blaðið - 15.02.2007, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2007
blaöiö
INNLENT
NEYTENDASAMTÖKIN
Vilja lög um transfitusýrur
Neytendasamtökin hafa sent umhverfisráðherra bréf
þar sem hvatt er til þess að íslensk stjórnvöld fylgi
fordæmi Dana og setji lög um transfitusýrur. Þau
segja hættuna hafa verið Ijósa. Rannsóknir bendi til
þess að (slendingar borði of mikið af slíkri fitu.
REYKJAVÍK
Nýtt hjúkrunarheimili
Skóflustunga var í gær tekin að nýju hjúkrunarheimili við
Suðurlandsbraut. 110 hjúkrunarrými verða á heimilinu. Af
þeim eru 40 rými ætluð fyrir heilabilaða. Einnig verður þar
10 rýma deild fyrir geðsjúka aldraða. Miðað er við að allir
íbúar verði í einbýli. Heimilið verði tekið í notkun árið 2009.
FRAMHALDSSKÓLAR
Stytting námstíma valkostur
Menntamálaráðherra sagði á þingi í gær að
stytting námstíma til stúdentsþrófs væri ekki
markmið í sjálfu sér heldur mikilvægur valkostur.
Ráðherrann sagði að verið væri að fara yfir tillögur
sem starfshópar væru að skila.
E vrópusambandið:
Fordæmir 14 stjórnir
Evrópuþingið samþykkti
skýrslu þar sem ríkisstjórnir og
leyniþjónustur fjórtán aðildar-
ríkja Evrópusambandsins eru
fordæmdar fyrir að hafa litið
undan þegar leyniþjónusta Banda-
ríkjanna flutti fanga grunaða um
hryðjuverk í leynileg fangelsi utan
landamæra Bandaríkjanna. Meðal
ríkisstjórna sem fordæmdar eru í
skýrslunni eru ríkisstjórnir Bret-
lands, Italíu og Þýskalands.
Höfundar skýrslunnar greina
frá 1.245 flutningum á föngum
í lofthelgi Evrópusambandsríkj-
anna. Þingnefnd á vegum þingsins
var skipuð í nóvember árið 2005 í
kjölfar þess að bandaríska dag-
blaðið Washington Post greindi
frá hugsanlegu fangaflugi.
LÁTIÐ FAGMANN
VINNA VERKIÐ!
- Dúkalögn
- Veggfóðrun
- Teppalögn
dukur@simnet. is - www.dukur.is
'aj' /rji/tj' a /tri/r/óö/t/rt'jr)/
tk am
r/JT
í//(e^'a/jjj/ei//ró/jrjed//ju/y
féf/mó 849 S004
Félag dúktagninga- og
veggfóðrarameistara
v^iáá/teOwp.ió
Þrír milljarðar í samgöngumiðstöð í Vatnsmýri:
Ekki ákvörðun um
framtíð flugvallarins
■ Ákveöiö á kjörtímabilinu ■ Æfingaflug á Sandskeiö
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
lngibjorg@bladid.net
„Við höfum ekki litið svo á að
ákvörðun um byggingu samgöngu-
miðstöðvar í Vatnsmýrinni feli í
sér ákvörðun af hálfu borgaryfir-
valda um að flugvöllurinn verði þar
áfram. Enda er það yfirlýst stefna
borgaryfirvalda að ákvörðun um
framtíðarstaðsetningu flugvallar
verði ekki tekin fyrr en að loknu
því samráði sem nú á sér stað milli
ríkis og borgar,“ segir Hanna Birna
Kristjánsdóttir, borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins og formaður skipu-
lagsráðs borgarinnar. Hún bætir
því við að nýr meirihluti í Reykjavík
hafi heitið því að taka þá ákvörðun
á yfirstandandi kjörtímabili.
Þrír milljarðar til 2010
1 nýrri samgönguáætlun sem
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra kynnti fyrr í vikunni er gert
ráð fyrir 3 milljarða króna framlagi
til samgöngumiðstöðvar á tímabil-
inu 2007 til 2010. Þar segir að aðkall-
andi sé að byggja samgöngumiðstöð
við Reykjavíkurflugvöll sem yrði
miðstöð almenningssamgangna í
landinu.
