blaðið - 19.10.2006, Síða 22
FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2006 blaöiö
22 i
Barna- og fjölskylduljósmyndir ehf.
Helmingsafsláttur af myndatökum
Mikil gæði „Við vinnum allar myndirnar hér, frá upphafi til enda og þannig
getum við tryggt að þærséu í mjög miklum gæðum."
Það verður sífellt algengara að fólk
leiti til ljósmyndara til að fá myndir
teknar af sér og sínum ástvinum.
Gunnar Leifur Jónasson fer ekki
varhluta af því en hann rekur ljós-
myndastofuna Barna- og fjölskyldu-
ljósmyndir ehf. í Núpalind í. „Ég hef
verið með þessa stofu í tíu ár og mín til-
finning er sú að með stafrænni tækni
hefur það aukist að fólk fari í mynda-
töku. Myndirnar sem eru teknar
heima eru bara í tölvunni en eru
aldrei framkallaðar,“ segir Gunnar
sem verður með bás á viðburðinum
Konan í Laugardalshöllinni um helg-
ina. „Við verðum með svakalega gott
tilboð sem við kynnum á sýningunni
og það kemur á heimasíðuna okkar
á föstudag. Við ætlum að bjóða 50
prósent afslátt af öllum þeim mynda-
tökum sem verða bókaðar í næstu
viku. Auk þess munum við taka
ókeypis mynd af öllum þeim sem
vilja á sýningunni og prenta hana út.
Síðar í vikunni er svo hægt að koma
til okkar með myndina, panta jóla-
kort eða fá stærri mynd.“
Mikilgæðiog sam-
vinna við foreldra
Gunnar og samstarfsmenn eru
vanir að taka myndir af börnum en
hann viðurkennir fúslega að til þess
þurfi vissa tækni. „Við erum fimm
sem vinnum hér og við eigum alls
Ókeypis myndataka„A sýningunni
Konan munum við taka ókeypis
mynd af öllum þeim sem vilja og
prenta hana út.”
nítján börn þannig að við þekkjum
börn vel og erum lagin að vinna
með þeim. Myndirnar eru teknar í
mikilli samvinnu við foreldrana og
hvað þeir vilja gera, svo beitum við
okkar þekkingu og reynslu til að ná
því fram. Það er smellt af og myndin
birtist á skjánum strax þannig að
foreldrarnir geta sagt til ef þeir
vilja breytingar," segir Gunnar
og bætir við að í dag sé allt miklu
opnara í ljósmyndun og fólk velur
sjálft hvaða myndir það vill kaupa.
.Möguleikarnir eru líka óendanlegir,
hægt er að fá myndirnar á striga
og margt fleira. Við munum líka
kynna nýtt forrit um helgina sem
gerir okkur kleift að raða alls kyns
myndum saman á eina stóra mynd
sem kemur mjög vel út. Við vinnum
allar myndirnar hér, frá upphafi til
enda og þannig getum við tryggt að
þær séu í mjög miklum gæðum.“
www.ljosmyndir.net
Smyrslin frá Villimey eru 100% náttúruleg og unnin úr íslenskum jurtum, án allra
rotvarna-, ilm- og litarefna. Unnið er að lífrænni vottun við Vottunarstofuna Tún.
Vöðva- og liðagaldur hefur reynst sérstaklega vel á beinhlmnubólgu, vöövabólgu, sinaskeiöabólgu,
auma liði, kúlur á höfði, flóa- og mýbit. Er jafnframt frábært nuddsmyrsl.
Sáragaldur reynist mjög vel á minniháttar sár, brunasár, skrámur, kynfæri og útvortis gyllinæö.
Bossagaldur reynist einstaklega vel á viökvæmt bleiusvæði smábarna. Er jafnframt frábært smyrsl á
þurrkubletti og til aö verja litlar kinnar í frosti.
Fótagaldur er mjög gott smyrsl á fætur og húö vegna sveppasýkingar, sprungur á iljum og ef grefur
í sárum. Er jafnframt fábært á kynfæri kvenna og karla vegna sveppasýkingar, kláöa eða annarra
óþæginda og getur verið fyrirbyggjandi vegna (fyrir) þvagfærasýkingar.
