blaðið - 06.03.2007, Blaðsíða 10
Vantar þig leið til þess að koma
jafnvægi á líkamsstarfssemina?
Zhena's Gypsy Tea
gæti hjálpað
Prófaðu Fireside Chai
Koffínlausa kraftaverkið
TILBOÐ
20% afsláttur
hjá næsta söluaðila
Englatár - www.englatar.is - 551 8686
10
ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2007
blaðið
UTAN ÚR HEIMI
KÍNA *■
Utgjöld til hernaðar aukast
Stjórnvöld í Kína hafa tilkynnt að útgjöld til hernaðarmála í
ár verði átján prósentum hærri en á síðasta ári. Stjórnarher
Kína er sá stærsti í heimi en hermenn eru um 2,3 milljónir.
Útgjöld kínverskra stjórnvalda til hersins hafa aukist um að
minnsta kosti tíu prósent á ári síðustu fimmtán árin.
Ansip sigurvegari kosninganna
Víst er talið að Andrus Ansip, forsætisráðherra Eistlands,
haldi embætti sínu eftir að Umbótaflokkur hans hlaut 27,8
prósenta fylgi í þingkosningunum um helgina. Ansip hyggst
jafnvel leita til þjóðernisflokksins IRL í stað Miðflokksins,
samstarfsflokks Umbótaflokksins, við stjórnarmyndunina.
Tæmið póstkassa reglulega
Við hjá Póstinum biðjum landsmenn um að tæma póstkassa sína
regtulega. Bréfberar eiga stundum (vandræðum með að setja
póst í yfirfutta póstkassa og þá verða þeir að endursenda póstinn,
sendanda og viðtakanda til verulegra óþæginda.
Aðstoð ykkar og tiltitssemi auðvelda okkur að koma póstinum
til skita, hratt og örugglega.
Þjónustuver | símí 58012001 postur@postur.is | www.postur.is
vöauutis
eftirlit Heimsóknir verka-
manna af virkjunarsvæðinu hafa
orðið til aukins eftirlits í verslun-
um vegna aukinna gripdeilda.
Mynd/Steinwm Ásmundsdóttir
Mannmergð í Kaupfélagi Héraðsbúa:
Stuldur eykst
á sunnudögum
■ Sækja í raftækin ■ Ekki bara útlendingar
Við fylgjumst sérstaklega með
þessum heimsóknum og er ekki van-
þörf á. Við höfum tekið eftir því að
vörur hverfa úr hillunum hjá okkur.
Þetta eru margir sem koma í einu
og á dögum þegar við erum fáliðuð,"
segir Gunnar Sigbjörnsson, verslun-
arstjóri Kaupfélags Héraðsbúa.
Á sunnudögum koma margir
starfsmenn ofan af virkjunarsvæð-
inu við Kárahnjúka í heimsókn
til Egilsstaða og fjöldi hefur vanið
komur sínar í kaupfélagið. Þar á
bæ hafa menn tekið eftir auknum
búðarþjófnaði á þeim tíma sem
heimsóknin stendur yfir og hafa því
aukið eftirlit hjá sér.
Aðspurður segir Gunnar eftirlitið
einkum hafa beinst að raftækja-
deildinni. Hann segir fjárhagslegt
tjón ekki hafa verið tekið saman.
„Það hefur svolítið verið að fara úr
þeirri deild og því höfum við fylgst
sérstaklega vel með því. Þetta er
meira áberandi og hefur aukist í
kringum þessar heimsóknir,“ segir
Gunnar. „Það má ekki gleyma því
að flestir þessara manna eru strang-
heiðarlegir. Þetta er bara eitthvað
sem gerist þegar svona mikill fjöldi
kemur í búðina í einu.“
Starfsmaður í Bónus á Egils-
stöðum kannast við gripdeildirnar
en segir trúlegt að þetta bitni frekar
á kaupfélaginu þar sem þar sé boðið
upp á dýrari sérvöru. Hann telur
líkur á því að heimamenn notfæri
sér ástandið. „Vegna þess hversu
illa er talað um starfsmennina sem
hingað koma gæti ég alveg eins
trúað því að óheiðarlegir heima-
menn steli meira á þessum tímum.
Ég hef sterkan grun um það. Mér
finnst því ekki hægt að skella skuld-
inni eingöngu á útlendingana,“ segir
starfsmaðurinn.
SETTU ÞAÐ SAMAN Ml
Af hverju að borga meira?
HTH er leiðandi I framleiðslu innréttinga á Norðurlöndum og
býður besta verð sem völ er á fyrir þá sem vilja sjálfir taka þátt í
uppsetningu á eigin eldhúsi.
Gerðu verðsamanburð og þú munt komast að því að Settu það
saman línan frá HTH kostar minna en sambærilegar innréttingar
á markaðinum.
Einfalt og þægilegt.
Fagleg útsjónarsemi og markviss hönnun fagmanna HTH er
lykillinn að þessum glæsilegu innréttingum. Settu það saman er
kerfi sem auðvelt er að raða saman og fella að hvaða plássi sem er
- og að þeim kröfum sem gerðar eru til geymslurýmis í
eldhúsinu. HTH býður ókeypis teikniforrit með þessu kerfi sem
gerið þér auðvelt að máta hina ýmsu stærðir og útlit inn í þitt
eldhús.
Stíllinn og áferðin skipta sköpum.
\ Settuþað saman kerfinu eru 11 mismunandi litir, áferðir ög efni
á skúffum og skápahurðum einnig er mikið úrval af höldum.
Gegnheilar hillur úr beyki og mahogni bjóða upp á skemmtilega
möguleika - einfalt, stílhreint og nútímalegt. Borðplatan setur svo
punktinn yfir i-ið. Við bjóðum upp á úrval borðplatna í hæsta
gæðaftokki og i ýmsum munsturlitum. Borðplötur úr gegnheilu
beyki og mahogni eru mjög vinsælar og setja glæsilegan svip á
eldhúsið.
Einnig á lager og til afgreiðslu strax úrval fataskápa,
baðinnréttinga og rennihurða.
TtlAÐVWSlA
ÁRVIRKINN, SELFOSSI • Sími 480 1160 AKUREYRI • Sími 461 5003
ORMSSON
SMARALIND • Sími 530 2907 / 530 2908
Túrkmenistan:
Stúdentar þurfi
ekki að skúra
Stúdentar í Túrkmenistan þurfa
ekki lengur að skúra gólf á sjúkra-
húsi eða vinna á ökrum í tvö ár til
að fá inngöngu í háskóla landsins.
Gurbanguly Berdymuchammedov,
nýskipaður forseti landsins,
kynnti þessar breytingar í gær.
Saparmurat Niyazov, fyrrum for-
seti landsins, setti á sínum tíma lög
um að nemendur neyddust til að
vinna tveggja ára verkamannavinnu
í þeim geira sem þeir ætluðu sér að
læra til. Þannig hafa verðandi lækn-
ar neyðst til að skúra gólf á sjúkra-
húsum í tvö ár áður en þeir byrjuðu
að læra sjálfa læknisfræðina.
Forsetinn kynnti einnig að tíu ára
skyldunámi barna í landinu verði
aftur komið á, en það var fellt niður
í stjórnartíð Niyazovs, sem einnig
gekk undir nafninu Túrkmenbashi.