blaðið - 26.10.2006, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2006
blaðið
UTAN ÚR HEIMI
AFGANISTAN
Fundu níu tonn af marijúana
Hermenn Atlantshafsbandalagsins og afganska
lögreglan gerðu meira en níu tonn af marijúana
upptæk í suðurhluta Afganistans að sögn yfir-
valda í gær. Fíkniefnin fundust í vöruflutningabif-
reið á þjóðveginum milli Kandahar og Kabúl.
AUSTURRÍKI
Hreyfing hjálpar reykingamönnum
Ný austurrísk rannsókn bendir til þess að reykinga-
menn sem nota nikótíntyggjó eða plástra ásamt því
að stunda líkamsrækt séu mun líklegri til þess að
takast að hætta til frambúðar en þeir sem reiða sig
eingöngu á plástrana eða tyggjóið.
Segir Clinton eiga möguleika
Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, segir Hillary Clinton eiga góða
möguleika á að sigra í næstu forsetakosningunum og verða fyrsti kven-
forseti Bandaríkjarina. Hann varar félaga sína í Repúblikanaflokknum
við að vanmeta hana. Líklegt þykir að Hillary sækist eftir tilnefningu
demókrata fyrir forsetakosningarnar en sjálf segir hún ekkert.
Enn dökknar útlitið fyrir repúblikana:
Óháðir styðja demókrata
Samkvæmt nýrri könnun dag-
blaðsins Washington Post og sjón-
varpsstöðvarinnar ABC njóta demó-
kratar mun meiri stuðnings meðal
óflokksbundinna kjósenda í Banda-
ríkjunum en repúblikanar og er lík-
legt að sá stuðningur verði til þess
að þeir nái meirihluta á kostnað
repúblikana í fulltrúadeildinni
eftir þingkosningarnar í byrjun
næsta mánaðar. Þrátt fyrir að efna-
hagshorfur séu góðar um þessar
mundir styrkir það ekki stöðu
Repúblikanaflokksins.
ðflokksbundnir kjósendur munu
að öllum líkindum ráða mestu um
niðurstöðu kosninganna þar sem
kannanir sýna að þeir sem líta á
sig sem demókrata eða repúblikana
standa þétt að baki frambjóðendum
sinna flokka. Samkvæmt könnun-
inni segjast 59 prósent óflokksbund-
inna kjósenda styðja frambjóðendur
Demókrataflokksins á meðan 31
prósent ætlar að styðja Repúblikana-
flokkinn. f könnuninni kemur fram
að afstaða óflokksbundinna ræðst
helst af ástandinu í frak og hve
ósáttur meirihluti þeirra er með það
hvert þjóðfélag þeirra er að stefna.
Könnunin spáir ekki fyrir um nið-
urstöður í einstökum kjördæmum
en þykir benda til þess að miklar
líkur séu á að demókratar bæti við
sig þeim fimmtán sætum sem þeir
þurfa til þess að ná meirihluta í
fulltrúadeildinni. Einnig kemur
fram að þeir hafi möguleika á að
fá meirihluta í öldungadeildinni,
þar þurfa þeir að bæta við sig sex
sætum, þrátt fyrir að staða repúblik-
ana hafi þótt vera sterkari þar en í
fulltrúadeildinni.
Tékkaðu á honum
og þú verður ekki fyrir vonbrigðum
Hinn heimsþekkti
Budweiser Budvar
er seldur til 52 landa
víðs vegar um heiminn
Vinsældir hans eru
ekki síst að þakka
þeirri staðreynd
að hann er bruggaður
á einum stað og eingöngu
úr bestu fáanlegu hráefnum
Hann er alltaf, alls staðar
UPPAHALDSBJÓR MARGRA KYNSLÓÐA
LÉTTÖL
.
