blaðið - 22.12.2006, Side 26

blaðið - 22.12.2006, Side 26
26 FðSTUDAGUR 22. DESEMBER 2006 blaðið kolbrun@bladid.net Eg hætti að trúa á jólasveininn þegar mamma fór með mia í verslunarmiðstöð og hann bað mig um eiginhandaráritun. ShirleyTemple Afmælisborn dagsms GIACOMO PUCCINITÓNSKÁLD, 1858 PEGGY ASHCROFT LEIKKONA, 1907 Mannúð og morð Hjá Jentas kemur út bókin Upp- reisn án landamæra eftir Marc Vachon og Francois Bugingo. Þetta er saga af götustráki og skúrki sem sneri við blaðinu og nýtir reynslu sína úr undirheimum Montreal til að helga líf sitt hjálparstarfi og mannúðarmálum. Marc Vac- hon gerðist verkefnastjóri hjá Læknum án landamæra en hefði allt eins getað eytt ævinni í fang- elsi fyrir ofbeldi og eiturlyfjasölu. Hann hefur unnið við hjálparstörf síðastliðin sautján ár og starfar um þessar mundir í Senegal fyrir UNICEF. Jentas sendir einnig frá sér bók- ina Beitt áhöld eftir Gillian Flynn. Þetta er sálfræðileg spennusaga um blaðakon- una Camille Preaker. Hún á við vandamál að stríða sem fær hana til að skera sig með beittum áhöldum. Þegar tvær stelpur finnast myrtar á slóðum bernsku- heimilis hennar í Missouri, er hún send á staðinn. Samskipti Ca- mille við fjölskyldu sína í Missouri eru næstum því eins óhugnanleg og morðin sem hún er að skrifa um. Er hún sjálf og fjölskylda hennar flækt í málið? Bók um myrka glæpi og enn dekkri sálir. Saklaus er spennusaga eftir Harlan Coben sem Jentas gefur út. Matt Hunter urðu á mistök ungum og borgaði fyrir manni. Allt I einu með fangavist. Þegar hann er sloppim út aftur fær hann undarlegar mynchr sendar sem virðast sýna eigtnkonu hans með ókunnum karl- er hann korninn á flótta undan lögregkmni. Inn í söguna flóttast síðan týndur nektardansari, dauður gangster og myndskeið sem ekki þolir dagsins Ijós. Harlan Coben er margverðlaunaður spennusagna- höfundur og er þetta hans fyrsta bók sem út kemur á íslensku. Glæsilegt úrval ?'r úra og skartgripa ÚRSMÍÐAMEISTARI LAUGAVEGI 15 • Sími 511 1900 Arnar Jónsson „Skilaboöin eru þau að þaö sé varhuga- vert að hafa ekkert til aö trúa á sér æðra og aö manneskjan geti ekki tekið til sín allt vald.“ Sýning fyrir augu og eyru ólaleikrit Þjóðleikhússins árið 2006 er Bakkynjur eft- ir gríska snillinginn Evri- pídes. Frumsýning verður 26. desember og er þetta í fyrsta sinn sem verkið er sýnt á Is- landi og í nýrri þýðingu Kristjáns Árnasonar. I verkimi segir frá því þegar guð- inn Díónýsos, öðru nafni Bakkos, kemur til Þebuborgar til að minna borgarbúa á guðlegan uppruna sinn. Þegar Penþeifúr, konungur borgar- innar, neitar að taka Díónýsos í sátt lætur Díónýsos reiði sína bitna á konungsfjölskyldunni. Stefán Hall- ur Stefánsson fer með hlutverk Dí- ónýsosar og Ólafur Darri Ólafsson leikur Penþeif konung. Erfiður viðsnúningur Meðal annarra leikenda í sýning- unni er Arnar jónsson sem fer með hlutverk Kaðmosar, föður Penþeifs. Hann segir þetta leikrit Evripídes- ar vera nokkuð óvenjulegt þegar grísku gullaldarleikskáldin eiga í hlut. „Þetta er eina verkið þar sem guðinn sjálfur Díónýsos mætir sjálf- ur á svæðið í mannslfki. Verkið hefst nánast sem farsi en spinnur sig síð- an niður í gífurlegan harm. Að þessu leyti er það