blaðið - 22.12.2006, Page 28
28
FOSTUDAGUR
R 2006
Lay Low fékk gull
Tónlistarkonan Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, betur
þekkt sem Lay Low, tær athenta gullplötu til marks
um sölu á 5.000 eintökum af frumburði hennar Ple-
ase Don't Hate Me í vikunni.
blaöiö
Porláksmessutónleikar
Hljómsveitin Baggalútur heldur veglega Þorláksmessutónleika I Iðnó á Þor-
láksmessu klukkan 22:10. Rás 2 útvarpar tónleikunum I beinni útsendingu
og verður Ólafur Páll Gunnarsson umsjónarmaður og kynnir. Tónleikarnir
verða endurfluttir á Rás 2 að kvöldi jóladags klukkan 22:10.
Ragnheiður
syngur í Von
Ragnhetour Gröndal heldurtón-
leika í Von, Efstaleiti 7, á Þorláks-
messu. Ragnheiður er lands-
mönnum að góðu kunn fyrir söng
sinn á undanförnum árum þótt hún
sé aðeins 22 ára gömul og hefur
hún hlotið verðskuldaða virðinau
almennings og gagnrýnenda. A
dögunum gaf Ragnheiður út plöt-
una Þjóðlög með Hauki Gröndal,
bróður sínum, og mun Ragnheiður
flytja lög af plötunni á tónleikunum
í bland við annað efni.
Tónleikarnir hefjast klukkan 21.
;ona
Möguleikamir
óþrjótandi
lerið er ótrúlega heill-
andi efni sem býður
upp á óendanlega
möguleika. Ég get
ekki almennilega út-
skýrt töfrana sem efnið býr yfir en
eftir að ég kynntist því árið 2001
hef ég lítið unnið með annað,“ seg-
ir Hildur Símonardóttir glerlistak-
ona en hún opnaði á dögunum nýtt
glerlistagallerí að Miklubraut 68
þar sem hún selur eigin verk. „Ég
býtil allt mögulegt, bæði nytjahluti
og ýmsa skrautmuni, til dæmis
vasa, kertastjaka, diska og heilmik-
ið af myndum.“ Hildur vann áður
mikið í leir en hún segir þá vinnu
töluvert frábrugðna glervinnunni
enda taki glerhlutirnir mun styttri
tíma í allri vinnslu. „Ég byrja á
því að búa til mín eigin mót, mér
finnst það miklu skemmtilegra
en að kaupa þau tilbúin. Svo sker
ég glerið í mótið og brenni það í
sérstökum ofni sem fer upp í 700-
8oo°C. Við allan þennan hita bráðn-
ar glerið og mótast í forminu," seg-
ir Hildur og bætir við að það sé
heilmikil kúnst að brenna glerið
rétt. „Glerið er mjög vinsælt um
þessar mundir og nokkuð margir
listamenn hér á landi sem eru að
fást við það. Ég á alltaf verk á lag-
er en mér finnst skemmtilegra að
búa til hlutina jafnóðum. Ef fólk
biður um eitthvað sérstakt þá hef
ég reynt að verða við þeim óskum.
Sumir sjá kannski einhvern hlut
sem þá langar í hérna hjá mér en
langar kannski að eiga hann í öðr-
um lit og þá er það ekkert mál.“
Hildur segir hugmyndirnar
koma úr öllum áttum. „Það er erf-
itt að rekja nákvæmlega uppruna
þeirra en þær detta oftast inn hjá
mér nokkuð fyrirhafnarlaust,“ seg-
ir Hildur að lokum og býður alla
velkomna í Gallerí Símón.