blaðið - 19.10.2006, Blaðsíða 16

blaðið - 19.10.2006, Blaðsíða 16
16 I KONAN FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2006 blaöiö Náttúrlegar húð- vörur úr íslensk- um fjallajurtum Urtasmiðjan framleiðir húð- vörur unnar úr íslenskum heilsujurtum, sem um aldir hafa verið þekktar fyrir heilandi og græðandi áhrífamátt. í vör- urnar eru notaðar ýmsar jurtir, svo sem fjallagrös, vallhumall, rauðasmári og fleiri sem eru tíndar þar sem þær vaxa villtar og kraftmiklar í náttúrlegu og hreinu umhverfi á norðlenskum heiðum og fjöllum. Að sögn Gigju Kjartansdóttir, eiganda Urtasmiðjunnar, er auk jurtanna einungis notað náttúrlegt og lífrænt hráefni í framleiðsluna. Græðismyrslið góða Framleiðsla Urtasmiðjunnar skiptist í tvo vöruflokka og framleiðslan er seld undir vöru- merkinu SÓLA. Sem dæmi um framleiðslu Urtasmiðjunnar má nefna Græðismyrslið góða sem er þekkt sem áhrifaríkur græðiáburður á sár, ör, bruna og við margskonar húðvanda- málum. Vöðvaolían/gigtarolían hefur einnig reynst mörgum kærkomin hjálp gegn vöðva- bólgu, sinadrætti og eymslum og verkjum í liðum. Urtasmiðjan verður meó sýningarbás C3 á sýningunni Konan í Laugar- dalshöll og Gígja segir að þar verði margs konar spennandi sýningartilboð. Öll aðstaða fyrsta flokks Hreyfing flytur Líkamsræktarstöðin Hreyfing ætlar að stækka verulega við sig á næsta ári en þá flytur stöðin í glæsilegt húsnæði við Glæsibæ. Samkvæmt Ágústu Johnson, fram- kvæmdastjóra Hreyfingar, verður öll aðstaða í nýja húsnæðinu fyrsta flokks. „I dag erum við í tæpum tvö þúsund fermetrum en við förum upp i rúma þrjú þúsund fermetra. Það verður því mun rýmra um viðskiptavini og öll aðstaða verður glæsileg," segir Ágústa og bætir við að það séu alltaf fleiri og fleiri sem átti sig á því að það er nauðsynlegt að hreyfa sig reglulega. „Möguleik- arnir eru sífellt fleiri og fjölbrey ttari þannig að við náum til fleira fólks.“ Skemmtilegra að æfa með öðrum Allir hafa sinn háttinn á í líkams- rækt og Ágústa segir að svokallaðir lokaðir hópar séu alltaf gríðarlega vinsælir. „Fólk sækist eftir því að- haldi og hvatningu sem fylgir því að vera í lokuðum hópi. Við erum með aðhaldsnámskeið þar sem stærri hópar eru og svo minni hópa með einkaþjálfara. Svo eru almennir opnirhóptímar alltafvinsælir enþað skiptir máli að finna eitthvað sem er skemmtilegt og hæfir hverjum og einum. Líkamsþjálfun hefur verið tiltölulega almenn í 10-15 ár og fólk hefur öðlast ákveðna reynslu og kunnáttu í því hvað virkar og hvað ekki. Til að líkamsþjálfun virki þarf hún að vera skemmtileg og árangur er líklegri ef æft er í hópi.“ Hópar saman í einkaþjálfun Samkvæmt Ágústu er sífellt al- gengara að fólk nýti sér þjónustu einkaþjálfara og þá jafnvel nokkrir saman. „Það er algengt að það séu fleiri en einn í einkaþjálfun og jafn- vel allt upp í sex manns. Þetta eru þá ekki bara vinahópar heldur er líka hægt að fara inn í ókunnugan hóp. Þegar fólk er búið að ákveða að nýta pening og tíma í líkamsþjálfun þá borgar sig oft að borga aðeins meira og tryggja sér árangur með því að hafa einhvern til að halda í höndina á þér og hjálpa þér áfram. Það eru meiri líkur á að þú mætir og náir þínum markmiðum þegar það er einhver að bíða eftir þér.“ Aðspurð hvort það séu einhverjar nýjungar í líkamsrækt í haust segir Ágústa að til dæmis megi nefna Pilates sem sé ennþá ákveðin nýjung. „Svo er aukin áhersla á æfingar í litlum hópum með meiri fjölbreytileika og áhöldum. Auk þess má nefna bosubolta sem eru gríðarlega vin- sælir og eins eru jafnvægisboltarnir vinsælir." Góður árangur Ágústa Johnson: „Til að likamsþjálfun virki þarf hún að vera skemmtileg og árangur er líklegri efæft eríhópi." s€Y Af tilefni 6 ára afmœlis femin.is 20. október n.k. og viðburðarins KONAN í Laugardagshöllinni um helgina eru tilboðsdagar í netverslun femin.is á mörgum vinsœlustu vörum verslunarinnar. Kynntu þér skemmtilegar vörur og frábœr tilboð! TiífrocliKjoUsi frÁ 13. - Zf. oktífór 2.006 á 20% Keeper er mjúkur margnota gúmmíbikar til innsetningar í leggöng meðan blœð- ingar standa yfir og er notaður í stað binda og/eða tíðatappa. Hann tekur allt að 30 ml. af tíðablóði. Magn tíðablóðs meðalkonu er 80-100 ml. á hverjum blœðingum. Keeper er unninn úr náttúru- legu gúmmíi og hann endist í 10 ár. Smartfalls ftfsláttur r /o Smartballs þjálfar grindabotnsvöðvana á árangursnkan hátt sem er mikilvœgt fyrir konur á öllum aldri. Gerðu heimilis- verkin aðeins skemmtilegri. Ryksugaðu og þurrkaðu af og láttu kúlurnar vinna með þér á meðan! Smartballs er hljóðlátur og auðveldurí notkun, Dli! ofí mAoshtyyo <<r% ttfsÍÁttvur Silkimjúkt og örvandi sem eykur blóð- streymi til snípsins og veitir kitlandi tilfinn- ingu, sem veldur þvf að þú fœrð full- nœgingu á auðveldan hátt. Kremið er án ilmefna. m—3 Nmr vítur fást tfkÍM á feyruv.ú

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.