blaðið - 06.03.2007, Blaðsíða 15
blaðið
ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2007 15
Snæfríður Sól Snorradóttir var valin Hawaiian Tropic
Glæstur fulltrúi
/
Islands í Las Vegas
Snæfríður Sól Snorradóttir sigraði þaQ er fre^ar streSS-
í Hawaiian Tropic-keppninni á laug-
ardaginn. Hún fer til Las Vegas og
keppir þar við íturvaxnar kynsystur
sínar til úrslita. Snæfríður fræddi
Blaðið fúslega eilítið um sjálfa sig.
„Ég er nemi í Borgarholtsskóla og
er á félagsfræðibraut. Ég er sautján
ára, að verða átján og hef áhuga á að
læra hönnun. Þá stefni ég á að verða
arkitekt í framtíðinni."
Snæfríður þreytti frumraun sína
á sviðinu á laugardag. Hún segist
hafa verið örlítið stressuð.
„Já, það er frekar stressandi að
standa á bikiníi fyrir framan fjölda
fólks. Samt var það ekki eins stress-
andi og óttinn við að detta! Ég er
frekar hávaxin og vön lágbotna
skóm. Háir hælar voru því frekar
andi að standa á bikiníi
fyrir framan fjölda fólks.
Samt varþað ekki eins
stressandi og óttinn við að
detta!“
framandi, en við fengum góða
göngutilsögn og allt fór vel. Mig
hafði langað til að taka þátt í svona
keppni áður en skort kjark. Loks
sló ég til og sé ekki eftir því!“ sagði
Snæfríður.
Snæfríður segir keppnina ekki
hefðbundna fegurðarsamkeppni.
„Þetta er eiginlega blanda af fitness-
keppni og fegurðarsamkeppni. Við
þurftum að koma fram í baðfötum
og glamúrkjólum. Við saumuðum
jafnvel okkar eigin búning. Minn
átti að tákna víkingaöld á Islandi
og tókst bara ágætlega, held ég. Ég
æfði stíft í ræktinni og það gat verið
erfitt að þurfa að borða sellerístöng
meðan vinir mínir hámuðu í sig
pitsu í skólanum. Ég var því fegin að
geta hámað sjálf í mig pitsu, daginn
eftir keppnina!"
Snæfríði er margt annað til lista
lagt. Hún dansar, syngur og leikur
á píanó.
„Já, ég vann freestyle-keppni árið
2001 og finnst bæði gaman að dansa
og syngja. Þá fer ég í píanónám í
haust. Annars er ég hálfgert sófadýr
og finnst best að vera með kærast-
anum, Jóni Axel Andréssyni," sagði
Snæfríður að endingu.
FERMINGAR
fcLÍglÍlitL V--.
Gjafakort
Erum með mikið úrvai
fermingargjafa.
Vandaðarvömrí
hæsta gæðaflokki
(fjullkistan
DÓRA JÓNSDÓTTIR - GULLSMIÐUR
FRAKKASTÍG 10 SÍMI 551 3160
OPIÐ VIRKADAGA FRÁ KL. 14-18
OG LAUGARDAGA FRÁ KL. 11-14
Vital skórnir
komnir aftur
Frábærir skór með nuddinnleggi
Kringlunni, sími 553 2888
Opið til kl. 21 í kvöld
BLOGGARINN.
Kemur pólitisk
fegurð að innan?
Það er óhætt að segja að fréttatilkynning okkar
um óbeislaða fegurð hafi vakið mikla athygli
bæði hér á landi og víðar. Þegar við fórum af
stað vorum viö ekki viss um að þetta fengi
mikinn hljómgrunn enda ekki hægt að
líta íblað eða tímarit án þess að vera
velt upp úrþessum óraunhæfu kröfum
um hvað það erað líta vel út. Það kom
okkurlíka á óvart að viðbrögðin hafa
öll verið á einn veg. Jákvæð. Fólki
finnst þessi gagnrýni mjög þörf og
deilir áhyggjum okkar af því hvert
stefnir. Hvaða áhrifþetta gildismat
hefur á ungt fólk, bæði stráka og 1
stelpur. Fyrirmyndirnar eru tölvuunn-
ar gervimanneskjur sem einungis eru
byggðar á sönnu fólki, efsvo má að
orði komast. I einfeldni minni hélt ég að
fikt við myndirætti einkum við ítísku- og
fegurðariðnaðinum en mér hefur verið
bent á það að margir frambjóðendur, þing-
menn og ráðherrar láta breyta myndum af
sér. Taka út hrukkur, slétta húð o.þ:h. Nú hef
ég ekkert á móti því, nema síður sé að fólk
punti sig hvort sem þaö er alla daga eða til
spari. En óg set spurningarmerki við þessa
miklu áherslu á útlit og þegar útlit frambjóð-
enda til Alþingis er farið að skipta svona
miklu máli að þeir telja sig ekki geta náð
kjöri nema þreyta útliti sínu. Getur verið
að það skipti í alvöru ekki meira máli hvað
viðkomandi erað segja en hvemig hánn
litur út? Kona spyrsig!"
Matthildur Helgadóttir
http://matthildurh.blog.is
■ F
Lokadagar útsölunnar
GO - (íGf|
Erlendar kiljur 80-90% - Föndurvörur 80%
Landakort 80% - Leikföng 80%
Ritföng 80% - íslenskar bækur 80-90%
Allt á að seljast - verslunin hættir
Innréttingar og allur búnaður verslunarinnar til sölu.
Bókabúðin Hlemmi
Laugavegi 118 S.5111170
föstudaga
Auglýsingasíminn er
510 3744
blaðid=