
hvorki né skilja íslensku. Að sögn
skólastjóra Grunnskóla Önundar-
M.
fjarðar þarf skólinn nauðsynlega á
að halda kennara sem getur kennt
jafnt á íslensku og pólsku.
Fagleg ræsting
fyrirtækja
er bæði betri og ódýrari
Auöbrekku 8, 200 Kópavogi, sími 554 6088, hreint@hreint.is, www.hreint.is
Hauststemning
Ný teppasending
fm m m \ É
t*'
Z E D R U S
fmm tm n persneskar mottur húsgögn / gjafavörur
wwvv.zedru.s.is • Hlíöarsmára II S. 534 2288
Víðtækar símhleranir á íslandi:
Hleraður árum saman
■ Lögreglueftirlit allan sólarhringinn ■ Hlustaði á samtal forsætisráðherra
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
,Ég veit að sími minn var hleraður í
mörgum tilvikum og stundum voru
margir á línunni. Búnaðurinn var
svo lélegur á þessum tíma að maður
heyrði greinilega þegar hlerað var,“
segir Magnús Skarphéðinsson skóla-
stjóri. Hann upplifði stöðugt eftirlit
af hálfu lögreglu um margra ára
skeið. Eftirlitið gekk svo langt að
allur erlendur póstur sem Magnús
fékk var yfirfarinn af lögreglunni
og hann þurfti því að láta stíla póst
sinn á vini og vandamenn.
Magnús segir ekki aðeins póst
sinn hafa verið lesinn og símann
hleraðan heldur hafi lögreglumenn
verið á vakt allan sólarhringinn til
þess að fylgjast með honum. „Lög-
reglumaður var í bíl fyrir utan heim-
ili mitt allan sólarhringinn. Lög-
reglan hefur staðfest eftirlitið
og ég hef myndir af lögreglu-
mönnum fyrir utan hjá mér,“
segir Magnús.
Ótrúlegt samtal
Dag einn segist
Magnús hafa tekið upp
símtólið heima hjá
sér og þá hafi hann
heyrt samtal Þor-
steins Pálssonar,
þáverandi for-
sætisráðherra,
og Halldórs
Blöndal, þing-
manns Sjálf-
stæðisflokksins.
Nýlega staðfesti
Halldór að um-
rætt samtal hafi
átt sér stað.
„Þetta samtal sem
ég heyrði er stórmál,
ekki bara fyrir það hvað
þar var rætt heldur líka sú
staðreynd að verið var að hlera
símtöl forsætisráðherra landsins,“
segir Magnús. „Ég fékk Ólaf Ragnar
Grímsson, Garðar Sverrisson og
Össur Skarphéðinsson til að stað-
festa samtalið sem ég hlustaði á. Það
gerðu þeir allir,“ bætir Magnús við.
Skrítin viðbrögð
Garðar Sverrisson, formaður Ör-
yrkjabandalags íslands, staðfestir
frásögn Magnúsar og telur það sér-
kennilega tilviljun að hann hafi hitt
á umrætt samtal.
„Mér er kunnugt um að lögreglan
var að njósna um Magnús. Hann
kvaddi mig til vitnis um það samtal
sem hann heyrði. Ég get fyllilega
staðfest að þetta
var raunverulegt samtal á milli
þeirra aðila sem um ræðir,“ segir
Garðar. „Viðbrögð Halldórs eru und-
arleg, svo ekki sé meira sagt. Núna
kvartar hann yfir að óbrey ttur starfs-
maður Símans hafi ekki látið sig vita
af hlerunum hjá Jóni Baldvin. Hvers
vegna gerði hann ekki meira mál út
af þessu samtali þegar maður, sem
viðurkennt var að njósnað var um,
kemur inn á samtal bans við sjálfan
forsætisráðherra við undirbúning
eldhúsdagsumræðna? Eftir á að
hyggja er erfitt að loka augum fyrir
því að þarna hafi eitthvað farið úr-
skeiðis í hlerunaraðgerðum íslensku
leyniþjónustunnar og málið þess
vegna látið kyrrt liggja.“
Engar heimildir
Össur Skarphéðinsson
alþingismaður man
vel eftir því tímabili
þegar njósnað var
um Magnús. „Á
þeim tíma sem
fylgst var með
Magnúsi var ég
ritstjóri Þjóð-
viljans og til
mín leitaði lög-
reglumaður
sem sagði mér
frá því að stöð-
ugt væri fylgst
með honum,"
segir Össur.
„Þegar ég sagði
Magnúsi frá því þá
hló hann við, gekk út
að glugganum og benti
mér á í hvað bil lögreglumað-
urinn sæti.“
Magnús er sannfærður um að eft-
irlitið hafi allt verið án heimilda.
„Ég kvartaði mikið undan þessum
hlerunum á sínum tíma en það var
bara hlegið að mér. Ég óskaði ítrekað
eftir dómsúrskurði fyrir þessu eftir-
liti en sama hvað lögreglan leitaði
lengi þá fannst enginn slíkur," segir
Magnús.
Inniheldur [^nooM
1%
vatnsleysanlegar ■ .«
trefjar ' ''
ym
Reykjavík:
Friðarstofnun komið á fót
Friðarstofnun Reykjavíkur
verður komið á fót í samstarfi
við innlenda og erlenda aðila
í tilefni af tuttugu ára afmæli
Höfðafundarins.
Markmið stofnunarinnar verður
að fjalla um friðarmál á alþjóð-
legum vettvangi og að bjóða deilu-
aðilum víðs vegar um heim til
friðarviðræðna.
Vilhjálmur Þ. Vilhálmsson borg-
arstjóri segir ísland vera herlaust
land og að engin hefð sé fyrir hern-
aðaruppbyggingu eða herrekstri
hér á landi.
„Því er Reykjavík einstakur vett-
vangur til viðræðna um friðsam-
lega úrlausn margvíslegra alþjóð-
legra deilumála,” segir Vilhjálmur. Höfði í Reykjavík Mun vera táknrænn fundarstaður Friöarstofnunar Reykjavíkur.