blaðið - 15.02.2007, Síða 16
16 FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2007
blaöiA
kolbrun@bladid.net
Afmælisborn dagsms
LÚÐVÍK XV. FRAKKAKONUNGUR, 1710
GALILEO VÍSINDAMAÐUR, 1564
ILMURINN
Rómuð
spennusaga
Hja Máli og menningu er komin
út í kilju llmurinn - saga af
morðingja
eftir Patrick w“"">
Súskind.
Kristján
Árnason
þýddi.
„Á átjándu
öld var uppi
í Frakklandi
maður sem
var í hópi
allra snjöll-
ustu og
andstyggi-
legustu einstaklinga sinnar
aldar, og það þótt hún væri
annars engan veginn fátæk af
snjöllum og andstyggilegum ein-
staklingum. Það er saga hans
sem hér verður sögð.“
Þannig hefst sagan af Jean-
Baptiste Grenouille sem fæðist
undir blóðugu fisksöluborði í
París. Nöturleg koma hans í
heiminn er þó aðeins upphafið
að furðulegu lífshlaupi þessa
grimma og einstæða snillings
sem er gæddur yfirskilvitlegu
lyktarskyni - á hinn bóginn ber
hann enga líkamslykt sjálfur.
Ilmurinn - saga af morðingja
hefur farið sannkallaða sigurför
um heiminn á þeim tuttugu
árum sem liðin eru frá útkomu
bókarinnar. Hún var ein þeirra
bóka sem rufu múrinn milli
spennusagna og fagurbók-
mennta og hefur bæði unnið til
fjölda verðlauna og setið í efstu
sætum metsölulista um heim
allan.
Kvikmynd eftir bókinni er nú til
sýninga i Sambíóum.
Metsölulistinn - innlendar bækur
! Ilmurinn - kilja
Patrick Siískind
^ Viltu vinna milljarð? - kilja
Vikas Swarup
j Skólinn hans Barbapabba
Annette Tison
} Draumalandið
AndriSnærMagnason
Breytingaskeiðið
PPforlag
6 Pétur hittir Svart og Bjart
Jón Sveinbjörn Jónsson
? Aldingarðurinn
Ólafur Jóhann Ólafsson
Vefurinn hennar Karlottu
E. B. White
9 Flugdrekahlauparinn
Khaled Hosseini
H.C. Andersen pakki
H.C. Andersen - PPforlag
Metsölulistinn - erlendar bækur
ThePoeShadow
Matthew Pearl
7 On the Run
Iris Johansen
3 TheTemplarLegacy
Steve Berry
4 Wuthering Heights
Emily Bronté
„ The Alchemist - Gíft Edition
Paulo Coelho
6 Heaven and Earth: Unseen by the Naked Eye
Phaidon
? HomeTruths
Freya North
8 The Husband
Dean R. Koontz
9 TheCell
Stephen King
10 Two Little Girls in Blue
Mary Higgins Clark
Listinn er gerður eftir sölu í Pennanum Eymundsson og bóka-
búðum Máls og menningar dagana 07.02 -13.02.
Mynd frá hjartanu
Teiknim
oa skapsveiflixrna
komin
Hilmar Sigurðsson „Við
gerðum myndina á okkar
forsendum og það eru for-
réttindi í kvikmyndabransa
nútímansBim/Frikki
kvikmyndahúsum hér á landi
er verið að sýna teiknimynd-
ina Önnu og skapsveiflurnar í
leikstjórn Gunnars Karlssonar.
Sjón gerir handrit og tónlistin
er eftir Julian Nott. Caoz hf. er fram-
leiðandi en áður hefur það sent frá
sér hina vinsælu teiknimynd Litla
lirfan ljóta.
„Það eru fjögur ár síðan Sjón kom
hingað með söguna og sagði okkur
frá því hvað hann væri að gera,“ seg-
ir Hilmar Sigurðsson sem er fram-
leiðandi myndarinnar ásamt Arn-
ari Þórissyni. „Upphafið er þannig
að Brodsky-kvartettinn leitaði til
Sjóns og Julian Nott og vildi fá frá
þeim sögu og tónverk sem átti að
höfða til ungs fólks. Sjón skrifaði
þessa sögu og Nott samdi tónlist og
verkið var flutt á tónleikum í Bret-
landi þar sem Sjón var sögumaður
og leiklas söguna. Þá vorum við hér
í Caoz byrjuð að þróa þessa teikni-
mynd og það hefur tekið fjögur ár,
sem er nokkuð langur tími. F.g hef
oft sagt að í sjónvarpsbransanum
sé talað um klukkustundir í fram-
leiddu efni á viku. í kvikmynda-
bransanum er talað um mínútur á
viku og í teiknimyndabransanum
tölum við um sekúndur á viku.
