blaðið - 19.10.2006, Síða 10
10 i
FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2006 blaðið
Shift kremin gefa fallegan lit
SEM ENDIST LENGUR
Shift kremin fást á sólbaðstofum
Ibiza, Lindarsól, Fjarðarsól, Sólbaðsstofa Njarðvíkur,
ÍSJAKANUM VESTMANNAEYJUM, PERLUSÓL EgILSSTÖÐUM
Dreifing Salon Beauty s 893 8932
NATURASUN "lang fremstir í sínu fagi"
Kvenleg útgáfa Hildur Hermóðs-
dóttir: „Mér fannst að bókaútgáfu
á Islandi væri alfarið stjórnað af
körlum og miðuð út frá körlum.
Mig iangaði til að breyta því og
það var ástæðan fyrir því að ég
natura
pure natural spray tanning
dreifingaraðili: Hafnarsport ehf. sími: 5173700 / 8202188 / 6613700
www.hafnarsport.is
Bókoútgófon Solko
Kvenlegt forlag fyrir alla
Bókaútgáfan Salka var stofnuð
fyrir sex árum og Hildur Hermóðs-
dóttir útgefandi segir að hún hafi
lengi gengið með þann draum í
maganum að stofna bókaútgáfu
fyrir konur. „Mér fannst að bókaút-
gáfu á Islandi væri alfarið stjórnað
af körlum og miðuð út frá körlum.
Mig langaði til að breyta því og það
var ástæðan fyrir því að ég fór út í
reksturinn. Við höfum því alltaf
lagt áherslu á bækur fyrir konur
þó við gefum vitanlega út aðrar
bækur,“ segir Hildur og bætir við að
meirihluti bókanna er eftir kvenhöf-
unda en útgáfan sé líka með bækur
eftir karlhöfunda. „Það eru margir
karlar sem vinna fyrir okkur, bæði
sem höfundar, hönnuðir og þýð-
endur. Samt sem áður er þetta mjög
kvenmiðað forlag.“
Hugur, líkami og sál
Hildur segir að viðtökurnar við
Sölku hafi alla tíð verið mjög góðar
en fyrirtækið hefur stækkað jafnt og
þétt síðustu árin. „Við höfum fengið
mikinn stuðning
frá konum og
þær vilja gjarnan
versla við okkur.
Við erum líka
meðansisniðugan
klúbb sem við
köllum Hugur, lík- !
ami og sál. Þetta
er uppbyggilegur
bókaklúbbur, nokk-
urs konar sjálfs-
ræktarklúbbur
sem sendir út upp-
byggilegar bækur
fjórum sinnum á
ári til félaga sinna.
Bækurnar eru allar
Endalaus
orka!
RAUÐHETTUKLÚBBURINN
Tóp og fjör ef tir fimmtugt
tengdar andlegri eða líkamlegri
heilsu. Það er ákveðið gjald fyrir
hverja sendingu, ff, l
2290 krónur, og í
hverri sendingu
er góð bók sem
er 30 prósent
ódýrari en úti
í búð auk þess
sem heimsend-
ingin er frí. Þetta
hefur verið mjög
vinsæll klúbbur,
félagarnir eru
margir og þar er
til dæmis hópur
af körlum,“ segir
Hildur og hlær.
Fimmtugar og jákvæðar
Salka verður á sýningunni Konan
sem haldin verður í Laugardalshöll-
inni næstu helgi og um svipað leyti
kemur út bókin Rauðhettuklúbb-
urinn - Táp og fjör eftir fimmtugt.
„Rauðhettuklúbburinn er bók um
það hvernig konur sem eru búnar
að skila börnunum út í
heiminn geta farið að
njóta lífsins og frelsis-
ins betur. Bókin sýnir
hvernig þær geti Íitið
á fimmtugsaldurinn
sem jákvæðan þátt í
stað neikvæðs. Sús-
anna Svavarsdóttir
l þýddi bókina sem
er einkar skemmti-
leg,“ segir Hildur
en Salka gaf út
aðra áhugaverða
bók á dögunum.
„Síðastliðinn laug-
ardag gáfum við
út bókina Rósa-
leppaprjón í nýjuljósi. Héléne Magn-
ússon er franskur hönnuður og
höfundur bókarinnar
sem er um hönnun
sem hún byggir á
rósaleppaprjóni en
það eru lepparnir
sem voru settir í
sauðskinnsskó í
gamla daga. Það
eru alls kyns falleg
mynstur í prjóninu
og þetta notar Héléne
til nútímahönnunar.
Hún opnaði sýningu
í Þjóðminjasafninu
á laugardaginn og
þar mátti sjá rosalega
flottar flíkur.“
Bók um átröskun væntanleg
Hildur segir að Salka gefi bækur
út reglulega allt árið í stað þess að
einblína á jólavertíðina. „Fljótlega
kemur út bók hjá okkur sem heitir
Burt með draslið og kennir okkur
hvernig við eigum að losa okkur
við draslið sem safnast í kringum
mann. Þannig má einfalda líf sitt að-
eins. Við erum líka með bók um át-
röskun í smíðum en hún kemur út í
byrjun janúar. Bókin er eftir tvær ís-
lenskar konur, önnur var illa haldin
af átröskun og hin er hjúkrunar-
fræðingur sem hefur unnið mikið
með átröskunarsjúklinga. Bókin er
því saga þeirra sem hafa reynsluna
sem og fagleg úttekt á sjúkdómnum,“
segir Hildur og bætir við að svo séu
nokkrar bækur hjá Sölku sem seljist
alltaf vel. „Fyrst ég gat hætt getur
þú það líka eftir Valgeir Skagfjörð
er vinsæl bók og eins hefur djús-
bókin Endalaus orka verið rosalega
vinsæl.“