erfitt í meðförum vegna þess að hættan er sú að ef tekin er mjög skörp lína í gamanleik og bú- in til sériega fyndin sýning er hætt við að menn lendi í verulegum vand- ræðum með að kúvenda þegar hinn harmræni þáttur tekur við,“ segir Arnar. „Sonur minn sagðist hafa séð sýningu á leikritinu í London þar sem menn ætluðu að gera það að farsa en þeir lentu í hreinustu vand- ræðum þegar lengra var komið inn í verkið. Þá varð viðsnúningurinn svo erfiður að það varð fáránlegt. Þarna er lína sem er mjög erfitt að feta.“ Forvitnileg sýning Leikstjóri sýningarinnar, Gi- orgos Zamboulakis, kemur frá Grikklandi og sömuleiðis Than- os Vovolis sem er höfundur leikmyndar, búninga, gerva og grímna. „Þessir tveir menn ganga til verksins mjög vel undirbúnir og vita hvað þeir eru að gera. Þeir koma með hlutina tilbúna og eru næstum eins og kvikmyndahöf- undur sem er búinn að skapa sína mynd sem leikarar og aðrir verða að passa inn í.“ Er það ekki erfitt fyrir skapandi leikara? „Það er öðruvísi. Þá hefur maður minna svigrúm en um leið er um að gera að nýta það mjög vel. Á móti kemur að maður er ekki í vafa um hvaða leið Zamboulakis og Vovolis eru að fara og það er að mörgu leyti spennandi að fylgjast með vinnu þeirra, hvað þeir leggja áherslu á og svo framvegis. Það kom mér skemmtilega á óvart hvað leið þeir hafa valið." Hvað er sérstakt við þessa upp- fœrslu? „Þarna nálgast maður hlutina að sumu leyti utan frá, það er að segja formið verður til fyrst, bæði í hreyf- ingu og ytri umbúnaði og síðan er reynt að ná tökum á öllu þessu mikla söguefni. Það er heilmikil saga í gangi og megináherslan er að koma því trúverðuglega til skila á okkar timum að guðinn sé mættur á staðinn og að reiði hans sé að bitna á manneskjunum. Skilaboðin eru þau að það sé varhugavert að hafa ekkert til að trúa á sér æðra og að manneskj- an geti ekki tekið til sín allt vald.“ Hvernig hefur leikritið elst? „Ég las þetta leikrit fyrir fjölmörg- um árum en fannst mjög skemmti- legt að koma að því aftur. Hvort það hefur elst vel eða illa, held ég að fari töluvert eftir því hvernig menn nálgast það. Ég held að þetta verði mikil sýning fyrir augu og eyru. Hún gæti orðið mjög forvitnileg.“ Dreyfus sakfelldur Á þessum degi árið 1894 var franski liðsforinginn Alfred Dreyf- us safelldur af herrétti fyrir land- ráð en hann var talinn hafa komið hernaðarlegum upplýsingum til Þjóðverja. Mál hans skók franskt þjóðfélag og skipti þjóðinni í tvo hópa. Á myndinni sést þegar Dreyf- us var sviptur heiðursmerkjum og sverð hans tekið af honum og brotið. Dreyfus hrópaði hvað eftir annað að hann væri saklaus en mannfjöldi krafðist dauðarefsingar og blaða- menn kölluðu hann Júdas. Dreyfus var dæmdur í lífstíðarfangelsi á Djöflaeyjunni. Rithöfundurinn Emile Zola skrif- aði opið bréf í dagblað undir fyrir- sögninni: Jaccuse þar sem hann sagði samsæri vera í gangi í Dreyfus- málinu og kom því þannig í heims- pressuna. Seinna játaði yfirmaður Dreyfus, Esterhazy greifi, að vera sá seki. Mál Dreyfus var tekið fyrir að nýju. Dreyfus var fundinn sekur á ný en var þó látinn laus tíu dögum síðar, og mannorð hans hreinsað að fullu.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.