blaðið - 26.10.2006, Blaðsíða 15
blaðiö
FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2006 15
Ársfundur ASÍ:
Vilja leggja
ársfundi af
Ársfundur ASÍ fer fram á
Hótel Nordica í dag og á morg-
un. Á meðal efnis er kosning
til forseta og umræður um
breytingar á reglum ASÍ þannig
að ársfundir verði aflagðir en
þing haldin á tveggja ára fresti.
Grétar Þorsteinsson, forseti
ASÍ, gefur kost á sér áfram
og reiknað er með að hann
hljóti örugga kosningu.
Á fundinum verður einnig rætt
um hnattvæðinguna og áhrif
hennar á íslenskt atvinnulíf. ASÍ
mun kynna þar tillögur sínar um
hvernig sé rétt að standa að mál-
um til að áhrif hnattvæðingar hafi
ekki þau neikvæðu áhrif sem birst
hafa á íslenskum vinnumarkaði.
Súdan:
Leyfa meiri
friðargæslu
Omar Hassan al-Bashir, forseti
Súdans, hefur lýst því yfir að
stjórnvöld myndu hleypa fleiri
friðargæsluliðum til landsins
sem hefðu aukið umboð til þess
að gæta ástandsins í Darfúr-hér-
aði að því gefnu að þeir lytu
stjórn Afríkubandalagsins.
Bashir er andvígur því að
friðargæslan í héraðinu lúti
stjórn Sameinuðu þjóðanna
(SÞ) en segir að stjórnvöld geti
sætt sig við að annaðhvort SÞ
eða Evrópusambandið styðji
við bakið á friðargæsluliðum
á vegum Afríkubandalagsins.
BAFTA-verðlaunin:
Latibær
tilnefndur
Sjónvarpsþættimir um
Latabæ hafa verið tilnefndir
til bresku sjónvarps- og kvik-
myndaverðlaunanna (BAFTA)
í flokki erlends barnaefnis.
Magnús Scheving, einn
framleiðenda þáttanna, segir
alla sem tengjast þáttunum
vera í skýjunum og að þau séu
gríðarlega stolt af því að vera
í hópi tilnefndra. „Þættirnir
um Latabæ voru tilnefndir til
Emmy-verðlaunanna síðastliðið
vor og svo núna BAFTA, aðeins
rúmu ári effir að sýningar á þátt-
unum hófust í Bretlandi. Það
er einstakt. Það er greinilegt að
íslenskir og erlendir kvikmynda-
gerðarmenn, sem komið hafa að
gerð þáttanna, kunna sitt fag.“
Torkennilegir kassar vöktu ótta ferðamanns:
Sprengjuleit við Hallgrímskirkju
„Það greip ekki um sig nein
hræðsla hér en svona þarf að fara
í vissan farveg,“ segir Karl Kristen-
sen, kirkjuvörður í Hallgrímskirkju.
Lögreglan í Reykavík lokaði hluta
af planinu gegnt Hallgrímskirkju
um hádegisleytið í gær eftir að til-
kynning barst um tvo torkennilega
kassa á svæðinu. Var annar þeirra
við styttuna af Leifi Eiríkssyni og
hinn við bekk á planinu og voru þeir
báðir spreyjaðir svartir og límdir
aftur. Kalla þurfti út sprengjusveit
Landhelgisgæslunnar þar sem ótt-
ast var að þeir innihéldu sprengjur.
Við nánari eftirgrennslan kom í ljós
að þeir voru báðir tómir.
Að sögn Karls var það útlendur
ferðamaður sem gerði kirkju-
vörðum grein fyrir kössunum og
var í kjölfarið ákveðið að láta lög-
regluna vita. „Lögreglan kom fljótt
á vettvang og hefur eflaust haft gott
af því að æfa sig.“
Karl segir aðgerðir lögreglu hafa
gengið hratt fyrir sig og fljótlega
fyrir klukkan eitt var búið að opna
svæðið aftur. „Útlendingar taka
þetta eflaust mun alvarlegar en við.
Ég hefði eflaust bara fleygt þessum
kössum án þess að hugsa nánar út
í það. Það er spurning hvort við Is-
lendingar verðum ekki að fara að gá
að okkur betur.“
Lögreglan lokaði hluta af planinu
gegnt Hallgrímskirkju Kalla þurfti á
sprengjusveit Landhelgisgæslunnar
til að rannsaka kassana
Þarft þú að
láta prenta?
Kynningargögn Bréfsefni
Erum
líka með
fjölbreyttar
kynningar-
lausnir