blaðið - 26.10.2006, Síða 28
4 0 FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2006
blaðið
Afmælisborn dagsms
FRANCOIS MITTERAND FORSET11916
HILLARY RODHAM CLINTON ÞINGMAÐUR, 1947
NATHALIE JACKSON SÖNGKONA, 1911
kolbrun@bladid.net
Prinsessa, börn
og hjónaband
JPv útgára hefur sent frá sér
bókina Áfram prinsessa eftir Meg
Cabot. Áfram
prinsessa er
önnur bókin á ís-
lensku um Míu
Thermopolis,
borgarstelpu
og prinsessu,
en þær eru nú
orðnar sjö tals-
ins. Bækurnar
hafa notið gífurlegra vinsælda og
eftir þeim hafa verið gerðar tvær
kvikmyndir sem slegið hafa ræki-
lega í gegn um allan heim.
Sama forlag
sendir frá sér Fugl,'£-;
bókina Fugl og fiskur
fiskur - Ljóð og
sögur handa
börnum eftir
Vilborgu Dag-
bjartsdóttur.
Vilborg kann þá
list að segja börnum góðar sögur
sem halda huganum föngnum. í
bókinni birtast sögur og Ijóð valin
úr frumsömdu efni sem kom út
á árunum
1955-2005.
þau Stefán Hallur Stefánsson og
Dóra Jóhannsdóttir. Stefán Hallur
hefur áður stigið á svið í Þjóðleikhús-
inu í sýningu á Ungum mönnum á
uppleið, sem var valin áhugaverð-
asta áhugaleiksýningin 2001, en
Dóra þreytir frumraun sína á sviði
Þjóðleikhússins í þessu leikriti.
Ótrúlegt en satt
Stefán Hallur leikur Cosme
McMoon, undirleikara Florence
Foster Jenkins. „Þetta er áhugavert
hlutverk,“ segir Stefán Hallur. „Við
skyggnumst inn í líf söngkonunn-
ar í gegnum hann og kynni hans af
henni og sjáum hvernig sambandið
þróast upp í það að honum fer að
þykja vænt um hana sem mann-
eskju og fylgir henni af heilum hug
inn í Carnegie Hall. Þótt leikritið sé
farsakennt þá byggir það á sönnum
atburðum. Aðalpersónan Florence,
sem er lyginni líkust, gerði allt það
sem leikritið segir frá og steig á svið í
Carnegie Hall 76 ára gömul og gerði
stormandi lukku.“
„Þetta er ótrúlegt en satt,“ segir
Dóra, „en leikritið sýnir vel hvað
hún stóð fyrir, hvernig hún upplifði
sjálfa sig og lifði lífinu, eins og allir
ættu að gera, lét drauma sína rætast,
þrátt fyrir mjög mikið mótlæti og
enga hæfileika.“ Dóra leikur mexi-
kanska ráðskonu söngkonunnar og
talar spænsku þann tíma sem hún
er á sviðinu. „Það er mjög sérstakt
að þreyta frumraun sína á sviði
Þjóðleikhússins, sem er musteri
hinnar íslensku tungu, og þurfa að
tala spænsku allan tímann. Það er
ekki alveg eins og ég sá þetta fyrir
mér þegar ég hugsaði um sjálfa mig
á sviði Þjóðleikhússins. En er bara
gaman,“ segir hún.
