blaðið - 31.10.2006, Page 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 2006
blaAið
VEÐRIÐ I DAG
Hægviðri
Skýjað með köflum og stöku él norðantil,
en léttir til og kólnar í nótt. Hægviðri,
bjartviðri og frost 0 til 6 stig
Á MORGUN
Úrkoma
Slydda en síðar rigning eða
súld um vestanvert landið, en
þurrt austantil fram eftir degi.
Hiti 2 til 8 stig, en 0 til 6 stiga
frost norðan- og austanlands.
VlÐAUMHEIM i
Algarve 23 ' Glasgow
Amsterdam 13 Hamborg
Barcelona 22 Helsinki
Berlín 16 Kaupmannahöfn
Chicago 6 London
Dublin 11 Madrid
Frankfurt 17 Montreal
9 New York
12 Orlando
2 Osló
12 Palma
12 París
19 Stokkhólmur
2 Þórshöfn
12
19
-1
25
15
7
5
Mannslát:
Veltu bíl
látins manns
Lögreglan á Selfossi óskar
eftir upplýsingum um menn
sem virðast hafa velt bifreið
látins manns við Nesjavallaveg.
Maðurinn fannst látinn um 500
metrum frá bifreiðinni en hann
hafði fest hana og skilið eítir á
síðasta fimmtudag. Björgunar-
sveitir hófu leit að honum um
helgina og fundu hann látinn.
Maðurinn varð úti en ekki
er búið að finna þá sem veltu
bifreiðinni eítir að veðrinu
slotaði. Maðurinn hét Jóhann
Haraldsson og var 41 árs gamall.
Hann var ókvæntur og barnlaus.
Nauðgunartilraun:
Réöust á konu
á klósetti
Níu tennur voru brotnar í fyrr-
verandi lögreglumanni. Hann
ætlaði að koma eiginkonu sinni
til bjargar þegar fjórir menn
frá Póllandi og Litháen reyndu
að nauðga henni inni á salerni
skemmtistaðarins Viktors. Mönn-
unum var sleppt eftir yfirheyrslur.
Fréttastofa NFS greindi frá
því að hjónin hefðu komið á
staðinn klukkan rúmlega eitt
aðfaranótt sunnudags. Konan fór
á salerni fljótlega eftir það. Þegar
manninn tók að lengja eftir
henni gekk hann inn á salernið
og sá mennina halda eiginkonu
hans nauðugri. Maðurinn réðst
inn í hópinn þar sem mennirn-
ir fjórir létu ótal högg dynja á
honum, bæði með hnefum og
hnjám. Þeir fóru ekki fyrr en
aðrir gestir komu inn á salernið.
Maðurinn var meðvitundar-
laus þegar sjúkraflutningsmenn
komu á staðinn en rankaði við
sér þegar hann var borinn út.
Rukkaði alltof mikið Verk-
kaupi sakar verktaka um að
hafa sent reikning fyrir þrefalt
hærri upphæð en samið hafi
verið um i upphafi. Deilan er á
leið til Hæstarétt% mmm
HUGTAKASKYRING:
■ Undirmat
Lagt mat á kostnað verks miðaö við umfang
og mælingar á verki
■ Yfirmat
Lagt mat á kostnað verks miðað við tíma-
fjölda við verkið
Deila milli húseiganda og verktaka á leið til-Hæstaréttar:
•4^ -
Verktaki rukkaði
þrefðida upphæð
Verðiö lá fyrir allan tíma'nn Algjört bull, segir verktakinn
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
„Verktakinn lét duga að segja við mig
að hann yrði sanngjarn og myndi
gera þetta á góðu verði. Allan tím-
ann lá fyrir hvað þetta átti að kosta,“
segir Sigurður Gíslason skólastjóri
sem fyrir tveimur árum lét leggja
grunn að íbúðarhúsnæði sínu í
Garði. Ekki lá fyrir formlegt tilboð
frá verktaka. Sigurður segir Ijóst
að í samtölum við verktaka hafi
komið fram hvaða verðhugmyndir
hann hefði um verkið enda hafi
önnur tilboð öll verið í kringum
fjögur hundruð þúsund. Nokkrum
dögum áður en reikningur kom
frá verktaka hringdi hann í Sigurð
og sagði verkið kosta hálfa milljón.
