blaðið - 01.02.2007, Side 17
blaðið
FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2007 25 *
Bækur Þorsteins Gylfasonar til Landsbókasafnsins
Haustið 2005 barst Landsbóka-
safni íslands - Háskólabókasafni
stórmerkileg bókagjöf frá erfingj-
um Þorsteins Gylfasonar, prófess-
ors í heimspeki við Háskóla Islands,
sem lést í ágúst það ár. Bókagjöfin
var ein sú stærsta sem safninu hefur
borist undanfarin ár, eða um 2.800
bindi alls. Þorsteinn var kennari í
heimspeki við Háskóla Islands frá
1971 og þar til hann lést 2005. Hann
var forstöðumaður Heimspekistofn-
unar frá 1982 til 1991 og ritstjóri
ritraðarinnar íslensk heimspeki
1982-1997. Hann var afkastamikill
við ritstörf á fræðasviði sínu og var
nemendum sínum minnisstæður
kennari. Hann átti yfirgripsmikið
safn heimspekibóka sem nú eru í
Landsbókasafni Islands - Háskóla-
bókasafni og bókasafni Háskólans
á Akureyri. Hann átti einnig marg-
ar bækur um tónlist og fjölmarga
geisladiska en þeir voru gefnir
Listaháskóla Islands. I gjöfinni
var einnig gott safn íslenskra og
erlendra bókmennta, bækur um
sagnfræði, náttúruvísindi og fleira.
Bækurnar hafa nú verið skráðar og
eru aðgengilegar notendum, lang-
flestar til útláns.
Þorsteinn var sjálfur mikilvirk-
ur rithöfundur. Eftir hann liggja
bækurnar Að hugsa á íslenzku,
Réttlæti og ranglœti, Orðasmíð,
Valdsorðaskak, Tilraun um mann-
inn, Tilraun um heiminn og ótal
greinar sem hafa birst í blöðum,
tímaritum og safnritum. Hann
hefur þýtt rit, ýmist einn eða með
öðrum, eftir P.T. Geach, John Stu-
art Mill og Soren Kierkegaard og
fleiri. I bókunum Sprek af reka og
Söngfugl að sunnan eru ljóðaþýð-
ingar Þorsteins eftir mörg þekkt-
ustu skáld hins vestræna heims,
meðal annars Heine, Yeats, Brecht,
T.S. Eliot og Púshkín.
Hægt verður að sjá sýnishorn af
gjöfinni og ritum Þorsteins í and-
dyri safnsins næstu vikur.
Framúrskarandi
fræðirit
Eftirtaldar bækur eru tilnefndar til
Viðurkenningar Hagþenkis sem
veitt verður 28. febrúar:
Andri Snær Magnason: Drauma-
landið. Sjálfshjálparbók handa
hræddri þjóð.
Björn Hróarsson: Islenskir hellar.
Guðni Th. Jóhannesson: Óvinir
ríkisins. Byltingarsinnar, ógnir
og innra öryggi í kalda stríðinu á
íslandi.
GunnarJónsson, Jónbjörn
Pálsson og Jón Baldur Hlíðberg:
(slenskir fiskar.
Gunnar Karlsson og Sigurður
Ragnarsson: Nýir tímar. Saga Is-
lands og umheimsins frá lokum 18.
aldar til árþúsundamóta.
Ragnhildur Richter, Sigríður
Stefánsdóttir og Steingrímur
Þórðarson: (slenska I. Kennsluþók
í íslensku fyrir framhaldsskóla.
Robert Jack: Hversdagsheim-
speki. Upphaf og endurvakning.
Sigrfður Dúna Kristmundsdóttir:
Ólafía. Saga Ólafíu Jóhannsdóttur.
Þórður Tómasson: Listaætt á Aust-
ursveitum.
Þórunn Erlu Valdimarsdóttir:
Upp á Sigurhæðir. Saga Matthí-
asar Jochumssonar.
Laufey og Páll á
hádegistónleikum
Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari og
Páll Eyjólfsson gítarleikari efna til
hádegistónleika í Listasafni Islands,
fimmtudaginn 1. febrúar. Þar munu
þau flytja verk eftir íslensku tón-
skáldin Hilmar Þórðarson, Þorkel
Sigurbjörnsson og Tryggva M. Bald-
vinsson, sem öll hafa verið samin
sérstaklega fyrir Laufeyju og Pál,
en einnig á hinn færeyski Kristian
Blak verk á dagskránni.
SPT R
Gúllas kr. i 00 O) ■
Kótelettur kr. 998,-
Hryggur 1/1 m/puru kr. 989,-
Bógur 1/1 gjgj 598,-
Síður m/beini kr. 598,-
Snitsel kr. l 00 O) PM ■
Hnakki úrb. nýr kr. 1 * 00 01 o ■
Lundir kr. 1.998,-
Grillaður kjúklingur,
franskar og 21. Coce
-Látið kjötiðnaðarmenn okkar ráðleqqja qður!
BÆJARLIND 1 - Sími 544 4510
OPIÐ ALLA DAGA FRÁ KL. 10.00 - 20.00
blaði
Auglýsingasíminn er
510 3744
alla daga