blaðið


blaðið - 26.10.2006, Qupperneq 18

blaðið - 26.10.2006, Qupperneq 18
blaðið blaðid Útgáfufélag: Stjórnarformaður: Ritstjóri: Fréttastjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Árogdagurehf. SigurðurG.Guðjónsson Sigurjón M. Egilsson Brynjólfur Þór Guðmundsson og Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Janus Sigurjónsson Vandmeðfarið vald Samfélagið færir sumum þegnum sínum mikið vald. Ráðherrar hafa vald, stundum Alþingi, dómstólar og svo lögreglur ýmiskonar. Sama er að segja um ákærendur. Sumt af þessu valdi er öflugt og það er mikils virði að þeir sem er treyst fyrir því fari varlega með það. 111 eða röng meðferð á valdi er ofbeldi gegn þeim sem henni sæta. Þess vegna er brýnt að þeir einir fái vald sem geta beitt því af varúð og réttlæti. Athugasemdir Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, forstjóra Baugs, vegna er- indis ríkislögreglustjóra til lögreglunnar í Lúxemborg er eftirtektarverðar. Hafi Jón Ásgeir rétt fyrir sér er komin upp alvarleg staða. Þá skiptir engu hvaða skoðun hvert og eitt okkar hefur á Jóni Ásgeiri, Baugsmálinu, rík- islögreglsutjóra, dómurum eða hverju sem er. Það er ekki heppilegt að í krafti valds sé leitað til lögreglu í öðrum löndum og beðið um aðstoð á fölskum forsendum. Við það má ekki una. Þess vegna er ómögulegt að þeir sem framkvæmdu komist upp með það. Þá hafa þeir misbeitt valdi sem við hin treystum þeim til að fara með og þá er aðeins eitt í stöðunni, það er að afturkalla valdið. Fela einhverjum öðrum það. Reyndar er Baugs- málið allt að þróast á þann veg að svipta ætti þá öllu valdi sem mest beittu því í málinu. Lögreglu er falið mikið vald, meðal annars til að fylgjast með okkur hinum, og ráðherrar virðast hafa getað fengið heimildir dómstóla til hler- unar þó rök þeirra fyrir njósnunum hafi verið engin eða verulega veik. Þessum er falið mikið vald og vandmeðfarið. Það er alvarlegt að njósna um annað fólk og þess þá heldur þegar handhafar valdsins eru ráðherrar og lögregla. Venjulegir borgarar mega sín lítils gegn slíku afli. Þess vegna verða kröfurnar á þá sem fara með valdið að vera sérlega miklar og allt sem miður fer í beitingu valdsins verður að teljast til alvarlegra brota og leiða til afturköllunar valdsins. Ríkissaksóknari hefur heimildir til að hefja rannsóknir á málum að eigin frumkvæði. Það hefur hann gert með meint hlerunarmál Jóns Bald- vins Hannibalssonar. Kannski má ríkissaksóknari láta frekar til sín taka. Hann gæti til að mynda látið rannsaka upphaf Baugsmálsins, grun og fullyrðingar um ólögmætar hleranir og njósnir lögreglunnar og eflaust fleira og þá hvort rétt sé að lögregla haldi skrár yfir félagsmenn einstakra samtaka og félaga, sem stenst varla lög um persónuvernd, sé rétt að slíkar skrár séu til og þær notaðar í leyniherbergjum í lögreglustöðinni. Hafi Jón Ásgeir rétt fyrir sér og hafi lögreglan borið á hann allt aðrar og meiri sakir en efni stóðu til, til þess að afla gagna erlendis, er ljóst að lögreglan hefur gengið of langt í meðferð valdsins sem við höfum falið henni. Samfélagið getur aldrei sæst á að þeir sem er falið vald beiti því að eigin geðþótta og hirði ekkert um þá sem fyrir verða. Stangist gerðir lögreglu ekki á við lög, réttlætir það samt ekki aðgerðirnar. Valdið er vandmeðfarið. Sigurjón M. Egilsson Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík Aöalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins - Nœring og hollusta - TÍU-ELLEFU • HAGKAUP • SKELJUNGSBÚÐIRNAR 18 FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2006 VL'rr/H> CÆTr / .TFtúSt Sí líVfíRÍ OG KUTJMÆrW otRiiIj^Ga • m UÆSA ATVrWWuVtG £em GÆrl JAFNVB- EVW ðBF-DB/E/eARl EN FeBBfiHÖUUST/JN Prófkj örsþankar í upphafi kosningavetrar Þó það verði ekki kosið til Al- þingis fyrr en næsta vor fer ekki hjá því að línurnar séu lagðar þessa dagana, þegar flokkarnir myndast við að stilla upp á lista sína með ýmsum hætti. Sú lýðræð- isveisla stendur sjálfsagt hæst hér í Reykjavík, þar sem framboðið er mest og atgangurinn harð- astur. Sjálfstæðismenn ganga að kjörborðinu um næstu helgi og Samfylkingarmenn hefja sínar kosningar helgina þar á eftir. Erindi Fyrir Samfylkingarmenn felst vandinn fyrst og fremst í því að framboðið er mikið en eftirspurnin lítil. Fyrir utan fremur slælegt fylgi flokksins eru þrjú efstu sætin frá- tekin og afar líklegt má telja að fjöldi nýrra frambjóðenda auki sigurlíkur sitjandi þingmanna. Svo má spyrja hvort það sé líklegra til afreka næsta vor en síðast. Sjálfstæðismenn þurfa vitaskuld að stilla upp sínu sterkasta liði, en eftir langa