Þegar reikningur barst hljóðaði
hann hins vegar upp á eina milljón
og er Sigurður mjög ósáttur við það.
„Þegar ég brást illa við reikningnum
var mér hótað því að, ef ég greiddi
ekki reikninginn, skyldi viðkom-
andi sjá til þess að húsið yrði ekki
reist,“ segir Sigurður. „Eftir að hafa
losað mig við verktakartn sem bygg-
ingameistara sendi hann til mín
enn hærri reikning, upp á tæplega
fjórtán hundruð þúsund, og var
það þrefalt hærri upphæð en samið
var um. Þegar ég neitaði að borga
fór hann á endanum í mál við mig.“
Byggt á yfirmati
Fyrir Héraðsdómi Reykjaness
tapaði Sigurður málarekstri þrátt
Spurning
hvaða mat var
hiðrétta
Sveinn Andri Sveinsson
Hæstaréttarlögmaður
fyrir að hafa sjálfur fengið mat
frá Trésmíðafélagi Reykjavíkur. Fé-
lagið mælti með því að gerð yrði
mæling á verkinu og að hann skyldi
ekki greiða þá upphæð sem sett
var upp af verktaka. Samkvæmt
mati Trésmíðafélagsins átti verkið
að kosta svipað og Sigurður gerði
ráð fyrir. Aðrar matsskýrslur, svo-
kallað undirmat, gerðu ráð fyrir
að verkið ætti ekki að kosta meira
en sjö hundruð þúsund krónur.
Niðurstaða héraðsdóms, byggð á
svokölluðu yfirmati, var hins vegar
sú að kostnaður verksins væri rúm
milljón. Sigurður bendir á að í Hér-
aðsdómi Reykjaness starfi faðir lög-
ræðingsins sem rekur málið fyrir
verktaka.
Algjört bull
Unnar Már Magnússon, fram-.
kvæmdastjóri og verktakinn sem
um ræðir, segist lítið vilja tjá sig
um málið enda sé það á leið fyrir
Hæstarétt. Hann ítrekar að ekki
sé hægt að treysta orðum Sigurðar.
„Þetta er algjört bull í manninum.
Dæmið snýr algjörlega öfugt því
það er hann sem ekki stóð við það
sem um var talað,“ segir Unnar
Már. „Allt mat sem fram fór á verk-
inu, nema það sem hann lét gera,
styrkti hvað annað í því að reikn-
ingurinn frá mér væri réttur.“
Sigurður bendir á að eftir að
málið tapaðist fyrir héraðsdómi
hafi hann fengið sömu teikningar
að grunninum og leitað eftir til-
boðum frá ýmsum aðilum. „Ég fékk
tilboð í nákvæmlega sama verk og
lét leggja annan grunn. Þau tilboð
voru á bilinu fimm til sex hundruð
þúsund og þá voru liðin þrjú ár frá
hinu umdeilda verki,“ segir Sig-
urður og ítrekar að þau tilboð hafi
staðið eins og stafur á bók.
Spurning um rétt mat
Sveinn Andri Sveinsson hæsta-
réttarlögmaður rekur málið fyrir
Hæstarétti fyrir hönd Sigurðar
eftir þrjár vikur og segir spennandi
að sjá hver verði niðurstaða máls-
ins í Hæstarétti. „Lykilatriði er að
fá úr því skorið hvaða mat dómur-
inn skal byggja á þegar svona mál
eru tekin fyrir. í þessu máli lá fyrir
þrenns konar mat og því spurn-
ing hvaða mat var hið rétta,“ segir
Sveinn Andri.
