blaðið - 19.10.2006, Blaðsíða 2
2 i
FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2006 blaöiö
Viðburðurinn Konan
Fjölbreyttur og
viðamikill viðburður
Viðamikil sýning Dagmar Haraldsdóttir: „Það ersvo
margt sem konur koma að með einum eða öðrum
hætti og hafa áhuga á. Konan er því sennilega ein viða-
mesta sýning sem Islandsmót hefur haidið."
Það má með sanni segja að næsta
helgi verði helgi konunnar enda
ættu allar konur að geta fundið eitt-
hvað við sitt hæfi á viðburðinum
Konan í Laugardalshöllinni.
Það er því tilvalið að taka þessa
helgi frá og eyða henni í góðra
kvenna hópi í Laugardalshöllinni.
I tilefni af viðburðinum fylgir
sérblað um Konuna með Blaðinu
og í því má finna alls kyns greinar
um efni og fyrirlestra á sýningunni
sem íslandsmót stendur fyrir. Dag-
mar Haraldsdóttir, sýningarstjóri
Konunnar, segir að þær hafi lengi
gengið með hugmynd að sýningu
fyrir konur í maganum og niður-
staðan varð sú að tengja saman
huglæg efni og vera með fyrirlestra-
syrpu. „Við vildum líka vera með
sýningu þar sem fyrirtæki væru sér-
staklega að kynna og miðla þjónustu
sinni til kvenna. Þegar leið á kom að
máli við okkur fagfólk í förðunar-
og naglageiranum og spurði hvort
við værum ekki tilbúin að vera
með íslandsmeistarakeppni sem
hefur ekki verið haldin í tvö ár. Við
verðum því með förðunarkeppni
og naglakeppni sem verður einkar
skemmtilegt að fylgjast með.“
Allt um lífsstíl konunnar
Dagmar segir að Konan sé senni-
lega ein viðamesta sýning sem
íslandsmót hafur haldið enda er
áhugasvið kvenna mjög vitt. „Það er
svo margt sem við komum að með
einum eða öðrum hætti og höfum
áhuga á. Að vera með viðburð sem
sinnir öllum þeim helstu þáttum
sem snúa að konunni er meira en
að segja það. Það hefur tekist
gríðarlega vel til og við erum
sérstaklega ánægðar með
hversu fjölbreyttur og viða-
mikill viðburðurinn er
orðinn. Hver einasta kona
á að geta fundið eitthvað
fyrir sig á viðburðinum.
Þar er föndur, spábollar,
fatnaður, fylgihlutir,
skart, matur, heilbrigði
og hollusta, förðun, snyrti-
vörur og brúnkuklefar.
Við skönnum lífsstíl kon-
unnar fyrir utan það sem
snýr að öllum, eins
og hreinlæti og
barnauppeldi,"
segir Dagmar
og bætir við að
á viðburðinum
verði líka frábær tónlistaratriði frá
Heru Björk, Hönsu, Selmu, Regínu
Ósk og fleirum. „Við erum ótrúlega
ánægðar og snortnar yfir því hvað
undirbúningurinn hefur heppn-
ast vel og hve vel allir hafa tekið
okkur. Það er því ekki annað hægt
en að þakka öllum þessum ótrú-
legu konum sem vilja miðla reynslu
sinni og þekkingu
til okkar hinna
að ógleymdum
gert þetta
kleift.“
HÓPFERÐIR MEÐ ICELANDAIR
SEM HAFA SVO SANNARLEGA
SLEGIÐ í GEGN
MADDAMA, KERLING...
Gaman saman I Glasgow 24.-28. nóv.
BURT MEÐ JÓLASTRESSIÐ
Kvennaferð til Boston 14.-17. desember
Fararstjórar: Helga Braga, Eva Dögg
Sigurgeirsdóttir og Sigrlður Klingenberg.
GOLF í ORLANDO
1 5.-23. janúar 2007
með Ragnhildi Sigurðardóttur,
margföldum íslandsmeistara I golfi.
SKÍÐUM SAMAN í GEILO, NOREGI
1 .-4. febrúar 2007
KVENNAFERÐ TIL PARÍSAR
- freistandi páskaferö 2.-6. aprll 2007
Fararstjórar: Edda Björgvins, Helga
Braga og Eva Dögg.
VIÐ VERÐUM í LAUGARDALSHÖLL
Komið og fáið allar upplýsingar um þessar frábæru ferðir fyrir konur
á sýningunni KONAN í Laugardalshöll 20.-22. október.
Bókaðu á www.icelandair.is
Við minnum á að hægt er að punkta niður ferðalagið
með Vildarpunktum VISA og lcelandair.
