blaðið - 26.10.2006, Page 4

blaðið - 26.10.2006, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2006 blaðið INNLENT STJÚRNMÁL flrni Þór í slaginn Árni Þór Sigurðsson, borgarfulltrúi Vinstri grænna, hefur ákveöiö að gefa kost á sér í forvali flokksins í Reykjavíkurkjörciæmum og Kraganum. Árni Þór skipaði annað sæti á lista flokksins fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar. SELFOSS Nítján sektaðir Fimmtán ökumenn voru sektaðir í umdæmi Selfosslögreglunnar fyrir að nota ekki bílbelti. Enn fremur voru fjórir ökumenn sektaðir fyrir að tala í farsíma við akstur án þess að nota handfrjálsan búnað. VIÐSKIPTI FL Group fær risalán Fjárfestingarfélagið FL Group undirritaði í gær lánssamning upp á tæpa 22 milljarða til að fjármagna kaup félagsins á hlut í Glitni banka. Um er að ræða sambankalán frá Unicredit Group með milligöngu þýska bankans Bayerische Hypo- und Vereinsbank AG. Danmörk: Vilja ekki Nyhedsavisen Tvö stór fasteignafélög sem leigja út íbúðir í Kaupmanna- höfn, Dam-Ejendomme og FSB, hafa neitað að afhenda forsvars- mönnum Nyhedsavisen lykla til að unnt sé að dreifa blaðinu í um fjörutíu þúsund íbúðir i höfuðborginni. Talsmenn fyrir- tækjanna segja að nóg sé komið af fríblöðum en Dato og 24timer er nú þegar dreift í íbúðirnar. Upplag Nyhedsavisen er um fjögur hundruð þúsund um þessar mundir en stefnan hefur verið sett á að dreifa sjö hundruð þúsund blöðum á næsta ári. Blaðinu er dreift í Kaupmanna- höfn, Óðinsvéum ogÁrósum. Barnaklám í Brekkubæjarskóla Upp komst um manninn þegar samkennari hans tók eftir því að barnaklám hafði verið prent- að út úr tölvunni ískólanum. Eftir Val Grettisson valur@bladid.net „Þetta dvelur allt í höfðinu og tölvunni en ég gerði börnunum aldrei neitt,“ segir kennari á sextugsaldri sem var handtekinn í Brekkubæjarskóla fyrr í þessum mánuði, eftir að myndir af börnum í kynlífsathöfnum fundust í tölvu hans. Það var samkennari sem rak augun í myndirnar og tilkynnti skólayfirvöldum umsvifalaust. Að sögn mannsins játaði hann umsvifa- laust fyrir skólastjóranum að mynd- irnar væru hans eign. í kjölfarið gerði lögreglan húsleit hjá honum og fannst þá talsvert af barnaklámi í tölvu hans. Maðurinn var handtek- inn í skólanum sjálfum eftir að venju- legum skólatíma lauk. „Ég er háður barnaklámi,“ segir kennarinn en hann er byrjaður í sálfræðimeðferð sem miðar að því að aðstoða hann til þess að hætta að skoða klámið. Maðurinn kenndi í Brekkubæjarskóla í 27 ár og hefur verið kosinn vinsælasti kennarinn í fjölmörg ár. Hann hafði ávallt verið vel liðinn í skólanum og samfélaginu. Enginn grunaði hann um græsku öll þessi ár. „Ég var heppinn að vera vel liðinn og enginn af mínum nánustu hefur snúið við mér bakinu, það er ákveð- inn ljósgeisli," segir kennarinn en harin heldur ekki til á Akranesi nú, heldur dvelur í Reykjavík. Hann seg- ist ekki vita hvað taki við. „Ég bara trúði þessu ekki í fyrstu," segir móðir unglings sem maðurinn kenndi en allir foreldrar voru kall- aðir á fund þegar brotið komst upp og málið útskýrt. Hún segir foreldr- ana í sjokki en maðurinn var umsjón- arkennari barns hennar. Hún segir viðhorf unglinganna sem hann kenndi og foreldra vera þau að maðurinn sé augljóslega sjúkur. Hún segir hann hafa komið fyrir sjónir sem besti maður og hann virtist fyndinn og skemmtilegur. Hún segist ekki dæma hann harka- lega en verknaðurinn sé ófyrirgef- anlegur. „Ég var sjálf nemandi hjá honum fyrir löngu,“ segir móðirin en aðspurð segist hún ekki geta sett hegðun hans í samhengi eftir á sem benti