blaðið - 31.10.2006, Side 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 2006
blaóiö
UTAN ÚR HEIMI
SRÍ LANKA '-í-j
Enginn árangur af friðarviðræðum
Friöarviöræöur stjórnvalda á Sri Lanka og uppreisnar-
manna tamílsku tígranna fóru fram í Genf í Sviss um
helgina. Viðræöurnar voru pær fyrstu í átta mánuði en
stigvaxandi átök hafa verið á milli stríðandi fylkinga í
landinu. Ekki hefur verið boðað til frekari viðræðna.
SUÐUR-KÓREA
Búast við fleiri kjarnorkutilraunum
Yfirmaður bandaríska heraflans í Suður-Kóreu,
B.B. Bell, sagði í gær að búast mætti við frekari
kjarnorkutilraunum Norður-Kóreumanna. Herfor-
inginn sagði að Bandaríkjamenn og Suður-Kóreu-
menn gætu hrundið árás af þeirra hálfu.
St. Louis hættulegust
St. Lois í Missouri er hættulegasta borg Bandaríkjanna, samkvæmt
árlegri úttekt rannsóknar- og útgáfufyrirtækisins Morgan Quitno Press.
Glæpum hefur fjölgað um fjórðung síðustu tvö ár og þrátt fyrir uppbygg-
ingu borgaryfirvalda virðist ekkert lát á óöldinni. Næsthættulegasta
borgin er Detroit í Michigan-ríki og í þriðja sæti er Flint í sama fylki.
Þjóðþekktir á DVD-diskum:
Fræða um heilaslag
Samtökin Heilaheill
afhenda í dag hjúkrun-
arfólki á Landspítala
- háskólasjúkrahúsi DVD-
diska með sjónvarpsvið-
tölum við þjóðþekkta ein-
staklinga sem fengið hafa
heilaslag. Meðal þeirra
er rætt við Ingólf Marg-
eirsson rithöfund, Sigríði _______
Þorvaldsdóttur leikkonu,
Kristin Hallsson songvara
og Eddu Þórarinsdóttur
leikkonu. Á diskunum, sem eru 5
Margeirsson
niður í
i pakka, eru einnig fyrir-
lestrar og viðtöl við fag-
fólk og aðstandendur.
DVD-diskarnir eru
hugsaðir sem nokkurs
konar upplýsingabæk-
lingur og stuðningur
fyrir hjúkrunarfólk,
sjúklinga sem fá slag og
aðstandendur þeirra.
Á hverjum degi fá
tveir íslendingar slag
og færist sjúkdómurinn
aldri.
Jeppadekkin frá
Fáanleg í flestum stærðum fyrir
15,16,17 og 18" felgur
Fjallasport
^4x4 specialist"
Viðarhöfða 6 - Sími 577 4444
SJÁLFSVÍG Á ÍSLANDI
Þunglyndi er alvarlegur
sjúkdómur 33 einstaklingar
sviptu sig lífi í fyrra.
2000
2001
Karlar
42
28
Konur Samtals
8 50
8 36
Sjálfsvígum fækkar milli ára:
Sérhvert sjálfsvíg
mikill harmleikur
■ 24 karlar og níu konur sviptu sig lífi ■ Tveir undir tvítugu
Eftir Atla ísleifsson
atlil@bladid.net
„Þó að tölurnar fari lækkandi þá er
hvert sjálfsvíg alltaf jafn mikill harm-
leikur," segir Salbjörg Bjarnadóttir,
verkefnisstjóri Þjóðar gegn þung-
lyndi. „Margir aðstandendur lifa við
sorg vegna sjálfsvíga hvern einasta
dag og hlúa þarf að þeim. Ef ekki er
unnið með sorgarferlið þá getur það
einnig leitt til þunglyndis."
Þrjátíu og þrír tóku eigið líf á land-
inu í fyrra samkvæmt tölum frá Hag-
stofunni. Af þeim voru 24 karlar og
níu konur. Salbjörg segir tvo einstak-
linga sem voru undir tuttugu ára
aldri hafa svipt sig lífi í fyrra. „Alls
voru sex einstaklingar sem sviptu
sig lífi á aldrinum sextán til þrjátíu
ára, allt karlmenn. Konurnar sem
fyrirfóru sér voru flestar á aldr-
inum 41 til sextíu ára, eða sjö talsins.
Á aldrinum 31 til sextíu ára frömdu
Langflestir sem
fremja sjálfsvig
þjást afmiklum
kvíða eða þunglyndl
Salbjörg Bjarnadóttir
verkefnisstjóri Þjóðar
gegn þunglyndis
átján karlmenn sjálfsvíg. “ Salbjörg
segir að árið 2000 hafi niu einstak-
lingar undir tvítugu svipt sig lífi.
,Við erum því að sjá að verið er að
sinna yngsta hópnum betur. Við
erum einnig að sinna elsta hópnum
meðan í löndunum í kringum okkur
er sjálfsvígum innan þess hóps að
fjölga. Hvað sem Hður tölum um ald-
urshópa og kyn þeirra sem svipta
sig lífi þurfum við samt ávallt að
muna að hvert sjálfsvíg er harm-
leikur og margir aðstandendur sitja
eftir í sorg.“
Salbjörg segir þunglyndi vera
alvarlegan sjúkdóm sem geti leitt
til dauða. „Langflestir sem fremja
sjálfsvíg þjást af miklum kvíða eða
þunglyndi. Áður en sjálfsvíg er
framið hefur vanlíðan og það að sjá
fram úr hlutum langoftast verið að
þjaka einstaklinginn. Það liggur í
augum uppi að fólki líður ekki vel
sem ákveður að taka eigið líf. Það er
hins vegar ávallt hægt að fá aðstoð
ef fólk þarf, en stundum þurfa nán-
ustu aðstandendur að hjálpa því að
leita sér aðstoðar."
Landlæknisembættið mun halda
áfram að vinna að verkefninu Þjóð
gegn þunglyndi sem hófst árið 2002.
,Þá byrjuðum við að huga að því
hvað væri hægt að gera til að fækka
sjálfsvígum. Unnið hefur verið
mjög ötullega að því að fræða fólk
um sjálfsvíg, sjálfsáhættu og fleira.
Við munum halda áfram að fræða
ýmsa faghópa og almenning sömu-
leiðis um þunglyndi, orsakir þess
og afleiðingar.“
MEÐ TOK LAUNUM
TOK laun spara okkur mikinn tíma
og fyrirhöfn við útreikning á launum.
Hvort sem um tíma- eða mánaóarkaup
er að ræða greíðum við rétt laun á réttum
tíma sem skilar sér í ánægðu starfsfólki
og metnaðarfutiri þjónustu við gesti okkar.
HUGUR AX
STARFSMANNALAUSNIR
Ræddu við okkur um hvernig
TOK hentar þér í síma 545 1000.
HugurAx
HugurAx
Grjóthálsi 5
Guðríðarstíg 2-4
www.hugurax.is
hugurax@hugurax.is
K LAUN
nrTT t a 1 1 k 1 n nn—r 1 m n ttih m a
Ágústa Magnúsdóttir, eigandi
Pottur ehf. - Argentína Steikhús