Unnar Már segist vona að fyrir
Hæstarétti verði honum dæmdar
hærri bætur en hjá Héraðsdómi
Reykjaness þó svo að þær hafi verið
nærri upphæð reikningsins. „Þetta
eru einfaldlega svívirðingar og
dónaskapur sem hér er á ferðinni.
Ég vonast eftir fullnaðarsigri í mál-
inu,“ segir Unnar Már.
Hrekkjavaka:
Óttast um
svartra ketti
Fjöldi athvarfa fyrir heimilis-
lausa ketti víðsvegar um Banda-
ríkin hefur bannað fólki að
taka að sér svarta ketti á meðan
hátíðarhöld vegna hrekkjavöku
standa yfir nú um mánaða-
mótin. Er þetta gert meðal
annars til þess að svörtu kett-
irnir verði ekki fyrir barðinu á
svokölluðu hrekkjavökugríni
eða fórnarathöfnum djöfladýrk-
enda sökum stöðu slíkra katta í
allskyns dulrænum fræðum.
AP-fréttastofan hefur eftir
Gail Buchwald„§em er varafor-
seti samtaka seilj berst gegn
grimmdarlegri rjieðferð á
dýrum, að hamrsé ósáttur við
bannið og að sVartir kettir séu
nógu óvinsælir fyrir. Þeir séu
ekki jafn eftirsóttir og kettir
sem eru i öðrum litum og því
sé fáránlegt að refsa þeim enn
frekar með því að draga tíma-
bundið úr möguleikum þeirra
til þess að komast á góð heimili.
Héraðsdómur:
Misnotaði
þroskaheftan
Héraðsdómur Reykjavíkur
dæmdi fimmtugan mann í
tveggja ára fangelsi fyrir kyn-
ferðisbrot gegn þroskaheftri
konu. Hún mun hafa verið með
þroska á við smábarn en hann
misnotaði hana í Hjálpræðis-
hernum þar sem maðurinn bjó.
1 dómsorði segir að hann hafi
brotið gróflega gegn trausti
hennar og eigi sér engar máls-
bætur. Því hljóti hann tveggja
ára fangelsisdóm.
Maðurinn er ekki nafn-
greindur í dóminum.
MEÐLAGSGREIÐENDUR
MeSlagsgreiðendur, vinsam-
legast gerið skil hið fyrsta og
forðist vexti og kostnað
INNHEIMTUSTOFNUN SVEITARFÉLAGA
Lógmúla 9 • 108 Reykjavík • 530372 0229 • www.medlag.is
Banki: 0111 26 504700 S: 590 7100 • fux: 590 7101
Umfjöllun Ekstra Bladet um íslensku útrásina:
Sniðganga að borga skatt
Danska dagblaðið Ekstra Bladet
hóf um helgina umfjöllun sína um
íslenska kaupsýslumenn og útrás ís-
lenskra fyrirtækja í Danmörku, Bret-
landi og Svíþjóð. Þar kemur meðal
annars fram að kaup íslendinga á
fyrirtækjum erlendis líkist einna
helst skattaundandrætti.
Að sögn blaðsins á KB banki til
að mynda að hafa komið sér upp
leynilegu, fjölþjóðlegu fjárfesting-
arkerfi til að bankinn sjálfur og við-
Ekstra Bladet í gaer Sagt frá tveim-
ur dönskum lögfræðingum sem
eru sagöir vera lykilmenn ííslensku
útrásinni.
skiptavinir bankans komist hjá því
að greiða skatt. Háar peningaupp-
hæðir eru færðar fram og aftur svo
að ekki beri mikið á og það tryggir
að ákveðnu leyti að bankinn greiði
ekki skatta. 1 frétt Greiningar Glitnis
kemur fram að umfjöllun Ekstra
Bladet hafi reynst vera hvorki fugl
né fiskur. Þá segir í frétt Greiningar-
deildar Landsbankans að afhjúpun
Dananna hafi verið í þynnra lagi og
því hafi krónan styrkst á ný.