Húðgaldur reynist kláöastillandi, mýkjandi og græðandi á exem, sólarexem, soriasis og aðra húðkvilla.
Bumbugaldur er mjög gott smyrsl á strekkta húð ófrískra kvenna, sem og þurra húö. Vinnur gegn sliti.
Varagaldur er mjög mýkjandi, græöandi og góður á frunsur, það reynist líka vel að setja hann undir
eða yfir varalit.
Sölustaðir
Maður lifandi, Yggdrasill, Blómaval RVK og Akureyri, Fjarðarkaup,
Landnámssetrið Galdrasýningin á Ströndum, Nýland Eiðistorgi,
Heilsuhúsunum, Verslunin Vala Sólheimum og Lyfju um land allt.
VILLIMEY
Nánari upplýsingar um virkni, notkun, innihald og sölustaöi smyrslanna er að
finna á villimey.is villimey@villimey.is og í síma 892-8273
Sigraðist ó brjóstakrabba
Tekst næst á við
Grænlandsjökul
Grunnskólakennarinn Marta
Guðmunda Guðmundsdóttir
greindist með brjóstakrabbamein
í október 2005,35 ára gömul. Hún
hóf fljótlega lyfjameðferð og barð-
ist af öllum krafti gegn krabba-
meininu. Að lokinni strangri
lyfjameðferð hefur hún náð fullri
heilsu á ný og hyggst hún nú ásamt
öðrum ganga þvert yfir Græn-
landsjökul í lok maí á næsta ári.
Marta segist hafa komist í
kynni við þennan hóp þegar hún
var hálfnuð í lyfjameðferð. „Ég
var í miðri meðferð þegar ég sá
grein í Morgunblaðinu frá konu
sem heitir Katelijne Van Heuk-
elom, þar sem auglýst var eftir
íslenskum þátttakendum sem
hafa sigrast á krabbameini
í þessa fyrirhuguðu ferð yfir
Grænlandsjökul."
Marta þurfti ekki að hugsa sig
lengi um áður en hún hringdi
og bauð sig fram til þátttöku í
þessum leiðangri. „Ég var búin að
hreyfa mig allan tímann á meðan
á lyfjameðferðinni stóð og taldi ég
því að þetta væri eitthvað sem ég
gæti ráðið við.“
Leiðin sem verður gengin er
600 kílómetra löng. Áætlað er að
leiðangurinn gangi um 35 kíló-
metra á degi hverjum í 20 daga.
Aðspurð hvort hún kvíði fyrir þess-
ari miklu göngu segist hún taka
þeim ótta með jafnaðargeði. „Ég
hef bara sama hátt á og ég hafði
í lyfjameðferðinni, tek einn dag í
einu. Mér tókst að fara í gegnum
meðferð sem er helvíti á jörð
þannig að ég hlýt að hafa nægan
andlegan styrk til að ganga yfir
Grænlandsjökul."
Marta þakkar heilbrigðu líferni
sínu áður en hún veiktist fyrir það
Marta Guðmunda Gekk ígegn-
um helvíti á jörð, ætti að geta
ráðið við Grænlandsjökul
hversu vel henni hefur gengið að
berjast við sinn sjúkdóm. Hún seg-
ist fullviss um að hún væri ekki í
þeim sporum sem hún er í núna ef
hún hefði ekki verið á góðu líkam-
legu ástandi fyrir.
Aðstandendur sýningarinnar
Konan hafa valið að styrkja mál-
stað Mörtu með peningasöfnun
á sýningunni. Þar munu verða
seld létt nuddtæki sem hafa hlotið
heitið Magnaða Marta og segir
Dagmar Haraldsdóttir, fram-
kvæmdastjóri IceXpo, að það sé
mjög verðugt verkefni að safna
fyrir Mörtu. „Það eiga allar konur
að eiga Mögnuðu Mörtu í skúff-
unni sinni eða tösku og þegar þær
eru orðnar þreyttar taka þær upp
Mögnuðu Mörtu og nudda þreyt-
una úr sér. í Mögnuðu Mörtu felst
styrkur og vellíðan, það finnst
okkur táknrænt."
Sjá nánar: www.circle66.org.