til þess að hann væri fíkinn í barnaklám. Málið hafi komið öllum i opna skjöldu. Móðirin vonar að maðurinn geti unnið sig út úr þessu en bætir við að hann eigi ekkert með það að kenna. Hún segir viðbrögð barns síns ekki vera harkaleg né einkennast af móð- ursýki eins og hún orðaðiþað, heldur er litið á kennarann sem veikan mann. Lögreglan á Akranesi rannsakar málið og er enn verið að skoða tölv- una. Að sögn Viðars Stefánssonar, lögreglufulltrúa á Akranesi, er ekk- ert sem bendir til þess að kennarinn hafi beitt börn ofbeldi. Allar mynd- irnar virðast vera af erlendum heima- síðum og með erlendum börnum. Hann vill ekki gefa upp umfang myndanna. Noregur: Kyrkislanga í klósettinu Kona frá Kristianssand í Noregi rakst á kyrkislöngu í kló- settskálinni þegar hún ætlaði að létta á sér heima hjá sér. „Ég var alveg að setjast þegar ég sá eitthvað mjög dökkt og stórt í skálinni," segir Bente Morch. Henni brá mikið þegar hún komst að því að um væri að ræða tveggja metra langa slöngu og kallaði til lögreglu. Talið er að slangan hafi skriðið í gegnum klóakrörin og þannig náð að hreiðra um sig í klósettskálinni.. Óþekkta númerið: Hjá fjármála- ráði sósíalista Þriðja númerið sem getið er um í gögnunum um hleranir á símum Kjartans Ólafssonar, fyrr- verandi þingmanns og ritstjóra, var hjá Ijármálaráði Sósíalista- flokksins. Þetta kom í ljós er flett var í gömlum símaskrám. Kjartan Ólafsson þekkti tvö af þremur símanúmerum sem hleruð voru samkvæmt gögnum er hann fékk. Hið þriðja þekkti hann ekk en var sem sagt hjá fjármálaráði Sósíalistaflokksins. Þjóðverjar verða sýnilegri erlendis: Herinn stokkaður Kplheilsa ftji MUI -h»f6u þ»ð gott C-IOOO Ext/a sterkt, náttúrulegt C-vltamin með rósaberjum, rútfni og bióf lavónlöum 60 töflur Sólargeislinn í skammdeginu fS?i K9iheilsa '*oAv°' mM.ÆB -hafóuþaö gott Þýska ríkisstjórnin samþykkti í gær nýja hernaðarstefnu sem treystir í sessi þá þróun sem hefur átt sér stað síðustu tólf ár. Á þeim tfma hafa Þjóðverjar f auknum mæli aukið umsvif sín í friðar- gæslu og öðrum hernaðaraðgerðum tengdum henni á alþjóðavettvangi. Hernaðarstefnan byggist á að þýski herinn komi sér upp getu til að senda 14 þúsund hermenn til friðargæsluverkefna erlendis og að hann geti tekið þátt í fimm verk- efnum samtímis. 250 þúsund manns eru nú í þýska hernum og eru níu þúsund við frið- argæslu víðsvegar um heim um þessar mundir. í hernaðarstefnunni kemur fram að landvarnir og varnir gegn árásum á bandamenn Þjóðverja sé áfram helsta verkefni hersins en þátttaka hans í friðargæslu og viðbrögðum við neyðarástandi á alþjóðavettvangi séu líklegustu verkefni hans í náinni framtíð ásamt baráttunni gegn hryðjuverkamönnum. Þessi verkefni munu móta uppbyggingu hersins samkvæmt stefnunni. Þrátt fyrir að hernaðarstefnan staðfesti ákveðna þróun er ítrekuð áherslan á Atlantshafstengslin og sameiginlega varnarstefnu Evrópusambandsins. upp Horft fram á veginn Þýskur hermaö- ur í Afganistan Hvalur 9: Þriðja bráðin Áhöfn Hvals 9 skaut i gær- morgun rétt vestur af Snæfells- nesi þriðju langreyðina á rétt rúmri viku. Hún er urn 60 fet að lengd og mjög svipuð þeirri sem skotin var síðastliðinn mánudag. Reiknað er með Hvalur 9 komi með afla sinn til hafnar fyrir hádegi í dag og haldi síðan fljótlega aftur út á miðin. Hreint ehf. var stofnað árið 1983 og er eitt elsta og stærsta ræstingarfyrirtæki landsins. Er HREINT hjá þínu fyrirtæki Hreint Auðbrekku 8, 200 Kópavogi, sími 554 6088, hreint@hreint.is, www.hreint.is

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.