blaðið - 14.10.2006, Page 8
8 LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 2006
blaöiö
UTAN ÚR HEIMI
FRAKKLAND
Banvænir röntgengeislar á sjúkrahúsi
Einn maður lést og þrettán veiktust alvarlega eftir að hafa
orðið fyrir ófhóflegu magni af röntgengeislum á sjúkrahúsi
í austurhluta landsins. Ástæða geislunarinnar er sú að
starfsmenn sjúkrahússins kunnu ekki almennilega á nýtt
röntgentæki sem tekið var til notkunar fyrir tveimur árum.
■ i-ii.nna^
Varar við þurrki
John Howard, forsætisráðherra Ástralíu, hefur lýst yfir
áhyggjum af þeim þurrkum sem ganga yfir landið og
sagt að hann kunni að verða til þess að verulega dragi
úr hagvexti. Þurrkurinn hefur meðal annars valdið uþp-
skerubrestur á hveitiökrum.
NOREGUR
Yunus fær friðarverðlaun Nóbels
Muhammed Yunus og bankinn sem hann stofnaði, Grameen,
eru handhafar friðarverðlauna Nóbels í ár. Yunus stofnaði
bankann til að lána fátæku fólki, sem hefur ekkert veð, litlar
upphæðir svo að það geti stofnað eigin fyrirtæki. Bankinn
hefur lánað 6,5 milljónum einstaklinga.
Nýju
OLYMPUS
vélarnar
ORMSSON
mju740
og mju750
eru mættar!
OLYMPUS
myu740
7.1 milljón pixlar
5 x aðdráttarlinsa (36-180mm)
Ljósop f/3,3-5,0
2.5" LCD skjár
215,000 pixlar í skjá
ISO 80-1600
23 tökustillingar
Allt að 3,5 rammar á sekúndu
Macro niður á allt að 2 sentimetra
Videoupptaka 640x480, með hljóði (QuickTime)
BrightCapture tækni gefur frábæra myndgæði í lítilli birtu
Hleðslutæki og Lithium-ion rafhlaða fylgir
Veðurvarin
3 ára ábyrgð
Kr. 33.900,-
OLYMPUS
mju750
7.1 milljón pixlar
5 x aðdráttarlinsa (36-180mm)
Ljósop f/3,3-5,0
Dual hristivöm
2.5" LCD skjár
215,000 pixlar í skjá
ISO 80-1600
23 tökustillingar
Allt að 3,5 rammar á sekúndu
Macro niður á allt að 2 sentimetra
Videoupptaka 640x480, með hljóði (QuickTime)
BrightCapture tækni gefur frábæra myndgæði í litilli birtu
Hleðslutæki og Lithium-ion rafhlaða fylgir
Veðurvarin
3 ára ábyrgð
Kr. 36.900,-
OLYMPUS
I SlÐUMÚLA 9 1 SMÁRALIND | AKUREYRI j KEFLAVlK i 5
1 SlMI 530 2800 1 SlMI 530 2900 1 SÍMI 461 5000 ! SlMI 421 1535 I í
Farþegaflug innanlands:
400 milljónir
fara í flugið
ar 1 Flugið mikijvægt
Flestar leiðir niðurgreid
Áætlunarflug til Vest-
mannaeyja Reiknað er
með að þetta kosti ríkið
fimmtíu milljónir króna.
Stjórnvöld greiða um 400
milljónir króna með ríkisstyrktu
innanlandsflugi eftir að gengið
var frá tveimur samningum um
áætlunarflug.
Annar samningurinn er við Flug-
félag íslands um flug til Vestmanna-
eyja, en Landsflug hætti áætlunar-
flugi á leiðinni í lok síðasta mánaðar.
Sá samningur gildir til tíu mánaða.
Gert ráð fyrir að farnar verði tvær
ferðir á dag alla daga nema laugar-
daga, þegar boðið verður upp á eina
ferð. Kostnaður ríkisins við samn-
inginn er um 58 milljónir króna.
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum, segir þetta vera
mjög jákvæðar fréttir fyrir alla
þá sem þurfa og velja að ferðast
til Vestmannaeyja. „Þetta er mjög
mikilvægt fyrir ferðaþjónustu
og þjónustustigið almennt í Vest-
mannaeyjum. Mjög hefur dregið
úr flugfarþegum á þessari leið á
undanförnum misserum. Árið
2001 voru farþegar um fjörutíu þús-
und, en í ár stefnir í að þeir verði
sautján þúsund. Þjónustustigið
minnkaði, sætaframboð var óstöð-
ugt og áætlun stóðst mjög illa. Allt
hafði þetta áhrif á að Eyjamenn
Eyjamenn horfa
nú fram á veru-
lega bjartari tíð
Elliði Vignisson
Bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum
gátu ekki nýtt sér flugsamgöngur
eins mikið og áður var.“
Samgönguyfirvöld gerðu einnig
samning við Flugfélagið Erni um
áætlunarflug frá Reykjavík til
Hafnar, Gjögurs, Bíldudals og Sauð-
árkróks. Sá samningur gildir frá
næstu áramótum í þrjú ár og er
kostnaður ríkisins við hann um 350
milljónir króna.
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra segir það vera ánægjulega nið-
urstöðu að ná samningum við þessa
aðila. „Flugið skiptir miklu máli
fyrir þessar byggðir. Flugið virðist
vera þeim mikill lykill, með mis-
munandi hætti þó. Landleiðin að
Gjögri og Bíldudal er til að mynda
oft lokuð að vetri til.“
Samanlagður kostnaður ríkisins
við samningana nemur rúmlega 400
milljónum króna. Sturla segir þetta
vera háar fjárhæðir, en á það beri að
líta að þetta sé geysilega mikilvæg
tenging fyrir staðina. „Þetta styrkir
atvinnulífið og kemur væntanlega
til baka til ríkissjóðs með auknum
skatttekjum. Það er okkar mat að
hagkvæmara sé að styrkja flugið
með þessum hætti og auka þar með
hreyfanleikann í samfélaginu.“
Flugið skiptir
miklu máti fyrir
þessar byggðír
Sturla Böðvarsson
Samgönguráðherra
LISTMUNAUPPBOÐ
veröur haldið sunnudagskvöldiö 15. október,
kl. 19 á Hótel Sögu, Súlnasal
Bobin verða upp um 125 verk,
þar á meðal fjöldi verka gömlu meistaranna.
Veriö velkomin a& sko&a verkin í Galleríi Fold, Rau&arárstíg 1 4,
föstudag kl. 10-18, laugardag kl. 11-17
og sunnudag kl. 12-17
Hægt að nálgast uppboðsskrána á nefinu: www.myndlist.is.
Rau&arárstíg 14, simi 5510400 • www.myndlist.is
»-*:/• -
rf-g, J,,
m '»Ji YíC
á.Mbí Aum
■
Nína Tryggvadóttir
Gunnlaugur Blöndal
Þorvaldur Skúlason