WWW.ICELANDAIR.IS
Góð þátttaka Anna Rún
Frímannsdóttir: „Það eru þó
nokkrir búnir að skrá sig en ég
vil endllega hvetja sem flesta
til að taka þátt.“
Förðunarkeppni fyrir
nema og meistara
Næstkomandi laugardag verður
glæsileg förðunarkeppni á sýning-
unni Konan í Laugardalshöll þar
sem nemar í förðun og förðunarfræð-
ingar geta tekið þátt. Samkvæmt
Ónnu Rún Frímannsdóttur
förðunarmeistara verður keppt í
tveimur flokkum, nemaflokki og
meistaraflokki. „Förðunarkeppnin
er annars vegar tískuförðun og hins
vegar tímabilaförðun en þar er ekki
ákveðið þema. Tískuförðunin snýst
um það sem er í gangi hverju sinni
og þátttakendur hafa því frjálsar
hendur þar,“ segir Anna Rún sem
hvetur sem flesta til að sækja um.
,Það er hægt að sækja um á vefsíð-
unni www.islandsmot.is/konan
en þar má finna skráningar- og
keppnisreglur.“
Glæsileg dómnefnd
Förðunarkeppnin hefst klukkan
12:00 á laugardaginn og samkvæmt
Önnu Rún hafa keppendur einn og
hálfan tíma til að farða. „Það er ætl-
ast til þess að búið sé að stílísera fyr-
irsætuna þannig að hún sé tilbúin til
förðunar. Hár, fatnaður og allt slíkt
á því að vera tilbúið. Eftir að búið
er að farða hafa keppendur nokkrar
mínútur til að ganga frá sínu svæði
áður en dómnefndin gengur um sal-
inn. Dómnefndin, sem hefur 45 min-
útur til að dæma, er óvenju glæsileg.
{henni sitja Birta Björnsdóttir, förð-
unarfræðingur og fatahönnuður,
Karl Berndsen hárgreiðslumaður og
Elín Reynis förðunarmeistari."
Allir að skrá sig
Anna Rún segir að skráning verði
opin þangað til degi fyrir keppni.
„Það eru þó nokkrir búnir að skrá sig
en ég vil endilega hvetja sem flesta
til að taka þátt. Þetta er lítið mál og
bara til að hafa gaman af. Það eru ef-
laust yfir tvö þúsund förðunarfræð-
ingar í landinu og við viljum endi-
lega hvetja þá til að keppa. Svo má
ekki gleyma vinningunum en það
eru veglegir vinningar fyrir fyrstu
þrjú sætin í hvorum flokki fyrir sig,“
segir Anna Rún að lokum.
Þeir flottustu ó markaðnum:
Naturasun-
brúnkuklefar
Hafnarsportehf.erumboðsaðili
fyrir Naturasun-brúnkuklefana á
íslandi ásamt því að vera með um-
boð fyrir ýmsar aðrar vörur svo
sem Beauty White-tannhvítuefni.
Halla Ruth, annar eigandi
Hafnarsports ehf„ segir að Natur-
asun-klefarnir séu með þeim allra
bestu á markaðnum í dag og eru
þessir klefar mjög vinsælir hjá
fræga og fallega fólkinu út í heimi.
Sem dæmi með nefna að Victoria
Beckham á einn Naturasun-klefa
heima hjá sér og stjörnur á borð
við Paris Hilton, Jessicu Simpson
og Evu Longoria nota þessa klefa
að staðaldri. Einnig eru Natur-
asun-klefarnir mikið notaðir við
þáttagerð í Bandaríkjunum.
Hafnarsport tók við einkaleyf-
inu á Naturasun fyrir ári og segir
Halla að viðtökurnar hafi frá
upphafi verið mjög góðar. Hafn-
arsport hefur séð um brúnku-
meðferðir fyrir niarga íslenska
sjónvarpsþætti, svo sem Brúð-
kaupsþáttinn Já og Idol Stjörnu-
leit. Kosturinn við þessa klefa er
að þeir tryggja jafna dreifingu lit-
arins og eru því liðnir þeir dagar
að fólk mæti flekkótt á árshátíðir
eftir misheppnaðar brúnkumeð-
ferðir. Einnig tekur það mun
skemmri tíma að fara í gegnum
brúnkumeðferð í þessum klefum
en venjan er og fólk þarf ekki að
standa kyrrt í lengri tíma á meðan
Halla Ruth Naturasun-klefarnir
eru það allra flottasta í dag
það bíður eftir að brúnkan þorni.
Einnig eru boðið upp á mörg mis-
munandi litbrigði á brúnkunni
svo að engir tveir munu þurfa að
hafa sams konar brúnku.
Hafnarsport kynnir þessa klefa
um helgina á ráðstefnunni Konur
sem verður haldin i Laugardals-
höll. Þar munu verða sýningar á
klefunum þar sem vaxtarræktar-
fólk á vegum Bætts útlits í Kópa-
vogi mun koma og láta spreyja sig.
Einnig munu gestir og gangandi
eiga kost á því að prófa klefana
sem og aðrar vörur sem Hafnar-
sport hefur á boðstólunum.