blaðið

Ulloq

blaðið - 22.12.2006, Qupperneq 29

blaðið - 22.12.2006, Qupperneq 29
blaðið FðSTUDAGUR 22. DESEMBER 2006 29 Ein besta bók síðari ára Bókin Tryggðarpantur eftir Auði Jónsdóttur er margslung- in saga. Bókin sem er gefin út af Máli og Menningu fjallar um Gíz- ellu Dal sem hefur allt á milli hand- anna. Hún býr í íbúð á besta stað í miðbæ óræðrar borgar í óræðu landi. Hún er um þrítugt og hefur hingað til lifað á arfi foreldra sinna og lifað hátt. Hún hefur aldrei þurft að hafa áhyggjur af peningum. Hún hefur ferðast um víða veröld og menntað sig til hálfs í nær öllum há- skólagreinum. Einn daginn kemst hún að því að hún er búinn með arfinn. Ibúðin er dýr í rekstri og það er lífsstíll hennar einnig. Gríð- arlegt húsnæðisvandamál herjar á borgina. Því bregður hún á það ráð að leigja íbúðina og búa þar ásamt þremur konum. Þessar konur eiga það allar sameinginlegt að þær koma frá öðrum löndum í öðrum heimshlutum. Sem leigusali ákveð- ur Gízella umdeilda reglu í sambúð- inni sem er sú að leigjendur þurfa að laga sig að hennar kostum og göll- um. I stuttu máli verða gríðarlegir árekstrar sem hafa ófyrirsjánlegar afleiðingar. Þegar maður les Tryggðarpant- Áleitin, Ijóðræn og um leið hrikalega gagnrýnin Gallarnir felast í kostum bókarinn- ar; hún afhjúpar þjóðarvitund okk- ar og það er sárt 4* n •* r’ AbÁi^JíwÁM!-,. Tryggöarpantur Eftir Auði Jónsdóttur Bækur ★★★★★ inn verður maður að hafa í huga að um táknræna skáldsögu er að ræða. íbúðin getur staðið fyrir ríki, Gízella fyrir samfélag og konurnar þrjár fyrir innflytjendur. Til að byrja með er Gízella hin opna borgarkona sem er víðförul í ofanálag. Hægt og rólega kemur þó í ljós að hún hefur litla sem enga þol- inmæði fyrir leigjendum sínum og hugmyndum þeirra. Hún bannar til að mynda mæðgum að tala sitt eigið móðurmál í viðurvist sinni. Hún vingast helst við þá konu sem líkist henni mest. Gengur jafnvel svo langt að gera hana eins líka sér sjálfri og mögulegt er. Þetta eru allt vísbendingar um þungan hjartslátt sem býr innra með þjóðum. Við vilj- um að allir læri íslensku. Allir eiga að vera eins og við. Sama hvað það kostar. Afhjúpunin á hræsni Gízellu er átakanleg. Auður tekst þarna á við eldfimt málefni. Hún tekst á við það á ein- staklega frumlegan hátt. Allar per- sónur bókarinnar vekja hjá manni samúð, jafnvel Gízella sem fer að haga sér eins og fasisti undir lokin. Þá er rétt að minnast á hina ótrú- lega lifandi borg sem Auður dregur upp. Borgin er bókstaflega áþreifan- leg persóna í sögunni og andrúms- loftið nær þrúgandi. Bókin er einstaklega vel skrifuð. Stíllinn ljóðrænn en sleppur alfarið við tilgerð. Hann er knappur og sag- an auðveld yfirferðar. Maður getur ekki annað en fagnað því að slík bók sem tekur á svo viðkvæmu málefni skuli vera jafn vel heppnuð og raun ber vitni. Tryggðarpantur er einhver besta ís- lenska skáldsaga síðari ára. Valur Grettisson Auður Jónsdóttir „ Maður getur ekki annað eri fagnað því að slík bók sem tekur á svo viðkvæmu málefni skuli vera jafn vel heppnuð og raun ber vitni." AFSLÁTTUR AF ÖLLUM BÚSÁHÖLDUM, GJAFAVÖRU OG BORÐSTOFUSTÓLUM EGG SMÁRATORGI

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.