blaðið - 26.10.2006, Síða 34
I
20% afsláttur
af öllum bætiefnum Heilsu
með gula miðanum
i oktober.
^Apótekið
ícogro ver6
N91heilsa
mH -A*/ðu þ*S gotl
Hólagaröi, Hverafold,
Hagkaupum Skeifunni og Akureyri.
A-DERMA ER SÉRSTAKLEGA
ÞRÓAÐ FyRIR ÞURRA,
AUMA OG VIÐKVÆMA HÚÐ
A-Derma vörurnar innihalda engin
Niðurstöður doktorsrannsóknar Linn
Anne Bjelland Brunborg við Háskólann í
Bergen sýndu að Selolía linar liðbólgur
og liðverki hjá þeim sjúklingum sem
haldnir eru IBD (þarmasjúkdómar sem
valda bólgum), og hefur áhrif á bata
á þarmabólgu. Niðurstöður rannsóknar
hafa sýnt, að omega-3 fitusýrur í
selolíu geta haft fyrirbyggjandi áhrif á
sjúkdóma eins og hjarta- og æðasjúk-
dóma.
Prófessor Arnold Berstad í Bergen
hefur framkvæmt margar rannsóknir á
sjúklingum með liðvandamál sem
orsakast af bólgum í þörmum. Hann
lýsir rannsóknarniðurstöðum þannig:
„Olían hefur ekki einungis áhrif á
verki hjá sjúklingum á árangursrikan
fljótt i Ijós. Við höfum séð sjúklinga
ná góðum bata eftir einungis viku
meöhöndlun"
Gott fyrir:
. Liðina
. Maga- og þarma-
starfsemi
. Hjarta og æðar
. Ónæmiskerfið
Polarolían fæst í apótekum og heilsuhúsum.
4 6 FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2006
Kolvetni nauösynleg
Það skiptir miklu fyrir langhlaupara að neyta kolvetnis-
ríkrar fæðu. Kolvetni eru fyrst og fremst geymd í vöðv-
unum og gefa orkuna nógu fljótt til líkamans í þeim
átökum sem fylgja langhlaupi.
heilsa
Læknir meti heilsuna Það eral-
drei ofseint að byrja að huga að
Pálmi V. Jónsson
. Gott sé að hitta
ogfara yfir heilsufarsþætti.
■010$.
Mýnd/Frikki
Yngingarmeðalið sem virkar
Heilbrigði ekki
síðar en fimmtugt
Góð heilsa er gulli betri
og því er mikilvægt að
fjárfesta sem fyrst í heil-
brigðu líferni.
Þegar aldurinn færist yfir er mik-
ilvægt að viðhalda góðri heilsu þar
sem hún hefur mikil áhrif á almenn
lífsgæði og ánægjulegt ævikvöld.
Pálmi V. Jónsson, öldrunarlæknir
og sviðsstjóri lækninga á öldrunar-
sviði á LSH,
segir að það sé aldrei of seint að
byrja að stunda heilbrigðara líferni.
„Það er aldrei of seint að reyna að
bæta sig hvort sem það er með þvi
að hætta að reykja, bæta mataræði
eða auka hreyfingu og líkamsrækt.
Það er æskilegt að fólk komi sér
upp heilbrigðum lífsstíl ekki siðar
en um fimmtugt með tilliti til mat-
aræðis og hreyfingar, en þó að það
hafi dregist hjá einhverjum þá geta
menn unnið sig upp svo lengi sem
fólk hefur ekki orðið fyrir miklum
áföllum líkamlega.“
Pálmi bætir því jafnframt við
að eina yngingarmeðalið sem við
þekkjum og vitum að virkar er lík-
amsrækt, hófleg og eðlileg hreyfing,
en það er meðal sem hjálpar til við
að viðhalda bæði líkamlegri og ekki
síður andlegri orku.
Heilsusjóður til framtíðar
„Það er mikilvægt að leggja í
heilsusjóð til framtíðar alveg eins
og við leggjum fyrir í lífeyrissjóð.
Hreyfing og líkamsrækt hafa góð
áhrif á færni okkar á ýmsum svið-
um, blóðrásarkerfið, hugann og
eru góð vörn gegn depurð. Þetta
hefur strax áhrif á lífsgæði um leið
og fólk tileinkar sér heilbrigðara
líferni og stuðlar um leið að meiri
líkum á að njóta góðrar heilsu um
ókomin ár. Rannsóknir sýna að
fólk sem stundar líkamsrækt er til
að mynda ólíklegra til að fá heila-
bilun. Það hefur sýnt sig að líkams-
rækt hefur líka góð áhrif á andlega
heilsu, hún styrkir sjálfsmyndina
og fólk finnur síður fyrir kvíða og
það dregur úr þunglyndi og depurð-
areinkennum. Við sjáum aukningu
á þunglyndi meðfram líkamlegum
sjúkdómum, sem eðlilegt er. Lík-
urnar á því að fá króníska líkam-
lega sjúkdóma aukast eftir 65 ára
aldur og samhliða líkamlegum
sjúkdómum sjáum við oft andleg-
ar afleiðingar í formi þunglyndis
og kvíða. Það er ákveðið samhengi
þar á milli.”
Pálmi nefnirþrennskonarvarnar-
línur í því að viðhalda góðri heilsu
um ævina. í fyrsta lagi ráða ein-
staklingarnir miklu um það hvern-
ig þeir undirbúa sig líkamlega og
andlega fyrir efri árin. 1 öðru lagi
kemur heilbrigðisþjónustan inn
í það að ráðleggja fólki um ýmsa
áhættuþætti er viðkoma heilsufari.
Og þriðja varnarlínan er að ef sjúk-
dómar korna fram þá sé endurhæf-
ingarþátturinn virkur.
Þegar fólk er komið á miðjan ald-
ur er skynsamlegt að hafa samband
við lækni og láta fara yfir helstu
heilsufarsþætti sem skipta máli
eins og blóðþrýstinginn, blóðsykur,
blóðfitu og aðra slíka hluti. Lækn-
ar geta komið inn á það að greina
áhættuþætti varðandi hjarta- og
æðasjúkdóma. Jafnvel þó að fólk
sé komið með sjúkdóma þá skiptir
líkamsrækt máli og mataræði hefur
einnig áhrif.
Það er mikilvægt að ráðfæra sig
við sérfræðinga innan heilbrigðis-
stéttarinnar til þess að leggja réttu
áherslurnar.
Ashtanga vinyasa-jóga
Jóga er góð likamsrækt sem margir stunda. Margir
hafa þá hugmynd að jóga sé bara að sitja í lótusstöðu
og íhuga og þannig sé jóga ekki gott til að brenna fitu
eða styrkja vöðva. En það eru til ýmsar tegundir jóga
og ashtanga vinyasa-jóga er ein tegund jóga sem er
góð leið til að koma sér í form og fá hugarró í leiðinni.
Ashtanga vinyasa-jóga er kraftmikið jóga sem byggir
á seríum sem fólk lærir utan að. Sería er samansett af
líkamsstöðum í ákveðinni röð sem styðja hver aðra.
Á milli líkamsstaðanna eru gerðar tengiæfingar sem
mynda ákveðið flæði og hita. Sérstök öndun er tengd
við hverja hreyfingu og er eins og þráður í gegnum
alla seríuna, þannig að hreyfingarnar eru flæðandi og
taktbundnar. Þeir sem stunda Ashtanga-jóga styrkja
og liðka líkamann og það hefur áhrif á einbeitingu og
úthald og veitir slökun og hugarró.