blaðið - 19.10.2006, Qupperneq 8
8 i
FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2006 blaðiö
Upplýsandi og skemmtilegir fyrirlestrar
Sýningin Konan sem haldin
verður í Laugardalshöll um næstu
helgi er miklu meira en sýning því
þar má líka finna óvenju glæsilega
og fjölbreytta fyrirlestrasyrpu þar
sem konur fræða konur. Ásta Ólafs-
dóttir, verkefnastjóri hjá Islands-
mót, heldur utan um fyrirlestrana
sem hún segir hvern vera öðrum
skemmtilegri. „Það sem vakti fyrir
okkur var að búa til fyrirlestra-
syrpu sem myndi upplýsa konur
og fjalla um þessi innri mál, eins
og endurmenntun, sjálfsstyrkingu,
næringu og fleira. Okkur tókst
það og viðtökurnar frá konum
sem vildu miðla reynslu sinni
hafa farið fram úr okkar björtustu
vonum og það komust færri að en
vildu.“
Kynlíf, átröskun og sjálfsstyrking
Fyrirlestrarnir verða á föstudag
og laugardag á klukkustundar
fresti og þar verður fjallað um allt
mögulegt, kynlíf, átröskun, sjálfs-
styrkingu, endurmenntun, lífið
Upplýstar konur
fyrir okkur var
upplýsa konurog
endurmenntun,
eftir fimmtugt, efri árin og margt
fleira.
„Allir fyrirlestrarnir snúa að því
að hjálpa okkur að njóta lífsins auk
þess að passa vel upp á okkur. Það
eru einungis konur sem halda fyrir-
lestranautanþessaðþaðereinnkarl-
maður í hópnum og það er Kjartan
hjá Optical Studio en hann er með
ákveðna kenningu um hvernig
konur gera mistök þegar þær velja
sér gleraugu. Hann segir að konur
eftir fertugt útbúi ómeðvitað und-
irhöku og bumbu á sér þegar þær
velja sér gleraugu. Þær velji sér röng
gleraugu sem geri það að verkum
að þær þurfa að horfa fyrir ofan
og undir gleraugun. Hann fékk því
undanþágu á að halda' fyrirlestur,“
segir Ásta og hlær. „Fyrirlestrarnir
byrja klukkan 11.30 báða dagana
og á síðunni www.islandsmot.is/
konan má sjá nákvæma dagskrá
fyrirlestranna."
Breiður hópur kvenna
Ásta segir að lagt hafi verið
upp með að höfða til breiðs hóps
kvenna með fyrirlestrunum og af
glæsilegum lista fyrirlesara má sjá
að það hefur tekist. „Þarna verða
fyrirlesarar eins og Katrín Anna
Guðmundsdóttir, talskona Femín-
istafélags íslands, Jóna Ingibjörg
Jónsdóttir, hjúkrunar- og kynfræð-
ingur, Árelía Guðmundsdóttir
lektor, Hendrikka Waage skart-
gripahönnuður, Anna Sigríður
Ólafsdóttir næringarfræðingur
og margar fleiri. Bryndís Schram
kallar fyrirlesturinn sinn „Og
hvað svo“ en hann fjallar um að á
ákveðnum aldri virðast íslenskar
konur vera óvissar um hvað þær
skuli gera næst. Súsanna Svavars-
dóttir fjallar um að konur sem hafi
lokið skyldum sínum eigi að rísa
upp á afturlappirnar og leika sér
og svo mun Guðfinna Bjarnadóttir,
rektor Háskólans í Reykjavík, vera
með áhugaverðan fyrirlestur,“ segir
Ásta og bætir við að það sé enginn
einn fyrirlestur sem hún myndi
hlusta á fremur en annan.
Heiðarleg viðskipti Fyrirtækið Rapunzel vinnur náið með bændum til að
tryggja neytendum hágæða lífrænt ræktaða vöru og til að tryggja framleið-
endum, verkamönnum og fjölskyldum þeirra mannsæmandi afmkomu og góð
vinnuskilyrði.
Heiðarleg viðskipti
og lífræn ræktun
Fyrirtækið Rapunzel i Þýska-
landi er frumkvöðull í framleiðslu
á lífrænt ræktuðum vörum og allar
vörur þess eru vottaðar lífrænt rækt-
aðar. Þegar kemur að hráefnum frá
þriðja heiminum þá kom ekki annað
til greina frá upphafi en að náin sam-
vinna við bændur væri til staðar,
bæði til að tryggja neytendum há-
gæða lífrænt ræktaða vöru og ekki
síður til að tryggja mannsæmandi
afkomu og góð vinnuskilyrði fyrir
framleiðendur, verkamenn og fjöl-
skyldur þeirra. Rapunzel hefur
verið í náinni samvinnu við Þýsku
þróunarhjálpina og þeirra sanngirn-
ismerki (fair trade) er „Hand in
Hand, lífrænt og heiðarlegt". Þetta
er fyrsta og eina sanngirnismerkið
sem sameinar heiðarleg viðskipti og
lífræna ræktun.
Rapunzel hefur starfað frá 1974 og
árið 1975 hófst náin samvinna við
bændur í Tyrklandi. Þá var stofnað
samvinnuverkefni þar sem bændum
var kennd lífræn ræktun um leið
og langtímasamningar voru gerðir
við bændurna sem tryggðu þeim
hámarksverð fyrir framleiðslu sína
og einnig tryggingu fyrir því að þeir
gætu selt alla framleiðslu sína. í
samvinnuverkefnum Rapunzel sem
og Hand in Hand-verkefnum eru
strangar reglur, annars vegar um
lífrænu ræktunina og hins vegar
um afkomu fólksins sem vinnur við
framleiðslu hráefna. Meðal annars
er þar kveðið á um að ekki megi
nota börn í vinnu, heldur þurfi þau
að fá tækifæri til að ganga í skóla.
Vörur frá Rapunzel hafa verið fáan-
legar á íslandi í mörg ár og eru nú
fáanlegar í helstu heilsuvöruversl-
unum og heilsuhillum stórmarkaða.