blaðið - 19.10.2006, Blaðsíða 14

blaðið - 19.10.2006, Blaðsíða 14
14 I KONAN FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2006 blaöiö Femin.is: Opna nýja heimasíðu í Bretlandi Femin.is hefur verið mjög vinsæl síða allt frá því að hún var opnuð þann 20. október árið 2000. Auk þess að halda upp á sex ára afmælið sitt í ár hafa aðstandendur síðunnar fært út kvíarnar og opnað sambæri- legan vef í Bretlandi, www.femin. co.uk. Á meðan Sýningunni stendur er frír aðgangur fyrir pabba í fylgd með börnum. Skautaleiga á staðnum. Fæst einungis gegn framvísun miðans. Nánari upplýsingar í Skautahöllinni síma 588 9705 eða í skautaholl@skautaholl.is Appelsínugulir lófar úr sögunni FLEKKLAU S AR HENDUR ÞRÁTT FYRIR BRÚNKUMEÐFERÐ Það hefur aldrci verið eins auðvelt að fjarlxgja bletti á lófum efár brúnkumeðferð. Orange Palms Preventor fjarlægir allan lit án þess að erta húðina og skilur hana eftir hreina, slétta og silkimjúka. Notaðu það með uppáhalds brúnkukreminu þínu til að fá fullkomna og flekklausa sólbrúna húð. ;RANG£ PAlMS f jjrewntor H Útsölustaðir Hagkaup og Debcnhams Konur Iris Gunnarsdóttir: „Við hugsuðum efnistök út frá okkur sjálfum, það er hvað við hugsum um og gerum sem konur frá degi til dags.“ Iris Gunnarsdóttir, framkvæmda- stjóri Femin.is, segir að breska síðan verði svipuð og sú íslenska. „Á upphafsárum Femin keyptum við Femin-lénið fyrir fleiri lönd og það var því alltaf okkar markmið að opna vefinn víðar. Hugmyndin er hins vegar alveg sú sama og þetta er vefur fyrir konur. Þarfir kvenna eru svipaðar en það er þó einhver menningarlegur munur eins og við finnum hér í Bretlandi. Við þurfum þá sérstaklega að styrkja okkur í efn- istökum hvað varðar tísku og tísku- sveiflur í Bretlandi.“ Verslunarmiðstöð á Netinu Iris og Soffía Steingrímsdóttir fengu upphaflega þá hugmynd að setja á laggirnar Femin.is, vef fyrir konur með efni, afþreyingu og upplýsingum sem höfða til kvenna. „Það var ekki til sambærilegur vefur á íslandi á þeim tíma og því var fyr- irmyndin erlend. Við hugsuðum efn- istök út frá okkur sjálfum, hvað við hugsum um og gerum sem konur frá degi til dags. Ut frá því urðu flokka- heitin til sem nú eru á Femin.is, útlit, heilsurækt, sambönd, börn og ung- lingar, sjálfstæðar konur, kynlíf og gott í gogginn. Það má heldur ekki gleyma því að i netverslun Femin.is er mikið úrval af vörum, það má í raun segja að þar sé að finna heila verslunarmiðstöð, þar sem vöru- úrval er fjölbreytt og mikið,“ segir Iris og bætir við að það heimsæki um 2300 gestir Femin.is daglega og skráðir notendur á póstlistanum eru rúmlega 16 þúsund manns. íslenska síðan, femin.is Varan heim tveimur dögum síðar Samkvæmt Irisi hefur Femin.is gengið ágætlega frá upphafi en þó einna best síðari ár. „Það hefur verið mikil aukning í netverslun en það má skýra með því að fólk er farið að nýta sér þægindin sem felast í því að versla á Netinu í meira mæli. Það er gott að geta verslað í rólegheitum heima í stofu og gefst þá jafnan tími til að hugleiða hvað skal kaupa, svo ekki sé minnst á þægindin við að fá vöruna senda heim að dyrum tveimur dögum síðar. Við á Femin erum stöðugt að leita að vörum og þá jafnan vörum sem ekki fást ann- ars staðar og flytjum töluvert inn af vörum sjálfar.“ fslenskar konur eignast börn fyrr íris segist hafa miklar væntingar til breska netmiðilsins og telur að sá tími sé kominn að Netið sé við- urkennt í margvíslegum tilgangi. „Það verður mismunandi áhersla á efnisflokka á íslenska vefnum og þeim breska. íslenskar konur eignast börn fyrr og því er efni sem tengist meðgöngu, börnum og barnauppeldi vinsælt á Femin.is. Barnaboxið hefur til dæmis verið mjög vinsælt en þar geta konur skráð sig fyrir því án endurgjalds. Þá fá þær margvísleg sýnishorn og upplýsingar um vörur og þjón- ustu sem tengist því að ganga með barn og sinna því fyrstu mánuð- ina. Breskar konur eignast börn Breska síðan, femin.co.uk mun seinna en vinna þess í stað að sínum starfsframa og vinnumark- miðum ásamt því að fylgjast með tísku og tískustraumum. En þegar ákvörðun er tekin um barneignir er ekki ólíklegt að þær komi með tvö til þrjú börn með eins stuttu millibili og náttúran leyfir." World Closs í Lougum: Styðjum vel við konur Líkamsræktarstöðina í Laugum þarf varla að kynna fyrir fólki en hún þykir sú allra glæsilegasta á landinu og hefur stöðin alla tíð frá opnun verið flaggskip World Class. Hafdís Jónsdóttir, aðstoðarfram- kvæmdastjóri World Class, segir að konum sé gert hátt undir höfði í Laugum. Barnagæsla er eitthvað sem er mörgum konum hugleikið varð- andi líkamsrækt og hvað það mál- efni varðar eru Laugar síður en svo áflæðiskeristaddar. Þareraðfinna 200 fermetra barnaparadís þar sem börn geta leikið sér í hinum ýmsu íþróttum svo sem körfubolta og fótbolta. Þar er einnig bíósalur og leikherbergi þar sem börnin geta dundað sér á meðan foreldrarnir eru við æfingar. í Laugum er einnig starfrækt snyrti- og nuddstofa, Laugar Spa, þar sem konum (sem og körlum) gefst kostur á að láta dekra við sig eftir erfiðan dag. Þar er boðið upp á ýmiskonar dekur svo sem hand- og fótsnyrtingar, slökunar- og steinanudd og andlitsböð. Hafdís segir að snyrtistofan sé mjög vinsæl hjá konum sem mörgum finnist gott að fá slakandi nudd eftir átökin í líkamsræktinni. „Karlmenn eru vissulega velkomnir á snyrtistofuna en konur eru enn sem komið er í miklum meirihluta." Einnig eru hin fjölmörgu gufuböð Lauga vinsæl en þar gefst kostur á misheitum blautgufum og þurr- gufum með ýmsum ilmum. Þar er líka að finna nuddpott með jarðsjó, sjóböð og sérstakar fótalaugar. Margar konur kjósa að æfa fjarri forvitnum augum karlpeningsins og ættu þær konur að geta stundað sína líkamsrækt í friði hjá World Class. „Við bjóðum upp á lokuð átaksnámskeið fyrir konur sem er frábær leið til að koma konum á rétta braut.“ Einnig er nýfarið af stað 12 vikna átak sem ber heitið Líkami fyrir lífið fyrir konur sem hentar konum á öllum aldri sem vilja breyta lífsstílnum til betri vegar. Það er ljóst að allir munu finna eitthvað við sitt hæfi í Laugum.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.