samfellda stjórnarsetu þarf fleira til en lið, sem er sterkt á pappírnum. Eins og ég hef áður skrifað um á þessum stað þurfa sjálf- stæðismenn ekki síður að finna sér erindi við kjósendur umfram það að vera skilvirkir húsverðir í stjórn- arráðinu. Ekki vegna þess að sá góði starfi skipti ekki máli, þvert á móti, en þegar stefnan felst fyrst og fremst í að viðhalda stöðugleika fara kjós- endur að velta fyrir sér hvort þetta sé þá nokkur vandi og gjóa aug- unum annað. Nú þarf ekki að deila um árangur þeirra ríkisstjórna, sem Sjálfstæðis- flokkurinn hefur farið fyrir undan- Andrés Magnússon farin ár, en hvað svo? Sú spurning kjósenda er ekki út í bláinn og vei þeim flokki, sem ekki á við henni haldbær svör. Nú er það auðvitað ekki þannig að sjálfstæðismenn standi ráðalausir, búnir að tæma óskalistann og engin verkefni eftir. Illugi Gunnarsson hefur þannig bent á margvísleg úrlausnarefni, sem bíði þingheims á næstu árum og hann hefur líka sett fram hug- myndir um lausnirnar með þeim hætti að engum dylst að hann er framtíðarmaður í íslenskum stjórn- málum. Honum tókst meira að segja að breyta umræðunni um umhverf- ismál á nokkrum dögum, þannig að rammasta íhald er farið að tala um sjálft sig sem hægri grænt! Menn eins og hann gefa góðar vonir um að eðlileg endurnýjun verði á þingi, þar sem dugandi menn með snjallar hugmyndir ryðja sér rúms. Vandasamt val En auðvitað eru líka dugandi menn í þinginu fyrir og fráleitt að láta þá víkja, aðeins af því að þeir hafi setið þar lengur en eitt tvö þing. En þá á líka að setja undir sömu mælistiku, sumsé að þeir eigi sér erindi og ætlunarverk, þeir séu full- trúar tiltekinna sjónarmiða eða þjóð- félagshópa. Nú eða bara þingmenn, sem að kveður. Ég get til dæmis alveg játað að mér er eftirsjá í Guð- mundi Hallvarðssyni og Margréti Frímannsdóttur, að ógleymdum Halldóri Blöndal. En svo eru kannski aðrir, sem ég sæi minna eftir. Sömu krefjandi spurningar má spyrja sig um nýja fólkið, sem hefur gefið sig fram. Liggur því eitthvað á hjarta? Hefur það eitthvað til mál- anna að leggja? Eða getur hugsast að ar sé metorðagirnd á villigötum? flestum tilvikum er auðvelt að kynna sér stefnumið frambjóðend- anna á vefjum þeirra eða öðru út- gefnu efni. En fyrst og síðast ræður væntanlega mannþekking hvers og eins. Því þó að það geti verið gaman að mestu orðhákunum í stjórn- málum, þarf líka ábyrgð og innihald til þess að menn eigi erindi á þing. Vöndum valið! Höfundur er blaðamaður Klippt & skorið Prófkjörsframbjóðendur allra flokka hafa verið iðnir við að koma sér á framfæri með ýmsum hætti að undan- förnu og ekki síst er ánægjulegt að fylgjast með því hversu lífleg útgáfustarfsemi þeirra á vefnum hefur verið. Þar hafa sumir sett inn lifandi myndir og má í því samhengi nefna þá Guðlaug Þór Þórðarson (gudlaugur- thor.is), Helga Hjörvar (helgi.is), llluga Gunnarsson (illugi.is) og fr ~a Pétur H. Blöndal (petur. I blondal.is). Skemmtilegasta f '■ nýmælið kann þó að vera fc, -r- Jj hjá llluga, því á vef hans má ErwT® sækja hljóðskrár í fullum gæðum þar sem frambjóðandinn leikur rómantískar etýður á píanó. Mörður Ámason er skarpskyggn maðurog á vef hans (mordur.is) má iðulega finna beittar athugasemdir um stjórnmál og hin fjölmörgu : jL hugðarefni þingmannsinsönnur. fiy I gær minnist hann á ráðstefnu #f*' * Jafnréttisráðs í fyrradag, þar jjVpr sem Margrét Sverrisdóttir lagði fram„snjöllustu - og neyðarlegustu - til- löguna um það hvernig ætti að fá fleiri konur í pólitík: Lækkum bara launin hjá þingmönn- unum. Þá mundu karlarnir fljótlega hverfa og konur koma f staðinn!" Mörður segir mikið hafa verið að þessu hlegið og klappað, enda nýleg launakönnun ekki uppörvandi og Margrét, pennavinkona Blaðsins, fulltrúi Frjálslynda flokksins á ráðstefnunni, en allir þingmenn þess flokks - fyrrverandi og núverandi - eru karlar. Frambjóðendur Samfylkingarinnar í Reykjavík, Kraganum og í Suðurkjördæmi hafa undanfarna daga verið að opna kosningaskrifstofur um víðan völl og eru farnir að ræsa sínar misstóru kosningamaskínur. Þar hefurvakið nokkra athygli að formaðurinn, Ingi- björg Sólrún Grsladóttir, lætur ekki sjá sig við opnunarathafnir félaga sinna meðan formaður '• þingflokksins, Össur Skarphéð- —Í insson, hefur hvergi látið sig Á vanta. Gárungarnir segja að engu sé líkara en að formannskjörið í fyrra hafi aldrei farið fram, en hinir meinfýsnari segja að formaðurinn sé upp- tekinn við að ráðleggja vinkonu sinni Guðfinnu S. Bjarnadóttur í prókjöri sjálfstæðismanna. andres.magnusson@bladid.net

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.