Raforkulög stuðla að mikilli verðhækkun:
Lítið um
samkeppni
■ lönaöarráöuneytiö fylgist með þróun mála
B Lítil heimili tapa mestu
.Vegna þess hversu fá raforkufyrir-
tæki eru hér á landi með háa mark-
aðshlutdeild, stuðla núgildandi raf-
orkulög einungis að mikilli hækkun
á raforkuverði til neytenda," segir Jó-
hannes Gunnarsson, formaður Neyt-
endasamtakanna, og bendir á að
samtökin hafi varað við því að taka
upp ný raforkulög 2003 á grundvelli
Evróputilskipana. Hann segir ísland
ekki sitja við sama borð og aðrar Evr-
ópuþjóðir á meginlandinu sem geti
keypt raforku milli landa og þannig
séum við ekki hluti af rafmagnskerfi
heimsálfunnar. Á þeim forsendum
hefði átt að sækja um undanþágu á
nýju lögunum.
Tvískipt þjónusta
í upphafi árs 2005 varð raforku-
þjónustan tvískipt til neytenda í
þeim tilgangi að auka samkeppni í
sölu raforku. Annars vegar greiða
notendur fastagjald fyrir dreifingu
raforkunnar og hins vegar fyrir
sölu og framleiðslu hennar. Fasta-
gjaldið, sem greiðist óháð notkun,
hefur margfaldast með ný lögunum
og kemur mest niður'á minni heim-
ilum. Fastagjaldshækkunin er víða á
annað hundrað prósent. Gjaldskrár
orkufyrirtækja hafa einnig tekið
miklum breytingum eftir að lögin
voru sett. Mesta hækkunin hefur
orðið hjá heimilum og smærri fyrir-
tækjum þar sem fjórðungshækkun í
þéttbýli og helmingshækkun í dreif-
býli hefur átt sér stað.
Ráðuneytið fylgist með
Arnar Þór Sævarsson, aðstoðar-
maður iðnaðarráðherra, kannast við
umræðu um hækkandi raforkuverð
og segir ráðuneytið fylgjast vel með
þeirri þróun sem á sér stað eftir að
lögin voru sett. „Raforkusala er á
frjálsum markaði og þar eru fyrir-
tækin að laga sig að breyttum að-
stæðum. Þarna ríkir samkeppni og
vonandi mun hún skila sér frekar
fyrr en seinna til neytenda,“ segir
Arnar. „Á raforkumarkaði gilda
sömu lögmál og á öðrum mörkuðum.
f eyríki sem okkar getur tekið tíma
að þróa frjálsa samkeppni og hún
Orkuveita Húsavíkur 24.754
■ Dýrast
Rafveita Reyðarfjarðar 25.600
■ Mismunur 846
'Forsendur: 180 fermetra einbýlishús í 101 Reykjavík.
Tölur eru í íslenskum krónum.
Notandi tapar i raun á því j að skipta um \ raforkusaia HennýHinz Hagfræöingur hjá ASi
Á ( Getur tekið tíma að þróa frjálsa samkeppni Arnar Þór Sævarsson Aðstoðarmaður iðnaðarráðherra
mun væntanlega skila sér þegar fyr-
irtækin eru búin að fóta sig.“
Seðilgjöld hamla samkeppni
Henný Hinz, hagfræðingur hjá
ASf, bendir á reglugerð frá 2005 sem
hamli samkeppni enn frekar á raf-
orkumarkaði. „Ef kaupandi ákveður
að skipta um söluaðila þá þarf hann
samt að halda áfram viðskiptum við
dreifiveituna á sínu landsvæði. Reglu-
gerðin heimilar fyrirtækjunum að
senda tvo innheimtuseðla fyrir þessu
og á báðum eru reiknuð seðilgjöld,"
segir Henný. „Þegar seðilgjöldin eru
reiknuð yfir árið þá hverfur sparnað-
urinn og notandinn tapar í raun á
því að skipta um raforkusala.“
Enginn ávinningur
Jóhannes segir raforku hafa
hækkað gríðarlega mikið á síðustu
árum og orkufyrirtækin bera fýrir sig
lagaumhverfi nýju raforkulaganna.
Þetta bitnar einna helst á heimilum
og smærri fyrirtækjum. „Sáralitlu
munar í gjaldskrám söluaðila raf-
orku og því er ávinningur neytenda
lítill af því að skipta um fyrirtæki,“
segir Jóhannes. „Gagnvart neytend-
unum skiptir þetta engu máli enda
nenna þeir ekki að hafa fyrir þessu
fyrir örfáa hundraðkalla á ári.“