Hanna Birna tekur það fram
að samgöngumiðstöðin, sem á að
vera norðan við Flugleiðahótelið og
sunnan við Hlíðarenda, hafi verið
staðsett þegar skipulagi Vatnsmýr-
arinnar var breytt vegna starfsemi
Háskólans í Reykjavík. „Það var
haft samráð við samgönguyfirvöld
og aðra um staðsetninguna og hún
er mjög miðsvæðis í Reykjavík.
Samgöngumiðstöðin er þar af leið-
andi hluti af gildandi skipulagi á
svæðinu."
Skoðað með og án vallarins
Dagur B. Eggertsson, borgarfull-
trúi minnihlutans, kveðst hafa
komið að skipulagsvinnunni með
samgönguráðuneytinu á síðasta
kjörtímabili. „Þá var verið að skoða
útfærslu á samgöngumiðstöð með
flugvelli og án flugvallar. Almennt
held ég að óskynsamlegt sé að fara
að reisa hana fyrr en búið er að
ákveða staðsetningu nýs flugvallar.
Á meðan það er lít ég þannig á að
samgönguráðherra sé bara að und-
irstrika að það þurfi að byggja sam-
göngumiðstöð. En ég á ekki von á
öðru en að hann sé í þessari vinnu
við að finna nýtt flugvallarstæði af
fullum heilindum."
Hugmyndasamkeppni um skipu-
lag Vatnsmýrarinnar verður hleypt
Samráð við sam-
gönguyfirvöld
Hanna Birna Kristjáns-
dóttir, borgarfulltrúi
Sjálfstæöisflokks
af stokkunum um miðjan mars,
að því er Hanna Birna greinir frá.
„í þessari samkeppni er þátttak-
endum ekki uppálagt að teikna
hugmyndir sem annars vegar gera
ráð fyrir því að flugvöllurinn verði
áfram eða hins vegar að hann
fari. Þetta verður alveg frjálst og
ekki verður tekin afstaða til þessa
atriðis.“
I samgönguáætluninni segir að
helsta fyrirsjáanlega breytingin á
hlutverki Reykjavíkurflugvallar
sé að æfingaflug flytjist af flugvell-
inum sem dragi verulega úr fjölda
flughreyfinga. Flugbraut með
bundnu slitlagi á Sandskeiðsflug-
velli verði tekin í notkun árið 2007
og muni æfingaflug væntanlega fær-
ast þangað að verulegu leyti y fir sum-
armánuðina. Þá muni einkaflug á
Reykjavíkurflugvelli væntanlega
dragast saman eftir því sem aðstaða
fyrir einkaflug verður byggð upp á
öðrum flugvöllum.
Sýklafræðideild Landspítalans:
Sænska klamydían ekki útbreidd
Svíar greindu frá nýjum stofni
klamydíu á seinni híuta síðasta
árs, sem hafði náð útbreiðslu í Sví-
þjóð. Sá stofn hafði ekki greinst
með þeim aðferðum sem notaðar
höfðu verið fram að því. Fyrstu
niðurstöður rannsókna sýklafræði-
deildar LSH benda til þess að hann
hafi ekki náð útbreiðslu hérlendis.
I fyrra greindust samtals 1729
klamydíutilfelli á íslandi og hefur
tíðni hennar aukist lítillega frá
2005 en þá voru greind tilfelli 1622
talsins. „Við höfum haft mikið
af klamydíu hér og eins og sést
Klamydíutilfellum fjölgaði milli
ára Flest tilfelli greindust meðal ein-
staklinga á aldrinum 18 til 19 ára.
á þessum tölum þá fer tilfellum
ekkert fækkandi," segir Þórólfur
Guðnason, yfirlæknir á sóttvarna-
sviði landlæknisembættisins. Sýk-
ingin greindist oftar hjá konum
en körlum og voru flest tilfellin
meðal einstaklinga á aldrinum 18
til 19 ára.
Leitað hefur verið að nýja stofn-
inum í yfir eitt þúsund sýnum hér
á landi sem send voru til klamydíu-
rannsókna. Klamydía hefur greinst
í um 10% sýnanna og virðist sem
innan við 2% af jákvæðum sýnum
séu af nýja stofninum.