Frábær reynsla
Bæði segja vinnuna með Ólafíu
Hrönn og Erni Árnasyni hafa ver-
ið einkar skemmtilega. „Þau hafa
kennt okkur mikið og það hefur ver-
ið lærdómsríkt að fylgjast með þeim
vinna. 1 byrjun var nokkur þrek-
raun að halda í við þau á stóru sviði
en nú er þetta allt að jafnast,“ segir
Stefán Hallur. Dóra bætir við: „Það
hefur verið eins og námskeið að fylgj-
ast með þeim og læra á þetta stóra
svið Þjóðleikhússins. Þetta er frábær
reynsla. Það er ómetanlegt að fá að
vinna með svona góðu og hæfileika-
ríku fólki.“
Þau segjast hlakka til frumsýning-
ar. „1 fyrrakvöld fengum við í fyrsta
sinn áhorfendur, sem var frábært
því það var mikið hlegið og var svo
gaman. Leiklistin gengur jú út á sam-
band við áhorfendur. Og þegar vel
tekst til getur myndast frábært sam-
band,“ segir Dóra. „I farsakenndu
leikriti eins og þessu tengist maður
áhorfendum á annan hátt en í dram-
atískum leikritum," segir Stefán Hall-
ur. „Sambandið er opnara og maður
fær viðbrögðin beint í æð.“
menningarmolinn
Edith Wharton og Henry
James hefja bréfaskriftir
Á þessum degi árið 1899 hófu
rithöfundarnir Edith Wharton og
Henry James að skrifast á. Penna-
vinirnir hittust þó ekki augliti til
auglitis fyrr en 1903. Wharton var
38 ára gömul þegar bréfaskriftirnar
hófust. Hún var gríðarlega mikill
aðdáandi James og hann hafði mik-
il áhrif á verk hennar. Milli þeirra
tókst mikil vinátta og James hvatti
hana til dáða. Árið 1902 var Whar-
ton fyrst kvenna til að vinna Pulitz-
er-verðlaunin fyrir skáldsögu sína
The Age of Innocence.
Wharton var af auðugu fólki
komin og ólst upp í New York.
Fjölskylda hennar ætlaði henni að
verða dæmigerð eiginkona og móð-
ir. Hún giftist en hjónabandið var
afar óhamingjusamt þótt skilnað-
ur drægist til ársins 1913. í bókum
sínum skrifaði Wharton iðulega
um skilnaði, óhamingjusöm hjóna-
bönd og einstaklinga sem voru
frjálsir andar en urðu fyrir þrýst-
ingi siðavands samfélags.
JPV forlag
hefur einnig
sent frá sér
bókina Hjóna-
band og sam-
búð - Leiðir
til að efla
ást, vináttu
og hamingju
eftir Þórhall Heimisson. Bókin
byggir á hinum vinsælu hjóna-
námskeiðum sem Þórhallur hefur
haldið víðs vegar um landið frá
árinu 1996. Meira en 7500 manns
hafa sótt námskeiðin og nýtir Þór-
hallur þá reynslu sem hann hefur
öðlast í samskiptum sínum við
pör á öllum aldri til að setja fram
skýr og einföld ráð sem ættu að
vera kærkomin hverjum þeim
sem vill bæta sambandið við
makann og öðlast þannig aukna
lífshamingju.
Viðbrögð beint í
eikritið Stórfengleg! eftir
Peter Quilter verður frum-
sýnt í Þjóðleikhúsinu
næstkomandi föstudags-
kvöld. í leikritinu segir frá
Florence Foster Jenkins sem kölluð
hefur verið „versta söngkona allra
tíma“. Hápunktur á ferli söngkon-
unnar, sem hélt ekki lagi, voru tón-
leikar hennar í Carnegie Hall fyrir
fúllu húsi. Ólafía Hrönn Jónsdóttir
fer með hlutverk söngkonunnar en
Örn Árnason leikur unnusta hennar.
1 leikritinu stíga á svið tveir ungir
leikarar, sem útskrifuðust frá Leik-
listarskóla íslands síðastliðið vor,
'Vorum/cvð taka/ucpp vxýjar vörur
frá/Vaníty faÁr
frdbcerverð otygceðú
VenÓYUAleg' pj&nuútcv
Opnunartími
Mán-fös 11-18, Lau 11-14
www.ynja.is
Hamraborg 7 Kópavogi Sími 544 4088
Útsölustaðir: Esar Húsavík Dalakjör Búðardal