blaðið


blaðið - 26.10.2006, Qupperneq 8

blaðið - 26.10.2006, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2006 blaöiö UTAN ÚR HEIMI ÍSRAEL Olmert rannsakaður vegna mútumáls Ríkissaksóknari ísraels hefur tekið til rannsóknar ásak- anir um að Ehud Olmert forsætisráðherra hafi verið viðr- iðinn mútumál vegna einkavæðingar ríkisbanka þegar hann var fjármálaráðherra í ríkisstjórn Ariels Sharons. Olmert hefur lýstyfir sakleysi sínu. iMUt Eru „tæknilega” í stríði Eþíópíumenn eru tæknilega í stríði við Samtök íslamskra dómstóla sem ráða lögum og lofum í Sómalíu að sögn Meles Zenawis forsætisráð- herra. Hann segir íslamista reyna að fá Eþíópíu í stríð með því að lýsa ítrekað yfir heilögu stríði. Pútín varar við harðlínustefnu Vladímír Pútín Rússlandsforseti varar við því að alþjóðasamfélagið ein- angri Norður-Kóreu og segir það geta orðið til að Norður-Kórea freisti þess aö auka enn á spennuna í samskiptum sínum við umheiminn. Pú- tín segir stjórnvöld í Pjongjang hafa ákveðið að ögra alþjóðasamfélag- inu með kjarnorkutilraunum því ekkert hafi gengið við samningaborðið. Neytendasamtökin í hugmyndavinnu: Öflugri neytendur Neytendasamtökin hafa ákveðið að koma á fót átta nefndum sem fjalla eiga um hin ýmsu neytendamál og koma með tillögur til úrbóta. Meðal þess sem nefndirnar koma til með að fjalla um eru úrbætur á neyt- endalöggjöf, úttekt á kostum og göllum Evrópusambandsins og fjármál heimilanna. Jóhannes Gunnarsson, for- Markmiðið sé að virkja neytendur Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna maður Neytendasamtakanna, segir að markmiðið sé að virkja neytendur en miðað er við að Við búðarborðið Neytendasam- tökin hefja vinnu um úrbætur á neytendalöggjöf. nefndirnar skili inn fullgerðum tillögum fyrir stjórnarfund sam- takanna næstkomandi febrúar. Launavernd tryggir áframhaldandi tekjur fjölskyldunnar komi til launamissis vegna fráfalls, sjúkdóma eöa örorku. Auk þess byggir þú upp viöbótarlífeyrissparnað sem eykur fjárhagslegt sjálfstæöi þitt viö starfslok. Uppfæröu launareikninginn þinn meö Launavemd. Komdu viö i næsta útibúi, hafðu samband í síma 410 4000 eöa faröu á landsbanki.is og fáöu nánari upplýsingar. Landsbankinn Banki allra landsmanna Launavernd Landsbankans Hjördis Davíðsdóttir Þykir mismunun svínaræi og segir þingmenn njóta góðra launa, öfugt við öryrkja. Ferðastyrkir þingmanna skattfrjálsir: Svínarí og óréttlæti ■ Öryrkjar skattskyldir en þingmenn ekki ■ Styrkurinn fylgir ekki bensínverði Eftir Atla Isleifsson atlii@bladid.net ,Mér finnst þetta svínarí, því þing- menn eru á góðum launum fyrir,“ segir Hjördís Davíðsdóttir öryrki. ,Með allar þessar sporslur og þær upp- hæðir sem þingmenn fá borgaðar þá er einfaldlega ekkert réttlæti í þessu. Þingmenn hugsa lítið um fólkið í landinu og í raun virðist sem svo að gengið sé eins langt með launþega og mögulega er hægt. Eins og við sjáum nú þá sýna þingmenn sig i próf- kjörunum og segja að laga þurfi hitt og þetta. Þetta eru hins vegar sömu hlutir og sagðir voru fyrir fjórum árum og ekkert hefur breyst.“ Þingmenn Alþingis fá greiddan mánaðarlegan ferðakostnað að upphæð 53.760 krónur. Auk fastrar greiðslu fyrir ferðakostnaði í kjör- dæmi eiga þingmenn rétt á að fá endurgreiddan ferðakostnað milli heimilis og Alþingis á eigin bil eða með almenningsfarartækjum. I reglum um starfskjör alþingismanna kemur fram að að frátöldu þingfarar- kaupi og föstum starfskostnaði eru allar greiðslur til þingmanna undan- skildar tekju- og eignarskatti. Mán- aðarlegur bensinstyrkur til öryrkja nemur hins vegar 8.577 krónum og er sá styrkur skattskyldur. Guðríður Ólafsdóttir, félagsmála- fulltrúi Öryrkjabandalagsins, segir styrkinn bráðnauðsynlegan fyrir þá öryrkja sem hann fá. „Það væri mikil bót í máli væri hann ekki skattskyldur fyrst styrkurinn fylgir ekki bens- ínverði..“ Guðríður segir mikla hreyfihömlun forsendu fyrir að fólk fái bensínstyrkina. „Það hefur verið mikil barátta fyrir fólk sem er gönguskert að fá þennan styrk. Eins og staðan er nú virðast þeir sem eru á hækjum og í hjólastólum fá styrkinn en aðrir ekki. Styrkurinn á fyrst og fremst að vera til þess að létta fólki það að geta komið til vinnu, til læknis og í þjálfun. Bíllinn er nauð- synlegt farartæki fyrir það fólk sem erhreyfihamlað. Þetta er mikið atriði fyr'ir hreyfihamlaða á vinnumarkaði að hafa góðan bíl og bensínstyrk til að létta róðurinn því að nóg er það samt.“ Guðríður segir nauðsynlegt að setjast niður og ræða hvernig eigi að haga þessum málum. „Okkur finnst skrýtið að þessi styrkur sé skatt- skyldur en ferðastyrkir þingmanna ekki. Sömuleiðis hefur reynst mjög erfitt fyrir fólk sem á erfitt með gang, en notar hvorki staf né hjólastól, að fá bensínstyrk. Oftast hefur þurft að kæra málin til úrskurðarnefndar." Mismunun Bensínstyrkur öryrkja hefur alltaf verið skattskyldur en endurgreiðsla vegna ferðakostnaðar þingmanna er undanskilin skatti, segir Hjördís Davíðsdóttir. HEREFORD S T E I K H Ú S Laugavegur 53b • 101 Reykjavík 5 11 3350 • www.bererorcl.is Magnað tilboð á Hereford — alla vikuna Glæsilegur 3ja rétta matseðill á aðeins 5.200,- <n: 511 3350 Hereford nautasteikurnar eru rómaðar, þú velur stærð, steikingu og meðlæti. Magnað!

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.