blaðið - 15.02.2007, Blaðsíða 2

blaðið - 15.02.2007, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2007 blaðið Rigning Gengur í austan og norðaustan 13-23 með rigningu nú í morgunsárið, hvassast og úr- komumest suðaustantil. Lægir víða og dregur úr úrkomu síðdegis. Vægt frost í innsveitum á Norðurlandi, annars 1 til 8 stiga hiti. ÁMORGUN Rignir áfram Austanátt, 10-18 m/s, hvassast við suður- og austurströndina. Rigning eða slydda suðaustan- og austanlands, en annars úrkomulítið. Hiti 0 til 6 stig. VÍÐA UM HEIM Algarve 20 Glasgow 8 New York Amsterdam 6 Hamborg 8 Orlando Barcelona 18 Helsinki -8 Osló Berlín 9 Kaupmannahöfn 4 Palma Chicago -4 London 9 Paris Dublin 9 Madrid 15 Stokkhólmur Frankfurt 6 Montreal -15 Þórshöfn -5 18 -1 25 11 0 6 Á FÖRNUM VEGI Hvaða stjórnmála- manni treystir þú best? ingi Björn Ómarsson, nemi „Geir H. Haarde, ég sá það í Frétta- blaðinu á mánudag að flestir treysta honum.“ Markus Capail, kerfisfræðingur „Það er enginn sérstakur sem mér dettur í hug.“ Linda Arvids, heimavinnandi „Ég treysti engum þeirra, það er öllu fögru lofað fyrir kosningar og svo er allt svikið.“ Hóimfríður Þórarinsdóttir, þjónn „Ég treysti bara sænsku stjórninni best.“ Dagbjartur Gunnarsson, nemi „Björk Vilhelmsdóttur, vegna þess að hún er náskyld mér.“ Gunnar Örn Örlygsson sendir Frjálslynda flokknum tóninn: Grafhýsisflokkur ■ Flokkurinn hefur fjarlægst uppruna sinn ■ Rangt segir Guðjón Arnar Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur hilduredda@bladid.net „Mér finnst afar athyglisvert að Guð- jón Arnar, sem formaður stjórnmála- flokks, hagar sér eins og skipstjóri á togara sem hefur áhrif á hver gegnir stöðu stýrimanns," segir Gunnar ÖrnÖrlygsson.þingmaðurSjálfstæð- isflokksins og fyrrum þingmaður Frjálslynda flokksins. „Þegar ég fór í varaformannsslag við Magnús Þór Hafsteinsson í byrjun ársins 2005 lýsti Guðjón Arnar yfir stuðningi við Magnús Þór og mér finnst með ólíkindum að hann skuli gera sömu mistök aftur nú í ár.“ Gunnar Örn sagði sig úr Frjáls- lynda flokknum árið 2005 eftir að hafa lotið í lægra haldi fyrir Magn- úsi Þór í kosningu um varafor- mannsembætti flokksins og gekk til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Á landsþingi Frjálslynda flokksins í janúar síðastliðnum bauð Margrét Sverrisdóttir sig fram sem varafor- maður gegn Magnúsi Þór, en laut sömuleiðis í lægra haldi og sagði sig úr flokknum. Gunnar segir stefnu Frjálslynda flokksins hafa fjarlægst uppruna sinn. „Flokkurinn er nú orðinn öfga- flokkur í einu málefni, sem er mál- efni innflytjenda, og að mínu mati er um afar tækifærissinnaða pólitík að ræða. Sú stefna hefur aldrei átt upp á pallborðið hjá flokknum fyrr en nú á haustdögum, enda ber heiti flokksins þess merki að hann sé um- burðarlyndur og frjálslyndur í garð ólíkra hópa. Ég er alls ekki sam- mála núverandi stefnu sem ég tel í raun vera staðfestingu á réttmæti minnar ákvörðunar og því að ég átti ekki heima í flokknum. Flokk- urinn rær lífróður til að bjarga sínu pólitíska lífi með eins ógeðfellt mál í handraðanum og raun ber vitni og er að verða að einhvers konar graf- hýsi fyrir utanveltu pólitíkusa sem eru svekktir yfir sínu hlutskipti og hafa ekki í nein hús að venda.