blaðið - 19.10.2006, Page 9

blaðið - 19.10.2006, Page 9
blaðið FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2006 Konan Nína Björk Gunnarsdótt- ir og Selma Ragnarsdóttir hafa umsjón með tískusýningum á stórsýningunni Konan íLaugar- daishöii um næstu helgi. Skemmtileg tísku- sýning með húmor A stórsýningunni Konan sem haldin verður í Laugardalshöll um næstu helgi verður glæsileg tískusýn- ing sem Nína Björk Gunnarsdóttir og Selma Ragnarsdóttir hafa staðið í ströngu við að undirbúa. Nína Björk segir að sýnd verði föt frá ákveðnum búðum og íslenskum hönnuðum, fylgihlutir, hár og förðun. „Við höfum fengið fullt af flottum konum á öllum aldri í sýninguna, sem dæmi má nefna Ingu Lind Karlsdóttur og Sif Aradóttur, ungfrú ísland. Það verða því ekki bara fyr- irsætur sem taka þátt i sýningunni heldur flottar konur á öllum aldri. Það kom mér skemmtilega á óvart hvað allar konur tóku vel í þetta og við erum ótrúlega stoltar af því.“ Karlar velkomnir líka Það verða tískusýningar laugar- daginn 21. október klukkan 15:00 og sunnudaginn 22. október klukkan 16.00. „Fyrir ofan pallinn verður risa- stór skjávarpi þannig að það komist örugglega til skila frá hverjum fatn- aðurinn er. Þetta verður stór sýning og ég gæti trúað því að hún tæki um 45 mínútur. Ég get því lofað skemmti- legri tískusýningu með húmor,“ segir Nína og vill ekkert gefa upp um hver húmorinn er. „Það verður smá uppákoma. Auk þess munu stelpur úr Listdansskólanum dansa við upphaf og í lok tískusýningar- innar. Ég vona að ég sjái sem flestar konur og að sjálfsögðu eru karlar boðnir velkomnir líka.“ Lífrænar Snyrtivörurnar frá Dr.Hauschka eru allar unnar úr lífrænt ræktuð- um lækningajurtum og olíum og eru án allra kemískra efna. Náttúrlegar snyrtivör- ur úr lífrænum jurtum Það er margt sem skiptir máli þegar hugað er að heilsunni, til að mynda að borða hollan mat, fá góðan svefn og hreyfa sig reglu- lega. Allt sem fer á húðina fer inn í líkamann og hefur ekki síður áhrif en það sem við setjum ofan í okkur. Þess vegna er mikilvægt að forðast öll þau efni sem eru óæski- leg, ekki bara í matvörum heldur einnig í snyrtivörum. Snyrtivörurnar frá Dr.Hau- schka eru allar unnar úr lífrænt ræktuðum lækningajurtum og olíum og eru án allra kemískra efna. Þær eru þróaðar af efnafræð- ingum og snyrtifræðingum og miða að því að efla heilbrigði húð- arinnar. Gengið er út frá því að lík- aminn og þar með húðin búi yfir eigin lækningamætti og að snyrti- vörurnar þjóni þeim tilgangi að styrkja þennan lækningamátt og þannig að hjálpa húðinni að við- halda heilbrigði. Lífræn ræktun frá upphafi Dr.Hauschka-snyrtivörurnar hafa verið framleiddar í 39 ár og hafa á þessum tíma sannað gildi sitt. í dag eru þær einna þekkt- ustu náttúrlegu snyrtivörur í heiminum. Dr.Hauschka er með eigin jurtagarð með 150 lækninga- jurtum þar sem ræktunin hefur verið lifræn frá upphafi. Þeir reka einnig búgarð þar sem fram fer líf- ræn ræktun og þar er framleiddur stór hluti af þeim jurtum sem þeir þurfa í framleiðsluna. Dr.Hau- schka býður upp á heildarlínu fyrir andlit, líkama og hár fyrir alla fjölskylduna og þær má fá í versluninni Yggdrasil. Peningar og punktar, allt sem þú þarft! e2 Vildarkort er nýtt VISA kreditkort sem veitir korthöfum bæði Vildarpunkta lcelandairog endurgreiðslu - allt í sömu færslunni, hvar sem þú verslar innanlands. Kostlr e2 Vildarkortsins: • Þú þarft engu að breyta í innkaupum - Þú færð bæði Vildarpunkta og endurgreiðslu hvar sem þú verslar innanlands. • Þú færð Vildarpunkta og endurgreiðslu af öllum boðgreiðslum eins og orkureikningum, leikskólagjöldum, fasteignagjöldum, sjónvarpsáskriftinni ogöllu hinu sem fylgir því að reka heimili. • Þú færð 0,65-25% viðbótarendurgreiðslu eða viðbótarvildarpunkta ogýmis sértilboð hjá næstum 400 fyrirtækjum. • Með því að nota e2 Vildarkortið geturðu áunnið þér tugi þúsunda Vildarpunkta sem hægt er að nota til að komast út í heim með lcelandair og tugi þúsunda króna sem þú notar í það sem þér hentar! Þú sækir um á www.e2.is Allir geta sótt um kortið óháð viðskiptabanka SPRON / Slmi: 550 1400 / thjonusta@e2.is / www.e2.is Vildarkort Allt í einu korti

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.