Þetta lýsir ferlinu. Hjá Caoz gerum
við þá kröfu til okkar kvikara, eins
og við köllum teiknarana, að þeir
skili okkur fimmtán sekúndum á
viku."
í efstu deild
Spurður hvernig honum þyki
myndin segir Hilmar: „Mér finnst
myndin frábær og viðtökur hafa ver-
ið einstaklega góðar. Við þurftum
ekki að lúta valdi erlendra sérfræð-
inga, dreifingaraðila eða annarra
heldur fengum tækifæri til að gera
hana eins og við vildum hafa hana.
Allir sem unnu að henni settu hjarta
sitt í verkið. Við gerðum myndina á
okkar forsendum og það eru forrétt-
indi í kvikmyndabransa nútímans.
Oftar en ekki eru svona verkefni
framleiðsla milli tveggja til þriggja
aðila."
Um dreifingu á myndinni er-
lendis segir hann: „Markaðurinn
fyrir mynd eins og þessa er þröng-
ur. Myndin fer aðallega í sjónvarps-
dreifingu erlendis því það er ekki
algengt að hálftímamynd sé dreift í
bíó, þó er verið að skoða það á tveim-
ur stöðum. Það er búið að selja hana
á allar Norðurlandastöðvarnar og
Þýskaland, Frakkland og Bretland
hafa sýnt áhuga. Svo er hún á leið
á kvikmyndahátíðir. Þótt við reikn-
um með að myndin skili sér í kostn-
aði á endanum þá verður hún aldrei
stór tekjulind. Ef við náum henni á
núllið þá verðum við glöð og miðað
við undirtektir er ég er nokkuð viss
um að það tekst. Sjálf teljum við að
við séum með henni komin í efstu
deild í þrívíddarteiknimyndagerð."
Teiknimynd um Þór
Nú vinnur Caoz að teiknimynd í
fullri lengd þar sem aðalpersónan
er guðinn Þór. „Við höfum verið
í tvö ár að skrifa og þróa það verk-
efni og veitir svo sem ekki af. Við
höfum líka kallað til erlenda sér-
fræðinga til að lesa og gefa álit og
erum að rembast við að gera þetta
rétt. Við munum kynna það verk-
efni á erlendri teiknimyndaráð-
stefnu nú í rnars," segir Hilmar. „I
þessari mynd munum við taka
fyrir þá fjölmörgu skemmtilegu
karaktera sem eru í goðafræðinni,
ekki bara goð og jötna heldur líka
Fenrisúlf og Miðgarðsorm og fleiri
sérkennilega karaktera. Þetta er sér-
deilis skemmtilegt og spennandi
verkefni og við vonum að myndin
komi út fyrir jólin 2010.“
Hellman
stefnir McCarthy
menningarmolinn
A þessum degi árið 1980 fór leikrita-
skáldið Lillian Hellman í meiðyrða-
mál við rithöfundinn Mary McCarthy
og krafðist 2.2 milljóna króna skaða-
bóta. Báðar nutu konurnar mikillar
virðingar í bókmenntaheiminum.
Hellman var áhrifamikill vinstrisinn-
aður leikritahöfundur og samdi með-
al annars leikritin The Little Foxes og
The Children’s Hour. McCarthy var
gagnrýninn og kaldhæðinn rithöfund-
ur, þekktust fyrir bók sína The Group
(Klíkan). McCarthy hafði í spjallþætti
sagt Hellman vera slæman, ofmetinn
og óheiðarlegan höfund. Lengi hafði
verið kalt á milli þeirra tveggja eða í
rúm þrjátíu ár þegar þær rifust á ljóða-
þingi I bandarískum háskóla.
Rithöfundar og stuðningsmenn
tjáningarfrelsis komu McCarthy til
varnar. Þar á meðal var auðkona
nokkur sem borgaði lögfræðikostnað
fyrir McCarthy og bjargaði henni frá
gjaldþroti. Hellman lést áður en mál-
ið kom fyrir dóm og í kjölfarið var því
vísað frá.
Lillian Hellman