“ Guðjón Arnar Kristjánsson segir það rangt hjá Gunnari Erni að Frjáls- lyndi flokkurinn hafi fjarlægst sína upphaflegu stefnu í innflytjenda- málum. „f apríl síðastliðnum flutti Magnús Þór ræðu á Alþingi þar sem hann gerði grein fyrir okkar afstöðu hvað varðar vinnumarkað- inn og innflytjendur og benti á hvað hér mætti betur fara. Sú ræða vakti engin sérstök viðbrögð þá en þjóðin fór hins vegar að tala um þetta í haust þegar menn sáu flóð innflytj- enda sem við höfðum varað við,“ bendir hann á og segir marga reyna að snúa út úr flokknum og saka hann um útlendingahatur, sem sé alls ekki réttmætt. Hann segir að Gunnari Erni sé frjálst að finnast allt sem hann gerir vera mistök. „Ég minni bara á ummæli hans við Morgunblaðið þegar hann var að bjóða sig fram sem varaformaður árið 2005. Þar sagðist hann ekkert finna að stöfum mínum né Magnúsar Þórs. Sjálfur Flokkurínn er nú orðinn öfga flokkur í einu málefni Gunnar Örn Örlygs- son, þingmaður Margir reyna að saka flokks- menn um útlendingahatur Guðjón Arnar Kristjáns- son, formaður Frjáls- lynda flokksins Tek ekki mark á Gunnari Emi Magnús Þór Hafsteins- son, varaformaður Frjálslynda flokksins hef ég aldrei farið dult með það að ef ég tel mig hafa góða samstarfs- menn finnst mér engin ástæða til að skipta þeim út.“ Magnús Þór Hafsteinsson segist ekki vilja skattyrðast við Gunnar Örn. „Hann nýtur ekki þeirrar virð- ingar í mínum huga að ég taki mark á orðum hans. Hann má gjamma eins og hann vill mín vegna en ég verð þó að segja að mér finnst dap- urlegt að horfa á það hvernig hann ræðst ítrekað með ósannindum að Guðjóni Arnari, sínum velgjörðar- manni,“ segir hann. Frakkland: Álag vegna Monu Lisu Safnverðir á Louvre-safninu í París, höfuðborg Frakklands, hafa farið fram á launahækkun vegna þess mikla álags sem fylgir því að fylgjast með safngestum sem virða fyrir sér frægasta málverk heims, Monu Lisu eftir hinn ítalska Leonardo da Vinci. Safnverðirnir hafa farið fram á tæplega fimmtán þúsund króna launahækkun, en þeir sækjast einnig eftir aukagreiðslu fyrir það að gæta ferðamanna sem skoða högg- myndina Venus frá Míló. Bandaríkin: 13 þúsund sagt upp Stjórn bílaframleiðandans DaimlerChrysler tilkynnti í gær að verksmiðju fyrirtækisins í Delaware í Bandaríkjunum verði lokað og 13 þúsund starfsmönn- um sagt upp í kjölfar mikils rekstrartaps undanfarið. Sala á bílum fyrirtækisins dróst saman um sjö prósent á síðasta ári. Fyrir störfuðu um 83 þús- und manns hjá fyrirtækinu. Bandarískir bílaframleiðend- ur hafa átt erfitt uppdráttar á undanförnum árum vegna vaxandi hlutdeildar asískra bílaframleiðenda á markaðnum og hafa Ford og General Motors bæði þurft að skera niður. 2007 Benz ML 320 Dísel. Þessir bílar ganga allstaðar t heiminum á yfirver&i í dag. Eigum nokkra vel búna bíla til á lager. Sýningarbíll á staðnum. Bílarnir eru á 800 tíl 1.600 þús, undir listaverði. Okkar verö frá 7.138 þús. VÓÓbill/ Skúlagötu 17 www.sparibill.is Sími: 577 3344 Stuðningur við hernað gegn íran: Afstaða enn ekki tekin Islensk stjórnvöld hafa ekki tekið afstöðu til stuðnings við hugsanlegar hernaðaraðgerðir gegn Iran. Engin erindi, hvorki formleg né óformleg, hafa borist frá Bandaríkjamönnum um slíkan stuðning. Þetta kom fram í svari Geirs H. Haarde forsætisráð- herra við fyrirspurn Steingríms J. Sig- fússonar, þingmanns Vinstri grænna, á Alþingi í gær um það hvort Banda- ríkjamenn hefðu leitað hófanna um slíkan stuðning. Steingrímur spurði jafnframt hvort íslensk yfirvöld hefðu hugleitt að afturkalla loforð í aðdraganda inn- rásarinnar í Irak um atbeina í formi afnota af íslenskum flugvöllum og lofthelgi. „Sú heimild sem var veitt í mars 2003 um afnot af flugvöllum og loft- helgi miðaðist við það sem þá var í gangi. Hún hefur ekki verið formlega afturkölluð en á að sjálfsögðu ekki við lengur," sagði forsætisráðherra. Steingrímur sagði það vekja undrun og furðu að ekki skuli vera hægt að taka af skarið um að íslensk yfirvöld muni aldrei leggja slíkum hernaðaraðgerðum lið. „Hvers vegna er ekki hægt að gefa slíka yfirlýsingu nú?“ spurði þingmaðurinn. Forsætisráðherra sagði að hann hefði ekki tamið sér að svara slíku fyrirfram og bætti því við að ekk- ert benti til að hernaðarátök væru í uppsiglingu.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.